Fréttablaðið - 25.10.2006, Page 74

Fréttablaðið - 25.10.2006, Page 74
34 25. október 2006 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is > Pauzuolis áfram í Þýskalandi Handknattleikskappinn Robertas Pauzuolis verður áfram í Þýskalandi og kemur ekki til Íslands eins og þýskir fjölmiðlar greindu frá á mánudag. Pauzuolis, sem lék með Selfossi, Fram og Haukum á sínum tíma, hefur fengið sig lausan frá félagi sínu, Hildesheim, og töldu þýskir miðlar að hann myndi í kjölfarið fara til Íslands. Forráðamenn Fylkis settu sig í samband við Pauzuolis í gær í þeim tilgangi að bjóða honum samning en Pauzuolis tjáði Fylkismönnum að hann væri kominn með samning við annað þýskt félag sem skrifað yrði undir í dag og því yrði ekkert af því sem stendur að hann komi til Íslands. FÓTBOLTI Á mánudag kvað áfrýjunar- dómstóll KSÍ upp þann úrskurð að ÍR bæri að leika í Landsbanka- deild kvenna að ári. Dómstóll KSÍ hafði áður fallist á þá kröfu Þórs/ KA að ÍR hefði teflt fram ólögleg- um leikmanni í leik liðanna í auka- keppni um laust sæti í deildinni. ÍR vann þær viðureignir saman- lagt, 3-2. Í dómsorðinu er sagt að vinnu- brögð Samninga- og félagaskipta- nefndar KSÍ og skrifstofu sam- bandsins séu ámælisverð. Að hvorugur aðili hafi kannað hvort viðkomandi leikmaður, Berglind Magnúsdóttir, fullnægði skilyrð- um laga og reglna sambandsins um félagaskipti leikmanna. „ÍR hlaut hins vegar að mega treysta því að útgefið keppnisleyfi Berg- lindar Magnúsdóttur væri í sam- ræmi við lög og reglur Knatt- spyrnusambands Íslands,“ segir í dómsorðinu. Á þeim grundvelli voru úrslit leikjanna látin standa. „Við erum ósáttir,“ sagði Unn- steinn Einar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, í samtali við Fréttablaðið og sagði að félagið myndi skoða þann möguleika að skjóta málinu til áfrýjunardóm- stóls ÍSÍ. Ef hann tekur upp málið kveður sá dómstóll upp loka- úrskurð í málinu. Ef ekki, stendur áðurgreind niðurstaða áfrýjunar- dómstóls KSÍ. Þór/KA hefur eina viku til að áfrýja málinu. „Okkur finnst dómurinn ekki taka nógu vel á málinu,“ bætti Unnsteinn við. „Þar er ábyrgðinni vísað allri yfir á KSÍ og fríar dómsorðið ÍR algjörlega allri ábyrgð. Þeir sem skrifa undir yfir- lýsingu um félagaskipti ábyrgjast að framfylgja lögum og reglum KSÍ. Í þessu tilfelli voru það full- trúar KR og ÍR. Það er einfaldlega skautað fram hjá þeirri staðreynd. Því er einnig sleppt að fjalla ítar- lega um keppnisleyfið og hvað það þýðir. Það finnst okkur vera galli á dómnum. Þeir láta ekki rétta aðila taka ábyrgð í þessu máli.“ Unnsteinn segir að Þór/KA líði fyrir mistök sem KSÍ og ÍR gerðu. „Við tefldum fram löglegu liði gegn ólöglegu og töpuðum á því.“ Enn fremur segir hann að ÍR hafi alla tíð vitað að Berglind hefði leikið með tveimur félögum á tímabilinu. Samkvæmt reglum KSÍ má leikmaður ekki leika með fleiri félögum á einu almanaksári. Þessu neitar Már Árnason, for- maður meistaraflokksráðs kvenna hjá ÍR. „Það er algjörlega rangt. Undanþágubeiðnin var fram- kvæmd undir mikilli tímapressu og við töldum okkur vera að gera rétt,“ sagði Már. „Við tefldum ekki fram ólöglegu liði og unnum þessa baráttu inni á vellinum. Við höfð- um ekki hugmynd um þennan leik sem Berglind lék með Fjölni.“ Már segist þó skilja afstöðu Þórs/KA og á alveg eins von á því að norðanmenn áfrýi dómnum til ÍSÍ. Ef úrskurðurinn hefði verið Þór/KA í hag, hefði ÍR áfrýjað málinu til ÍSÍ. „Já, að sjálfsögðu. Ég var búinn að lýsa því yfir áður.“ Geir Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri KSÍ, hefur áður viðurkennt mistök KSÍ í málinu og afturkallað keppnisleyfi Berglindar með ÍR. Hann sagði að í kjölfarið á þessu máli yrði kerfi KSÍ bætt verulega til að fyrirbyggja að slík mistök verði endurtekin. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is Á LEIÐINNI Í 1. DEILDINA Þór/KA leikur í 1. deild kvenna á næsta ári ef dómur áfrýjunardómstóls KSÍ stendur. Hér leikur liðið gegn Stjörnunni í Landsbankadeild kvenna í sumar. Áfrýjunardómstóll dæmdi ÍR í hag og ávítti KSÍ Áfrýjunardómstóll KSÍ kvað upp úrskurð sinn á mánudag um að úrslit í leik ÍR og Þórs/KA fengju að standa og ÍR léki því í Landsbankadeild kvenna á næsta tímabili. Í dómsorðinu voru vinnubrögð KSÍ í máli þessu sögð ámælisverð. FÓTBOLTI Jóhann Þórhallsson, leik- maður Grindavíkur, mun að öllum líkindum skrifa undir samning við KR í vikunni. Þetta staðfesti Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnu- deildar Grindavíkur, í samtali við Fréttablaðið. Sjálfur segir Jóhann að samkomulag sé nánast í höfn. „Þetta er ekki enn frágengið enda er ég ekki búinn að skrifa undir neitt ennþá. En það fer að styttast í samkomulagið,“ sagði Jóhann sem sagðist vera mjög spenntur fyrir KR. Jónas sagði að viðræður við KR væru í gangi og verið væri að ganga frá lokahnútum samkomu- lagsins. „Ég á von á því að þetta mál verði klárað í vikunni.“ Í síðustu viku samdi Óskar Örn Hauksson við KR um að leika með félaginu næstu þrjú árin. Undan- farin þrjú ár hefur hann leikið með Grindavík en þar áður með Njarðvík. Jóhann hins vegar kom til Grindavíkur síðastliðinn vetur frá KA. Þá hafði hann leikið í fimm ár með bæði Þór og KA en árin 1999 og 2000 lék Jóhann með KR og varð tvöfaldur Íslandsmeistari og bikarmeistari með liðinu. Nú hyggst hann endurtaka leikinn og vill væntanlega spila stærra hlut- verk í KR nú en hann gerði þá. Tveir framherjar eru fyrir í KR, þeir Björgólfur Takefusa og Grétar Ólafur Hjartarson. Þá samdi KR einnig við Atla Jóhanns- son frá ÍBV á sama tíma og liðið samdi við Óskar Örn. - esá JÓHANN ÞÓRHALLSON Á góðri leið með að ganga í KR. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Óskar Örn Hauksson ekki eini Grindvíkingurinn á leið í KR: Jóhann skrifar undir í vikunni FÓTBOLTI Eysteinn Húni Hauksson og Orri Freyr Óskarsson munu í vikunni væntanlega skrifa undir nýja samninga við knattspyrnu- deild Grindavíkur. „Það er verið að ganga frá samningunum og verður væntanlega skrifað undir þá í vikunni. Eftir það getum við einbeitt okkur að því verkefni sem er framundan,“ sagði Jónas Þórhallsson, formaður knatt- spyrnudeildar Grindavíkur. Um helgina framlengdu þrír leikmenn liðsins samninga sína, þeir Ray Anthony Jónsson, Guðmundur Andri Bjarnason og Andri Steinn Birgisson. - esá Leikmannamál Grindavíkur: Eysteinn og Orri áfram HÚNINN FER HVERGI Eysteinn Húni ætlar að framlengja við Grindavík. FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson, leikmaður Stabæk, og Kristján Örn Sigurðsson hjá Brann hafa báðir verið tilnefndir sem leikmenn ársins í sínum stöðum. Veigar er einn þriggja sem er tilnefndur sem besti sóknarmað- ur ársins og Kristján sem besti varnarmaðurinn. Árni Gautur Arason hefur áður hlotið þessi sömu verðlaun í flokki markvarða en er ekki tilnefndur í ár. Verðlaunin verða afhent þann 11. nóvember. - esá Leikmenn ársins í Noregi: Veigar og Kristj- án tilnefndir VEIGAR PÁLL Einn markahæstu leik- manna norsku úrvalsdeildarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/SCANPIX Markvörðurinn Berglind Magnúsdóttir hefur verið miðpunktur umræðunnar í máli ÍR og Þórs/KA í kvenna- boltanum síðustu daga. Í gær dæmdi áfrýjunardómstóll- inn ÍR í vil sem þýðir að ÍR spilar í efstu deild á næsta ári. Berglind er 22 ára gömul og kemur frá Grundarfirði en hún starfar í Lögreglunni í Kópavogi á milli þess sem hún ver mark í fótbolta. Berglind var að vonum ánægð með niðurstöðu dómsins. „Þetta er alveg frábært. Mér datt aldrei í hug að þetta væri svona mikið mál, þetta kom alveg flatt upp á mig. Ég hafði ekki hugmynd um þessa reglu,“ sagði Berglind þegar Fréttablaðið hafði samband við hana í gær. Berglind sagði jafnframt að ÍR-ingar hefðu ekki spurt sig hvort hún væri búin að leika með tveimur liðum fyrr um sumarið. „Ég þekki þessa menn frá því að ég var að æfa með ÍR og var í rauninni bara að gera þeim greiða. Þeir voru búnir að leita úti um allt og ég var eiginlega síðasti kosturinn. Mér fannst það ekkert mál, þekki allar stelpurnar og þær eiga þetta bara einfaldlega skilið, að mínu mati. Þær unnu bara leikinn og það var ekkert flóknara en það.“ Berglind hefur verið miðpunktur umræðunnar í þessu máli en finnst Berglindi eins og hún sé blóraböggull í málinu? „Nei, alls ekki. Þetta kemur samt þannig út. Þetta er samt búin að vera svolítið skemmtileg umræða, maður hefur aldrei heyrt nafnið sitt jafn oft í fréttunum. Þetta mál hefur bara verið rætt af beggja hálfu og maður verður að taka tillit til beggja aðila í þessu máli,“ sagði Berglind sem hefur alveg sloppið við allt áreiti vegna þessa. Berglind er komin aftur í KR og segir að aldrei hafi staðið til að hún myndi skipta alfarið yfir í ÍR að nýju, en hún lék með ÍR í rúmlega eitt ár á sínum tíma. „Ég fór bara í ÍR tímabundið til að hjálpa þeim en ég er sátt og mjög glöð fyrir hönd ÍR-inga.“ BERGLIND MAGNÚSDÓTTIR: LÖGREGLUKONAN FRÁ GRUNDARFIRÐI VAR ÁNÆGÐ MEÐ ÚRSKURÐ ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLSINS ÍR-stelpurnar eiga þetta einfaldlega skilið KÖRFUBOLTI Ricard Casas hefur verið rekinn sem þjálfari Pamesa Valencia, en með því félagi leikur Jón Arnór Stefánsson. Liðið hefur farið ákaflega illa af stað á tímabilinu og hefur einungis unnið einn af fyrstu fimm leikjunum. Chechu Muleru, aðstoðar- þjálfari liðsins, mun taka tíma- bundið við þjálfun liðsins en samkvæmt erlendum miðlum er Grikkinn Fotis Katsikaris í sigtinu hjá stjórn Pamesa Valencia sem næsti þjálfari liðsins en hann var nýverið rekinn frá Dynamo St. Petersbourg. Jón Arnór hefur ekki náð sér á strik á tímabilinu en hann hefur átt við meiðsli að stríða. - dsd Jón Arnór Stefánsson: Þjálfari Jóns Arnórs rekinn JÓN ARNÓR STEFÁNSSON Fær nýjan þjálfara á næstu dögum. FÓTBOLTI Sá undarlegi atburður átti sér stað í leik Tottenham og West Ham á dögunum að Jermain Defoe, sóknarmaður Tottenham, beit Javier Mascherano, leikmann West Ham, í handlegginn eftir að sá síðarnefndi hafði tæklað Defoe. Enska knattspyrnusam- bandið hefur nú tilkynnt að ekki sé hægt að dæma Defoe í bann vegna þess að dómarinn gaf leikmanninum gult spjald fyrir athæfið í leiknum. Mascherano er vitaskuld hissa á viðbrögðum Defoe. „Ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins. Þegar ég kom til Englands þá var ég oft spurður út í hörkuna í argentínska fótboltanum en ég var aldrei bitinn þar og ég bjóst aldrei við því að vera bitinn hér heldur. Við tókumst á af hörku í leiknum en fótbolti er íþrótt fyrir karlmenn, en ekki menn sem bíta,“ sagði Mascherano. - dsd Javier Mascherano: Ekki íþrótt fyrir menn sem bíta SJALDSÉÐUR ATBURÐUR Það er ekki á hverjum degi sem leikmaður er bitinn í leik en Defoe sleppur þó við refsingu. NORDIC PHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.