Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 96
56 26. október 2006 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Undanfarnar vikur hefur
sú gróusaga komist á kreik að
Tryggvi Guðmundsson sé ósáttur
hjá FH og vilji fara frá liðinu.
Hann sé orðinn óánægður með það
hlutverk sem hann gegnir innan
liðsins og vilji losna af vinstri
kantinum.
Tryggvi segir sjálfur í samtali
við Fréttablaðið að kominn sé tími
til að kveða þessar sögur í kútinn.
„Þetta er bara bull. Ég á eitt ár
eftir af samningi mínum og fór
ekki fram á að ég yrði seldur frá
félaginu. Ég verð því áfram í FH,“
sagði Tryggvi afdráttarlaust.
Hann segir þó að hann hafi
fundað með Ólafi Jóhannessyni,
þjálfara FH, þar sem hlutverk
Tryggva innan liðsins var rætt.
„Ég tel það mjög eðlilegt og fag-
mannlegt að leikmenn og þjálfar-
ar ræði um framtíð liðsins og það
sem getur betur farið næsta ár. Ég
er ekki ósáttur við þau svör sem
ég fékk á fundinum.“
Tryggvi spilaði síðustu leiki
FH í sumar sem framliggjandi
miðjumaður. „Ég sagði einhvern
tímann í léttum dúr að ég hefði
öðlast nýtt líf í þessum leikjum.
Þá var ég loksins með boltann og
mér fannst gaman að spila. Eftir
það fór ég að íhuga að losna af
kantinum. Það er það eina sem ég
sagði á þessum fundi. Óli stillir
upp liðinu eins og hann telur það
vera best enda er hann fær þjálf-
ari. Og ég mun spila á kantinum
verði ég settur þangað. Ég vil
samt meina að ég sé betri fyrir
framan markið. Ég verð bara að
æfa vel í vetur þannig að ég geti
gefið fyrir, hlaupið inn í teiginn
og klárað sjálfur,“ sagði hann og
hló.
Hann segist ekki vita hvernig
þessi saga komst á kreik. „Það er
greinilega til fullt af fólki sem
hefur lítið annað að gera en að
bulla um svona hluti.“
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
TRYGGVI GUÐMUNDSSON Segir ekkert hæft í þeim sögum að hann vilji losna frá FH. Hér fagnar hann Íslandsmeistaratitlinum
með Ásgeiri Gunnari Ásgeirssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/
Fór ekki fram á sölu og verður í FH
Tryggvi Guðmundsson vill stöðva þær gróusögur sem hafa verið í gangi um meinta óánægju hans í FH.
Hann segir ekkert hæft í þeim, hann sé samningsbundinn FH næsta árið og muni leika áfram með liðinu.
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Evrópu, UEFA, hefur sektað
enska og króatíska knattspyrnu-
sambandið fyrir hegðun stuðn-
ingsmanna þjóðanna eftir leik
Króatíu og Englands.
Málið verður tekið fyrir 9.
nóvember og enska knattspyrnu-
sambandið ætlar að rannsaka
málið í þeirri von að sleppa við
sektina. „Þetta kemur okkur
mjög á óvart og okkur finnst
sektin ekki vera réttlætanleg,“
sagði talsmaður enska knatt-
spyrnusambandsins.
Króatar gætu þurft að leika
fyrir luktum dyrum ef þeir verða
fundnir sekir í málinu. - dsd
Enskir stuðningsmenn:
Enn og aftur til
vandræða
BLÓÐHEITIR STUÐNINGSMENN Króatískir
stuðningsmenn láta vel í sér heyra á
leikjum.NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Undanfarna daga hefur
sænski sóknarmaðurinn Henrik
Larsson verið orðaður við Aston
Villa. Martin O‘Neill, fram-
kvæmdastjóri Aston Villa, var
framkvæmdastjóri Celtic þegar
Henrik Larsson lék þar.
Þeir félagar, Larsson og
O‘Neill, hafa báðir neitað þessum
fréttum. „Martin O‘Neill er
frábær framkvæmdastjóri og ég
á ekkert nema góðar minningar
um hann, en ég verð áfram hjá
Helsingborg,“ sagði Larsson.
- dsd
Henrik Larsson:
Er ekki á leið til
Aston Villa
ÁFRAM Í SVÍÞJÓÐ Larsson fagnar hér
marki sínu gegn Englendingum á HM í
sumar. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI David Weir, fyrirliði
Everton, missti meðvitund í
nokkrar mínútur þegar hann og
Leon Barnett, leikmaður Luton,
skullu saman í leik liðanna í
ensku deildabikarkeppninni í
fyrrakvöld. Hugað var að honum í
fimm mínútur á vellinum áður en
hann var borinn í búningsklefann
þar sem hann náði meðvitund.
Hann var síðan fluttur upp á
sjúkrahús þar sem hann gisti um
nóttina.
Búist er við því að Weir verði
frá næstu þrjár vikurnar. - esá
David Weir:
Rotaðist og fór
á sjúkrahús
DAVID WEIR Lá meðvitundarlaus í fimm
mínútur á vellinum. NORDIC PHOTOS/GETTY