Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 90
 26. október 2006 FIMMTUDAGUR50 „Við erum öll nýútskrifuð úr Lista- háskólanum í vöruhönnun,“ segir Snæbjörn Stefánsson, einn af sjö hönnuðum sem eru þessa dagana í óða önn að opna vinnustofu á Grett- isgötu. Stofan ber nafnið Grettis- borg og tekur hópurinn að sér ýmiss konar hönnun. Vöruhönnun er ungt fag en þetta er í fjórða skiptið sem Listaháskólinn útskrif- ar hóp úr þessu fagi. „Vöruhönnun er mjög opið svið innan hönnunar og getum við tekið að okkur verkefni allt frá drykkj- arílátum í að hanna útlit á tölvu,“ segir Snæbjörn og bætir því við að styrkur félaganna á Grettisborg felist í því hversu mörg þau eru saman og geta því tekið að sér stærri verkefni. „Við erum samt öll að vinna sjálfstætt líka og tökum að okkur einstaklingsverkefni.“ Snæbjörn hefur ekki áhyggjur af því að róðurinn verður þungur fyrir ungt hönnunarfyrirtæki fyrst um sinn. „Við erum öll vön því að vera fátækir námsmenn þannig að þó svo að þetta fari hægt af stað þá erum við að fjárfesta í okkar eigin framtíð. Það er samt ákveðin vakn- ing í samfélaginu núna að hönnun geti verið arðbær þannig að við lifum í voninni,“ segir þessi ungi hönnuður að lokum. Grettisborg verður opnuð á föstudaginn klukkan 17 með pompi og prakt þar sem gestir og gang- andi geta komið við á Grettisgötu 51a og séð vinnustofu og verk hönnuðanna. Heimasíða hönnunar- teymisins er www.grettisborg. com. - áp Ungir hönnuðir opna Grettisborg FRJÓIR HÖNNUÐIR Þau Árni, Magnea, Oddný, Róshildur, Snæbjörn, Stefán Pétur og Sverrir úrskrifuðust öll saman úr Listaháskólanum og ákváðu að búa til vinnustofu fyrir vöruhönnuði þar sem þau taka að sér verkefni úr öllum áttum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hvalveiðar Íslendinga virðast ekki hafa mikil áhrif á Nylon- flokkinn því honum hefur verið úthlutað það erfiða verkefni að koma með jólin til ensku borgar- innar Coventry ef marka má breska vefinn Iccoventry.icnet- work.co.uk. Þar kemur fram að stúlkurnar muni kveikja á jóla- ljósum bæjarins þann 19. nóvem- ber við hátíðlega athöfn á Milleni- um Place. Nylon gaf nýlega út tvöfalda A- hliða smáskífu með lögunum Clos- er og Sweet Dreams en síðar- nefnda lagið gerði góða hluti á breskum dansstöðum fyrir nokkru. Stúlkurnar verða hins vegar ekki einar um hituna í Cov- entry því með þeim á sviði verður fyrsti sigurvegari raunveruleika- þáttaraðarinnar X-Factor, Steve Brookstein, sem hlaut á sínum tíma sex milljónir atkvæða í sjón- varpsþáttunum. Fram kemur á vefnum að Nylon sé svar Íslend- inga við Spice Girls og er nafnið á sveitinni sagt vera hálfundar- legt. Þá er einnig sagt frá því að hljómsveit- in hafi haft betur í plötuslagnum hér á Íslandi við breska poppgoðið Robbie Willi- ams í desember, eitthvað sem kemur Bretanum spánskt fyrir sjónir. - fgg Nylon kemur með jólin til Coventry NYLON Koma með jólin til Coventry en þær taka þátt í að kveikja á jólaljósum bæjarins. STEVE BROOKSTEIN Sigraði í fyrstu X- Factor keppninni á Bretlandi og verður Nylon innan handar í Coventry. Sápan í kringum skilnað Pauls McCartney og Heather Mills held- ur áfram en nú hefur ofur- fyrirsætan Kate Moss, sem er besta vinkona Stellu McCartney, stigið fram og sagt sitt álit á Mills. „Ég hef hitt Heather og hún er bölv- aður lygari,“ á Moss að hafa sagt við vini sína sam- kvæmt breska blaðinu The Sun og mun ofurfyr- irsætan hafa hringt í Stellu til að veita henni stuðning sinn. The Sun er sjálft komið í hring- iðu skilnaðarins en á þriðjudaginn til- kynnti Heather að hún hygðist fara í mál við blaðið auk tveggja annarra vegna fréttaflutnings þeirra af þessu öllu. The Sun birti í gær sex lygar fyrirsætunnar sem fjöl- miðlar hafa afhjúpað að undan- förnu. Þegar hefur verið greint frá fortíð fyrirsætunnar sem nektarfyrirsætu og vændiskonu en The Sun segir jafnframt frá því að fyrrverandi eigin- maður hennar, Alfie Karmal, hafi sagt hana vera haldna lygaáráttu en Mills fór frá honum fyrir skíðakennarann Milos. Æskuvinkona Mills, Mar- gret Ambler, hótaði Mills lögsókn vegna þeirrar yfirlýsingar að þær hefðu báðar verið misnotaðar kynferðislega. Margret hélt því fram að þetta hefði einungis átt við um sig. Mills rændi nafni þekkts rannsóknar- blaðamanns og þóttist vera hann í viðtölum í von um að það myndi hjálpa henni til að fá starf í sjón- varpi og Mark Mills, faðir Heather, hefur jafnframt lýst því yfir að Heather hafi margoft logið kyn- ferðislegri misnotkun upp á hann. The Sun segir jafnframt frá því að málskjölin viðkvæmu hafi verið send með faxi til AP-fréttastofunn- ar frá blaðamannabúð í London. Átta síðurnar voru augljóslega undirbúnar af lögfræðingi Heath- er, Anthony Julius, að mati The Sun en lögfræðistofa hans er í fimmtán mínútna fjarlægð frá búðinni og eigandi hennar segist muna eftir skolhærðri konu á aldrinum 35 til 45 ára faxa einhver skjöl á þessum tíma. freyrgigja@frettabladid.is Moss segir Mills lygara ERFIÐIR TÍMAR Heather Mills á undir högg að sækja heima fyrir en fræga fólkið í Bretlandi virðist standa þétt við bakið á Paul McCartney. STENDUR MEÐ MCCARTN- EY Kate Moss telur Mills vera bölvaðan lygara og segist vera tilbúin að bera vitni í skilnaðarmálinu. Rokkarinn Courtney Love segist hafa hjálpað söngvara Babyshamb- les og unnusta ofur- fyrirsætunnar Kate Moss, Pete Doherty, í meðferð. „Ég hringdi í hann og skipaði honum að fara í meðferð og leita sér hjálpar,“ segir Love í samtali við breska blaðið Daily Star. Einnig segir Love að hún hafi talað við móður kappans og Moss til að fá þær til að mæta með Doherty á AA fundi. „Þetta gerði ég til að halda Doherty og Moss saman og mér sýnist að það hafi gengið framar vonum.“ Love veit sínu viti um þessi mál því hún hefur sjálf gengið í gegn- um margar eiturlyfja- og áfengis- meðferðir. Rétti fram hjálparhönd COURTNEY LOVE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.