Fréttablaðið - 25.10.2006, Qupperneq 78
25. október 2006 MIÐVIKUDAGUR38
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 líkamshluti 6 halló 8 mál 9 þrá 11
dreifa 12 fyrirtæki 14 náskyldur 16
skóli 17 klettasprunga 18 for 20 til 21
litlaus.
LÓÐRÉTT
1 ofneysla 3 borðaði 4 ítalskur ofn-
réttur 5 rá 7 uppnám 10 knæpa 13
pfn. 15 gefa upp sakir 16 starfsgrein
19 slá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 háls, 6 hæ, 8 tal, 9 ósk, 11
sá, 12 firma, 14 náinn, 16 fg, 17 gjá,
18 aur, 20 að, 21 grár.
LÓÐRÉTT: 1 óhóf, 3 át, 4 lasanja,
5 slá, 7 æsingur, 10 krá, 13 mig, 15
náða, 16 fag, 19 rá.
„Ég held að söngstílar okkar
passi býsna vel saman,“ segir
Einar Kárason rithöfundur, sem
tekur lagið með Árna Johnsen á
væntanlegri plötu.
Tilurð þessa sérstaka dúetts
má rekja til mikillar Oddfellow-
hátíðar í Vestmannaeyjum um
árið, þar sem Einar var ræðu-
maður og Árni veislustjóri. „Árni
var auðvitað með gítarinn og tók
lagið. Svo sagði ég sögu af því
þegar ég söng einu sinni með
Jónasi Árnasyni vegna þess að
ég kunni textann betur en sá
gamli. Í framhaldinu kom í ljós
að hitt lagið sem ég kann textann
við er Göllavísur, sem Árni söng
um árið, og á endanum sungum
við það saman.“
Síðar hittust Einar og Árni
aftur í sviðaveislu í Eyjum og til
að kvitta upp á vinskapinn
tóku þeir lagið aftur. Þótti
þeim takast svo vel upp að
ákveðið var að hljóðrita
samsönginn og
kemur hann
út á plötu
Árna, Það
er gaman
að vera til,
í næstu viku.
Göllavísur,
sem er ein
sautján erindi, kom
fyrst út í útgáfu Árna
árið 1971 og var mest
spilaða lagið í
útvarpinu það
árið.
Einar kveðst
ánægður með
hvernig til tókst. „Það var
gaman að þessu. Reyndar
er til mikið af illgjörnu
fólki, til dæmis meðal ætt-
ingja minna og vina, sem
er með kenningar um að
ég sé eini maðurinn á
Íslandi sem syngi verr en
Árni og þess vegna vilji
hann hafa mig með.
En það eru nú
ýkjur.“ - bs
Dúett Einars Kárasonar og Árna Johnsen
EINAR KÁRA-
SON Kunni
öll sautján
erindi Gölla-
vísna.
ÁRNI JOHNSEN
Gefur út plötuna
Það er gaman að
vera til í næstu viku.
Það er skammt stórra högga á milli
hjá Agli Ólafssyni því hann var
varla fyrr lentur á Keflavíkurflug-
velli eftir dvöl á suðrænum slóðum
en að sonur hans og Tinnu Gunn-
laugsdóttur Þjóðleikhússtjóra Ólaf-
ur Egill og unnusta hans Ester Talía
eignuðust sitt fyrsta barn. „Já, þau
fengu stúlku, hún er dökkhærð, vel
hærð eins og henni ber kyn til,“
sagði söngvarinn og hló, augljós-
lega ákaflega stoltur, enda afi í
fyrsta sinn.
Egill er nýkominn heim úr
þriggja vikna ævintýraferð um
Suður-Ameríku en söngvarinn góð-
kunni var fararstjóri á vegum
ferðaskrifstofunnar Prima. „Þetta
er bara áhugamál hjá mér og ég hef
farið í eina og eina ferð,“ útskýrir
Egill sem segist hafa fengið smá
kvef við heimkomuna enda mun
svalara hér nyrðra en í sólinni fyrir
sunnan. „Auðvitað er alltaf gaman
að sjá heiminn og þetta starf gerir
það að verkum að maður þarf ekki
að leggja jafn mikið af mörkunum
fjárhagslega,“ bætir söngvarinn
við.
Egill fór víð með hópinn; til
Perú, Chile, Páska-eyja, Bora Bora
en ferðinni lauk á Tahíti. Söngvar-
inn segist nú ekki vera altalandi á
spænsku en taldi sig geta bjargað
sér, hann hefði líka notið
dyggrar aðstoðar frá þaulkunnug-
um fararstjórum í hverju landi.
„Við skoðuðum þarna borg Inkanna
í Perú en samfélagið þar er langt á
eftir okkur þótt þeir séu vissulega
að reyna að fóta sig í núinu,“ segir
Egill sem var augljóslega uppnum-
inn yfir því sem hann sá. „Og svo
eru þessi pólinesísku samfélög
algjör paradís, þar stingur fólk sér
bara til sunds eftir fiski milli þess
sem það tínir upp kókoshnetur sem
falla niður úr trjánum,“ bætir Egill
við. „Chile er hins vegar komið ögn
lengra og nær okkur enda hefur
landið verið í miklum tengslum við
Evrópu og vestræna menningu.“
Egill gaf nýverið út sólóplötuna
Miskunn dalfiskanna eftir langt hlé
sem einyrki og ljóðabókina Kysstu,
kysstu steininn en Egill hefur ekki
fengist við ljóðagerð áður. „Hún er
líka til á þýsku fyrir þá sem vilja
vera vondir við vini sína þar,“ segir
Egill og hlær og reiknar með að
spila á næstunni lög af plötunni og
útilokar ekki að boðið verði upp á
ljóðalestur á tónleikum. „Ef það
finnst góður upplesari,“ bætir hann
við. freyrgigja@frettabladid.is
EGILL ÓLAFSSON: KOMINN HEIM ÚR ÆVINTÝRAFERÐ UM SUÐUR-AMERÍKU
Önnum kafinn og orðinn afi
FARARSTJÓRI OG AFI Egill Ólafsson var varla lentur á Keflavíkurflugvelli þegar fyrsta
afabarnið kom í heiminn.
EIGNUÐUST STÚLKUBARN Ólafur Egill
og Ester Talía eignuðust stúlkubarn og
heilsast bæði móður og barni vel.
Kvikmyndin Mýrin eftir Baltasar
Kormák er sýnd fyrir fullum bíó-
sölum þessa dagana og skilaði hátt í
sextán milljónum í miðasölu fyrstu
sýningarhelgina. Miðinn á myndina
kostar 1.200 krónur sem er öllu
hærra en bíógestir hafa átt að venj-
ast þegar íslenskar kvikmyndir eru
annars vegar en miðinn á kvik-
myndina Börn sem sýnd var fyrir
skömmu kostaði eitt þúsund
krónur.
Almennt miðaverð hækkaði hins
vegar um hundrað krónur í millitíð-
inni, fór úr átta hundruð krónum í
níu. „Miðaverðið hefur verið 800
krónur í fimm ár og nefndu mér
eitthvað sem hefur ekki hækkað á
þeim tíma,“ segir Björn Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Senu sem
sýnir Mýrina. Hann segir launa-
kostnað og annan rekstrarkostnað
kvikmyndahúsa hafa hækkað
umtalsvert á tímabilinu og hækk-
unin nú sé því tímabær.
Gömul hefð er fyrir því að
aðgangur að íslenskum bíómyndum
sé seldur dýrara verði en á innflutt-
ar og Mýrin rífur því verðmúrinn
með 1.200 krónunum. „Um leið og
hækkunin var gerð breyttum við til
og hækkuðum aldurinn á barnamið-
um úr sex ára í átta.
Barnaverðið nýtist því fleirum
og hækkunin hefur því í raun og
veru lítil áhrif á fjölskyldufólk,“
segir Björn og bendir á að miða-
verð á Íslandi sé nánast í takt við
það sem gengur og gerist á hinum
Norðurlöndunum en þar séu skatt-
ar og álögur yfirleitt töluvert lægri
en hér. - þþ
Aldrei dýrara í bíó
MÝRIN Tólfhundruðkallinn stendur ekki í íslenskum bíógestum sem flykkjast á
myndina sem hefur farið glæsilega af stað.
BJÖRN SIGURÐS-
SON Fram-
kvæmdastjóri
Senu segir hækk-
un miðaverðs við-
bragð við almenn-
um verðlags- og
rekstrarkostn-
aðarhækkunum
undanfarið.
Stórsöngvarinn Björgvin Halldórs-
son liggur þessa dagana yfir upp-
tökum og myndefni frá stórbrotnum
tónleikum sínum og
Sinfóníuhljómsveitarinnar
í haust. Eins og alþjóð veit
fyllti Bó Höllina í þrígang
og hefði eflaust getað
bætt við fleiri tónleikum
án þess að hafa mikið
fyrir því. Bó hyggur á veg-
lega DVD-útgáfu fyrir jólin þar sem
verður að finna efni frá tónleikunum
og fleira góðgæti í bland.
Lítið hefur borið á Agli „Gillzen-
egger“ Einarssyni og félögum
hans í Köllunum.is síðustu mánuði.
Heimasíðu þeirra var lokað í byrjun
sumars þegar deilur komu upp
á milli Egils og Jóhanns Ólafs
Schröder, annars höfuð-
paurs félagsskaparins.
Þeir félagar hafa nú
náð fullum sáttum sín
á milli og innan tíðar er
fyrirhugað að opna
nýja heimasíðu.
Ekki er vitað hvort
lénið kallarnir.is
verður notað undir skrif og fróðleik
þeirra félaga en þær fréttir berast úr
herbúðum Kallanna að verið sé að
safna mannskap til að halda heima-
síðunni úti. Gerð er krafa um að
menn séu frægir til að fá að skrifa
á síðuna, en þeir sem þegar hafa
verið samþykktir sem skríbentar eru
Auðunn Blöndal, Dóri DNA, Arnar
Grant og Ásgeir Kolbeinsson auk
þess sem Davíð Þór Jónsson er
talinn líklegur til að bætast í hópinn.
Abbababb söngleikur tónlistar-
mannsins Dr. Gunna verður settur
upp eftir áramót og undirbýr hann
sýninguna þessa dagana. Nú mun
hafa verið gengið frá ráðningu
fyrsta leikarans í sýninguna og er
það enginn annar en Sigurjón
Kjartansson. Söng- og
leikhæfileikar Sigurjóns
eru öllum kunnir en
ekki er vitað til þess að
hann hafi áður leikið
á sviði. - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
... fær Theódór Júlíusson fyrir
að lifa sig inn í hlutverk Elliða
í Mýrinni með því að láta loka
sig inni í fangaklefa á milli
taka.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Pa e 3
Ekkert blað?
550 5600
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja ef blaðið berst ekki.
- mest lesið