Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 22
26. október 2006 FIMMTUDAGUR22
fréttir og fróðleikur
FRÉTTASKÝRING
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
bjorn@frettabladid.is
Rjúpan, vinsælasta bráð íslenskra skotveiði-
manna, er eini villti hænsnfuglinn sem lifir
hér á landi. Hún er einnig nefnd fjallarjúpa,
þar sem hún lifir oftar en ekki uppi á
heiðum og upp til fjalla. Rjúpan er frekar
þéttvaxin með stutta breiða vængi. Yfir
varptímann er búningur hennar brúnleitur
og verður karrinn, karlfuglinn, grádílóttur en
kvenfuglinn guldílóttur.
Litaskipti rjúpunnar eru henn-
ar aðaleinkenni. Meðal frekari
einkenna eru rauður kambur
karlfuglsins fyrir ofan
augu, en kven-
fuglinn er hvítur
á kviðnum allt
árið. Vetrarbúningur
rjúpunnar er hvítur.
Hvenær má veiða?
Rjúpan er vinsælasti jólamatur Íslendinga. Á
öðrum tímum er rjúpan sjaldan á boðstól-
um en veiðitímabilið stendur frá 15. október
til 22. desember. Rjúpan lifir að miklu leyti
á fjalldrapa, grasvíði og berjum og er kjöt
rjúpunnar af þeim ástæðum dæmi
um náttúrulega „kryddaða“
villibráð. Aðalfæða rjúpunnar
yfir sumartímann eru kornsúru-
laukar.
Hver fylgist með stærð rjúpna-
stofnsins?
Náttúrufræðistofnun hefur
rannsakað íslenska rjúpnastofninn
ítarlega á síðustu áratugum. Að mestu
hafa rannsóknirnar snúist um að skoða
vistfræði og lífsferil rjúpunnar og áhrif veiða
á afkomu rjúpnastofnsins frá ári til árs.
Nokkuð nákvæm vöktun á rjúpnastofninum
fer fram á vegum Náttúrufræðistofnunar
og fuglaáhugamanna víða um land. Með
vöktuninni á vegum Náttúrufræðistofnunar
hafa umfangsmiklar rjúpnarannsóknir verið
stundaðar í áratugi. Þessar rannsóknir hafa
snúist um að kanna ýmsa þætti í vist-
fræði og lífsferli rjúpunnar og einnig áhrif
skotveiða á afkomu rjúpnastofnsins. Auk
þessara rannsókna hefur
Náttúrufræðistofnun séð um að
skipuleggja vöktun rjúpnastofnsins og sjá
sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar og
áhugamenn víða um land um framkvæmd
vöktunarinnar. Vöktunin snýst öðru fremur
um að hafa yfirsýn yfir rjúpnastofninn til
þess að geta brugðist við með réttum hætti
ef eitthvað kemur upp á.
FBL-GREINING: RJÚPAN OG RANNSÓKNIR
Rjúpan eini villti hænsnfuglinn
Prófkjör Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík fer fram á
morgun og laugardag. Sex
þingmenn berjast fyrir
pólitísku lífi sínu en mest
hefur farið fyrir baráttu
Björns Bjarnasonar og
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
um annað sætið. Nítján gefa
kost á sér, tólf karlar og sjö
konur.
Sjálfstæðisflokkurinn á níu þing-
menn í Reykjavík. Sjö þeirra sækj-
ast eftir endurkjöri en Guðmund-
ur Hallvarðsson og Sólveig
Pétursdóttir kveðja stjórnmálin í
vor.
Þingmennirnir Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra, Guðlaug-
ur Þór Þórðarson, Pétur Blöndal,
Sigurður Kári Kristjánsson, Birg-
ir Ármannsson og Ásta Möller
sækjast eftir endurkjöri og hafa
öll rekið áberandi kosningabar-
áttu síðustu daga og vikur. Spenna
og óvissa ríkir um uppskeru erfið-
is þeirra en Geir H. Haarde, for-
sætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, þarf ekki að
óttast um sína stöðu – hann sækist
einn eftir fyrsta sætinu og hefur
ekki háð prófkjörsbaráttu.
Fjórir aðrir frambjóðendur
hafa rekið afar sýnilega baráttu,
þau Guðfinna Bjarnadóttir rektor
og Illugi Gunnarsson hagfræðing-
ur sem bæði sækjast eftir þriðja
sæti, Dögg Pálsdóttir hæstaréttar-
lögmaður sem stefnir á fjórða
sæti og Sigríður Andersen lög-
fræðingur sem sækist eftir 5.-7.
sæti. Minna hefur farið fyrir bar-
áttu annarra.
Mat flokksbundinna sjálfstæð-
ismanna og annarra áhugamanna
um stjórnmál sem Fréttablaðið
ræddi við er að það séu einmitt
helst fjórmenningarnir sem ógni
sitjandi þingmönnum. Möguleikar
annarra á að hljóta „öruggt“ sæti
séu minni.
Konur og ungir karlar
Staða kvenna innan Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík var mjög til
umræðu fyrir fjórum árum. Þá
hlutu tvær konur kosningu í níu
efstu sætin, þær Sólveig Péturs-
dóttir og Ásta Möller. Ásta skipaði
fimmta sætið í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður og varð varaþing-
maður eftir kosningarnar vorið
2003. Hún tók svo fast sæti á
Alþingi þegar Davíð Oddsson lét
af þingmennsku 2005.
Heyra má innan úr flokknum
að margir ætli nú að huga betur en
síðast að kynjaskiptingu við val á
frambjóðendum. Það verði ekki
látið spyrjast um reykvíska sjálf-
stæðismenn að þeir vilji ekki veg
kvenna í stjórnmálum jafnmikinn
og karlanna. Á því græða kven-
frambjóðendur þó kjósendur horfi
ekki síður – og jafnvel heldur – til
annarra þátta í fari þeirra og
stefnumálum.
Auk slælegrar útkomu kvenna
síðast vakti helst athygli að þrír
ungir karlmenn hlutu góða kosn-
ingu. Birgir Ármannsson, Guð-
laugur Þór Þórðarson og Sigurður
Kári Kristjánsson hlutu allir sæti
ofarlega á listum og þingmennsku
í framhaldinu. Allir vilja þeir
halda störfum sínum og eru nú
kjörtímabilinu reyndari.
Baráttan um annað sætið
Barátta Björns og Guðlaugs Þórs
um annað sætið í prófkjörinu (sá
er hlýtur það skipar efsta sætið á
öðrum hvorum framboðslistanum
í vor) hefur verið fréttnæmust og
helst til umræðu í heitum pottum
og á kaffistofum. Pétur H. Blöndal
sækist raunar eftir 2.-3. sæti en í
vangaveltum um annað sætið hafa
sjónir manna síður beinst að
honum.
Klippt og skorið má segja að
eldri flokksmenn muni kjósa
Björn en þeir yngri Guðlaug Þór.
Ályktun Sambands ungra sjálf-
stæðismanna gegn íslenskri leyni-
þjónustu, fundur Geirs H. Haarde
með Birni í Valhöll og nafnlaus
kvörtun vegna flokksskrár eru
nefnd til marks um hörkuna í bar-
áttu Björns og Guðlaugs Þórs.
Ályktunin hefur verið sögð hafa
beinst gegn Birni, fundurinn til að
sætta hann og flokksskrármálið til
að sverta Guðlaug. Sjálfstæðis-
maður sem hefur fylgst grannt
með prófkjörum flokksins um ára-
bil segir að þrátt fyrir áhuga
afmarkaðra hópa á málum sem
þessum, hafi þau lítið að segja
þegar upp er staðið. Þorri flokks-
manna líti til verka, stefnu og
stöðu manna en ekki upphlaupa
nokkrum dögum fyrir prófkjör.
Upphlaup ráða ekki úrslitum
UTAN KJÖRFUNDAR Um 7.500 greiddu atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir fjórum árum. Þótt eiginleg kosning
fari fram á morgun og á laugardag hafa þegar nokkur hundruð manns greitt atkvæði utan kjörfundar.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
FRAMKVÆMD
Kosið er í Valhöll á morgun en á
sjö kjörstöðum á laugardag. Kosn-
ingu lýkur klukkan sex á laugardag
og er þá fyrstu talna að vænta.
Félagsbundnir sjálfstæðismenn
sem orðnir eru sextán ára mega
kjósa sem og stuðningsmenn
flokksins sem hafa undirritað inn-
tökubeiðni fyrir lok kjörfundar.
7.499 kusu í prófkjörinu fyrir
fjórum árum.
NÍTJÁN TAKA ÞÁTT
1. sæti Geir H. Haarde forsætisráðherra.
2. sæti Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarsson alþingismaður.
2.-3. sæti Pétur H. Blöndal alþingismaður.
3. sæti Ásta Möller alþingismaður.
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík.
Illugi Gunnarsson hagfræðingur.
3.-5. sæti Birgir Ármannsson alþingsmaður.
Steinn Kárason umhverfishagfræðingur.
4. sæti Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður.
Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður.
5.-7. sæti Sigríður Andersen lögfræðingur.
6. sæti Jóhann Páll Símonarson sjómaður.
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur.
Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna.
7.-8. sæti Vilborg G. Hansen landfræðingur.
8. sæti Marvin Ívarsson byggingafræðingur.
9. sæti Grazyna M. Okuniewska hjúkrunarfræðingur.
Þorbergur Aðalsteinsson, sölu- og markaðsstjóri.
> Hlutfall Íslendinga yfir kjörþyngd
á aldrinum 15-74 ára
Svona erum við
57
%
39
%
KARLAR
KONUR
Heimild: Hagstofa Íslands
Valið á lista
Helstu dagsetningar
27.-28. október Sjálfstæðis-
flokkurinn í Reykjavík.
28.-29. október Samfylkingin
í Norðvesturkjördæmi.
31. október Póstkosningu
Samfylkingar í Norðaustur-
kjördæmi lýkur.
1. nóvember Póstkosning VG
í Norðausturkjördæmi hefst.
Lýkur 15. nóv.
3. nóvember Póstkosning
Framsóknarflokks í Norð-
vesturkjördæmi hefst. Lýkur
17. nóvember.
4. nóvember Kjördæmisþing
Framsóknarflokksins í Suð-
vesturkjördæmi og Samfylk-
ingin í Suðurkjördæmi og
Suðvesturkjördæmi.
11. nóvember Samfylkingin
í Reykjavík og Sjálfstæðis-
flokkurinn í Suðurkjördæmi
og Suðvesturkjördæmi.
15. nóv Póstkosningu vinstri-
grænna í Norðausturkjör-
dæmi lýkur.
17. nóvember Póstkosningu
Framsóknarflokks í Norð-
vesturkjördæmi lýkur.
25. nóvember Sjálfstæðis-
flokkurinn í Norðausturkjör-
dæmi.
2. desember vinstri-græn í
Reykjavík og Suðvesturkjör-
dæmi.
– Vel lesið
Vertu inní
Fréttablaðinu
með þitt
kynningarefni
Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband
í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is
Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög
Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni
Notaðu mest lesna* blað landsins til að
dreifa kynningarefni til þinna viðskiptavina
*Gallup maí 2006