Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 87

Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 87
 26. október 2006 FIMMTUDAGUR47 The Departed, nýjasta mynd leik- stjórans Martins Scorsese, verður frumsýnd á Íslandi á morgun. Myndin hefur fengið góðar viðtök- ur gagnrýnenda sem keppast við að hlaða hana lofi og eina ferðina enn er byrjað að spá leikstjóran- um Óskarsverðlaununum en hann missti síðast af þeim árið 2004 með The Aviator. The Departed er þvottekta glæpamynd sem er byggð á Hong Kong-myndinni Infernal Affairs og menn eru því mikið með byss- urnar á lofti. Scorsese kann vel til verka þegar glæpir, fúlmenni og ofbeldisverk eru annars vegar og nægir í því sambandi að nefna Mean Streets, Taxi Driver, Good- fellas og Casino. Jack Nicholson fer mikinn í myndinni sem glæpaforinginn Frank Costello sem gerir lögregl- unni í Boston lífið leitt. Ofurkapp er lagt á að koma kauða bak við lás og slá en hann er háll sem áll. Yfir- völd bregða því á það ráð að koma nýútskrifuðum lögreglumanni, Billy Costigan, sem er tengdur glæpaklíku Costellos fjölskyldu- böndum, inn í innsta hring gengis- ins. Costello hefur svo aftur á móti komið einum sinna manna, Colin Sullivan, í raðir lögreglunnar þannig að báðir hópar fylgjast grannt hvor með öðrum. Leonardo DiCaprio leikur Billy og Matt Damon fer með hlutverk Colins en þetta er í þriðja sinn sem DiCaprio leikur undir stjórn Scorsese en samstarf þeirra hófst með Gangs of New York og hélt svo áfram með The Aviator. Báða aðila tekur fljótt að gruna að þeir séu með svikara í sínum röðum og uppljóstrararnir tveir leggja því ofurkapp á að fletta hvor ofan af öðrum þar sem það segir sig sjálft að sá þeirra sem fyrr verður dreginn fram í dags- ljósið er dauðans matur. Refskák- in sem þeir tefla blindandi verður til þess að þeir flækjast enn frek- ar í vef svika og lyga þannig að blóðugt lokauppgjör er óumflýj- anlegt. Nicholson, DiCaprio og Damon bera myndina uppi en eru dyggi- lega studdir öflugum aukaleikur- um á borð við Martin Sheen, Alec Baldwin, Mark Wahlberg og breska erkitöffaranum Ray Winstone. Löggu- og bófahasar hjá Scorsese FANTABRÖGÐ Leonardo Di Caprio fær að kenna á tuddanum Ray Winstone í The Departed en menn eru ekki teknir neinum vettlingatökum þegar þeir lenda upp á kant við Jack Nicholson. FRUMSÝNDAR UM HELGINA DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM The Departed Internet Movie Database - 8.6/10 Rottentomatoes.com - 93% = Fersk Metacritic.com - 85/100 Fearless Internet Movie Data- base - 7.7/10 Rottentomatoes. com - 72% = Fersk Metacritic.com - 70/100 The Wendell Baker Story Internet Movie Database - 5.7/10 Rottentomatoes.com - Dómar ekki komnir Metacritic.com - Dómar ekki komnir Barnyard Internet Movie Data- base - 4.7/10 Rottentomatoes.com - 25% = Rotin Metacritic.com - 42/100 Tölvuteiknimyndin Barnyard segir frá líflegri tilveru dýra á bóndabæ nokkrum. Gamli bónd- inn telur sig ráða lögum og lofum á bænum en þegar hann sér ekki til reisir búfénaður hans og hús- dýr sig á tvö fætur, horfir á sjón- varp, sprellar og skemmtir sér. Gamla nautið Ben hefur vit fyrir hinum dýrunum og gætir þess að bóndinn komist ekki að þessu leyndarmáli þeirra og sér einnig reglulega um að treysta girðingar og varnir bæjarins svo að sléttuúlfar haldi sig fjarri. Otis er sonur Bens og er alger andstæða föður síns. Hann er sprelligosi mikill og hugsar um það eitt að lifa og leika sér. Ábyrgð- arleysi hans er pabba gamla þyrn- ir í augum og þegar Ben missir heilsuna fer allt úr böndunum þar sem sonurinn hefur ekki dug í sér til að fylla skarð föðurins. Bónda fer að gruna að ekki sé allt með felldu og leyndarmál dýr- anna er í hættu auk þess sem sléttuúlfarnir fikra sig nær og vilja þurran blóði væta góm. Öll spjót standa því á glaumgosanum Otis sem þarf að fara að hugsa sinn gang alvarlega. Barnyard er frumsýnd með íslensku og ensku tali á morgun. Dýragrín SVEITASÆLA Gamla nautið Ben reynir að hafa vit fyrir Otis syni sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.