Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 93
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Í fyrstu botnaði ég ekkert í vinsæld-
um The Killers. Það er ekkert við
hljóm þeirra sem heillar mig og
þetta eina lag sem þeir hafa átt vin-
sælt hreyfði lítið sem ekkert við
mér. Það er engu líkara en liðsmenn
sveitarinnar hafi stolið gömlu
hljómborði frá The Human League
áður en var farið í að hljóðrita þessa
plötu og fyrir vikið er hún útötuð í
laglínum spiluðum með frekar hall-
ærislegum hljóðgervli sem á að
líkja eftir alvöru strengjum. Þetta
gerir hljóminn svolítið barnalegan,
og stundum pirrandi. Miðað við að
hljómsveitin heitir því hættulega
nafni The Killers, er undarlegt að
þeir skuli vera með hljóm sem er
eins bitlaus og hugsast getur.
Það er þó einhver í þessari hljóm-
sveit nægilega næmur til þess að
detta inn á laglínur sem gleymast
seint. Það sannast vel á hetjuslagar-
anum When You Were Young. Lag
sem minnir, ótrúlegt en satt, í senn
á Editors og Meat Loaf.
Ég hef ekki séð þessa sveit á tón-
leikum, en ég get vel ímyndað mér
að hún sé töluvert beittari þar, því
ég fæ alltaf á tilfinninguna að sveit-
inni sé haldið örlítið á bremsunni á
þessari plötu. Kannski var hljómur
þeirra settur í gegnum sandblásar-
ann til þess að hægt væri að bera á
borð eitthvað sem myndi vera ólík-
legra til þess að gefa frá sér flísar?
Hver veit? Að minnsta kosti trúi ég
að það hefði verið hægt að láta
þessa plötu hljóma mun meira
spennandi. Gott dæmi er lagið For
Reason´s Unknown. Frábært lag
sem hefði auðveldlega verið hægt
að láta springa út eins og atóm-
sprengjutilraun í Norður-Kóreu. Í
staðinn springur það eins og vatns-
blaðra í andlitið á manni.
Ég skil núna vel af hverju The
Killers hafa náð svona miklum vin-
sældum. Það er bara vegna þess að
innanborðs eru ágætis lagahöfund-
ar og inn á milli leynast lög sem
auðvelt er að mata ofan í þá sem
kvarta sjaldan og erfitt að setja út á
fyrir þá sem reyna að finna eitthvað
að öllu.
Þetta er þannig afbragðs rokk-
plata fyrir þá sem eru ekkert sér-
staklega mikið fyrir rokk. Plata
fyrir þá sem vilja í rauninni popp,
en leyfa rafmagnsgítarnum að sann-
færa sig um að þeir séu í rauninni
harðir rokkarar. En popp er popp,
og sem slík er þetta sæmilegasta
plata en aldrei neitt meira en það.
Birgir Örn Steinarsson
Bitlausir morðingjar
THE KILLERS: SAM´S TOWN
Niðurstaða: Önnur plata The Killers er gerð
með silkihönskum. Hljómur sem á ekki að
geta gengið fram af neinum manni og nægi-
lega grípandi á köflum til að hafa aðdáendur
sátta.
Goðsögnin Robert Plant, fyrrver-
andi söngvari Led Zeppelin, gefur
út í næstu viku DVD-mynddisk
sem inniheldur tónleika í síðustu
tónleikaferð hans.
Ísland var einmitt einn við-
komustaður ferðarinnar og heppn-
uðust þeir tónleikar, sem voru
haldnir í Laugardalshöll, afar vel.
Á meðal laga á disknum eru
Zeppelin-lögin No Quarter, Black
Dog og Whole Lotta Love. Einnig
er þar að finna útgáfu Plants af
Hendrix-laginu Hey Joe.
Plant á DVD
ROBERT PLANT Nýr DVD-mynddiskur frá
Robert Plant er að koma út.
Rokkarinn Pete Doherty er ekki
hættur að lenda í vandræðum
þrátt fyrir að vera orðinn edrú og
hættur neyslu allra eiturlyfja. Á
tónleikum sveitar hans Baby-
shambles í Róm á dögunum lenti
Doherty saman við ljósmyndara
með þeim afleiðingum að ljós-
myndarinn fór alblóðugur upp á
sjúkrahús. Doherty slapp þó betur
eftir slaginn og fékk bara aðhlynn-
ingu frá kvenkyns aðdáendum á
svæðinu að sögn sjónarvotta. Það
er spurning hvað unnustu hans
Kate Moss finnist um þetta athæfi
en hún ber, að sögn bresku slúður-
pressunnar, barn þeirra undir
belti.
Þetta voru ekki einu vandræð-
in á tónleikunum á Ítalíu en
trommari Babyshambles fékk
glerflösku í hausinn frá áhorf-
anda og leystust tónleikarnir upp
stuttu síðar.
Blóðug slagsmál í Róm
PETE DOHERTY Heldur áfram að lenda í
vandræðum þrátt fyrir að vera búinn að
fara í meðferð.
Leikkonan fræga Angelina Jolie
hefur ekki átt sjö dagana sæla á
Indlandi þar sem hún er við upp-
tökur á nýjustu mynd sinni, A
Mighty Heart. Myndin fjallar um
blaðamanninn David Pearls sem
var myrtur í Pakistan. Jolie tekst
á við hlutverk eiginkonu Pearls,
Marianne. Á meðan á upptökum
hefur staðið hefur liðið yfir Jolie
þrisvar sinnum. Talsmaður leik-
konunnar hefur greint frá því að
myndin taki rosalega á Jolie and-
lega vegna þess hversu sorgleg
hún er. „Angelina var að taka upp
mjög sorglegt atriði en það er
þegar Marianne kemst að því að
eiginmaður hennar var myrtur og
leið bókstaflega yfir leikkonuna,“
segir sjónarvottur á tökustað en
það var í þriðja sinn sem þetta
kemur fyrir Jolie.
Með Angelinu í Indlandi er
Brad Pitt kærasti hennar, en hann
er einnig framleiðandi myndar-
innar, og þrjú börn þeirra.
Féll í yfirlið á Indlandi
ANGELINA JOLIE Er stödd á Indlandi þessa dagana að taka upp myndina A Mighty
Heart en hún stendur eitthvað völtum fótum því liðið hefur yfir leikkonuna þrisvar
sinnum meðan á upptökum hefur staðið.
Truflaðasta
grínmynd ársins er komin.
Biluð skemmtun !
Jackass number two
„Nýtt lágmark“
-WASHINGTON TIMES
���
- V.J.V - TOPP 5.IS
����
- H.Ó. - Mbl
Stórmynd sem lætur engan ónsnortin.
Oliver Stone
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
Systurnar Hilary Duff og Haylie Duff
fara hér á kostum í frábærri rómantískri gamanmynd.Ekki missa af kraftmestu spennumynd ársins.
Frá leikstjóra “The Fugitive”
Þegar hættan steðjar að ... fórna þeir öllu
/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI/ KEFLAVÍK
STEP UP kl. 6 B.i. 7
THE THIEF LORD kl. 4 Leyfð
ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. kl. 3:40 Leyfð
THE GUARDIAN kl. 5 - 8 - 10:10 B.i. 12
THE GUARDIAN VIP kl. 5
MATERIAL GIRLS kl. 3:40 - 5:50 - 8 Leyfð
JACKASS NUMBER TWO kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12
WORLD TRADE CENTER kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12
THE GUARDIAN kl.5:30-8:30-10:10 B.i. 12
MATERIAL GIRLS kl. 6 - 8 Leyfð
BEERFEST kl. 10:10 B.i. 12
BÖRN kl. 8 B.i.12
/ KRINGLUNNI
MÝRIN kl. 8 - 10 B.i. 12
JACKASS NUMBER TWO kl. 8 B.i. 12
WORLD TRADE CENTER kl. 10 B.i. 12
THE GUARDIAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12
THE THIEF LORD kl. 6 Leyfð
MATERIAL GIRLS kl. 6 - 8 Leyfð
JACKASS NUMBER TWO kl. 10 B.i. 12
Stórmynd sem lætur engan ónsnortin.
����
S.V. MBL
EINN ÓVÆNTASTI GLEÐIGJAFI ÁRSINS
Þegar hættan steðjar að ...
fórna þeir öllu
Ekki missa af kraftmestu spennumynd ársins.
Frá leikstjóra “The Fugitive”
Varðveitt líf mitt
fyrir ógnum óvinarins
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
ARNALDAR INDRIÐASONAR
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
THE QUEEN kl. 6 - 8 B.i. 12
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 6 - 10:10 Leyfð
BÖRN kl. 8 B.i. 12
20% AFSLÁTTUR FYFIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG
PLATINÍUM GLITNIS MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
Munið afsláttinn
HAGATORGI • S. 530 1919
www.haskolabio.is
MÝRIN kl. 6 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12
THE GUARDIAN kl. 6 - 9 B.i. 12
WORLD TRADE CENTER kl. 8 -10:30 B.i. 12