Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 33
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. ...eru meðal þess sem Árni málar á skóna sína Dag einn gekk Árni Már Erlingsson inn í verslunina Gyllta köttinn og keypti sér skjannahvíta strigaskó. Ekki leið á löngu þar til hreinleiki skónna hvatti hann til listsköp- unar og því fór það svo að hann málaði munst- ur á skóna sína. Skömmu síðar hélt hann myndlistarsýningu þar sem skórnir voru í aðalhlutverki en Árni, sem titlar sig mynd- listarmann, stefnir á að halda erlendis í nám á næstunni. Handmáluðu skórnir hans Árna hafa vakið almenna lukku og því leið ekki á löngu þar til hann gerði samning við eigendur Gyllta katt- arins um að taka skóna góðu í almenna sölu. „Ég mála bara alls konar munstur sem ég fíla sjálfur. Aðeins einu sinni hef ég gert sama munstrið tvisvar en það voru hauskúpur og lítil hjörtu... svo hef ég málað blóm, fiska, nótur og margt fleira,“ segir Árni. Skóparið kostar 5.800 en þessa dagana eru pörin óðum að klárast úr búðinni enda seljast þau sem heitar lummur. „Ég sit því bara við eldhúsborðið heima og mála þessa dagana,“ segir Árni að lokum. mhg@frettabladid.is Hauskúpur, hjörtu, fiskar og nótur Árni Már Erlingsson málar á skó og selur þá í Gyllta kettinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON UNAÐSLEGIR LOÐFELDIR Pelsar eru ekki bara fallegir heldur endast vel og eru hlýir. TÍSKA 2 Samtök sjúklinga með legslímu- flakk voru stofnuð þann 20. október. Á stofnfundinum gengu 52 í samtökin. Ása María Björns- dóttir-Togola var kjörin formaður. Fyrst um sinn er póstfang sam- takanna endo_island@yahoo. com. Rússneska tískuvikan fór af stað um síðustu helgi. Hönnuðir frá Rússlandi, Úkraínu, Hvíta-Rúss- landi, Grikklandi, Perú, Bretlandi, Ítalíu, Bandaríkjunum og víðar héldu glæsilegar sýningar. Einnig er haldin „Ruskyi Silhouette“ hönnunarkeppni fyrir unga hönnuði. Sófadagar standa nú yfir í Hag- kaupum í Smáralind og á Akur- eyri. Veittur er 15 til 60 prósenta afsláttur af öllum sófasettum. Yfir hundrað tegundir eru í boði. Sófadögunum lýkur í dag. ALLT HITT [ TÍSKA HEIMILI HEILSA ] KLÆÐSKERI FRÁ ARMANI TEKUR MÁL AF VIÐSKIPTAVINUM SÆVARS KARLS Armani-vika stendur yfir í verslun Sævars Karls. Mikið úrval er af haust- og og vetrarfatnaði ARMANI, þá hefur verið bætt við handsaumuðum skóm og leðurfatnaði. Sævar Karl hefur flutt inn föt frá ARMANI frá árinu 1983. Und- anfarin þrjú ár hefur GEORGIO ARMANI sent klæðskera tvisvar á ári frá Mílanó til að taka mál af viðskiptavinum Sævars Karls. Að þessu sinni verður klæð- skerameistarinn Pino Digrisolo í heimsókn í Bankastrætinu á fimmtudag, föstudag og laug- ardag. Nánari upplýsingar á www. saevarkarl.is Armani-vika GÓÐAN DAG! Í dag er fimmtudagurinn 26. október, 299. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 8.51 13.12 17.31 Akureyri 8.44 12.56 17.08 ÓLÍFUR GLEÐJA Ekki einungis yngingarmeðal og eðalmatvara heldur einnig úrvalsskraut. HEIMILI 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.