Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 26
 26. október 2006 FIMMTUDAGUR26 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 6.500 +0,25% Fjöldi viðskipta: 267 Velta: 3.106 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 67,00 -0,45% ... Alfesca 5,02 +0,40% ... Atlantic Petroleum 605,00 +0,00% ... Atorka 6,44 -0,31% ... Avion 34,30 +0,00% ... Bakkavör 60,10 +1,52% ... Dagsbrún 5,03 -0,40% ... FL Group 24,00 +1,27% ... Glitnir 23,60 +0,43% ... Kaupþing 865,00 +0,47% ... Landsbankinn 26,90 -0,37% ... Marel 80,00 -1,24% ... Mosaic Fashions 17,00 -0,59% ... Straumur-Burðarás 17,30 +0,58% ... Össur 127,50 +0,79% MESTA HÆKKUN Bakkavör 1,52% FL Group 1,27% Össur 0,79% MESTA LÆKKUN Marel 1,24% Exista 0,90% Mosaic 0,59% Dow Jones, hin kunna bandaríska hlutabréfavísitala, fór í fyrsta skipti yfir tólf þúsund stig í síðustu viku eftir nær fjögurra ára samfelldar hækkanir á bandarískum mörkuð- um. Til eru sérfræðingar sem spá henni enn ofar. James Glassman, sem skrifaði metsölubókina „Dow 36,000“ árið 1999, spáir því að vísi- talan fari í 36.000 stig í síðasta lagi eftir fimmtán ár. Hann segir að hlutabréf séu hreinlega betri kostur en skuldabréf til lengri tíma. Charles Kadlec, annar metsölu- höfundur, gengur ennþá lengra. „Ég er enn sannfærðari en ég var fyrir fimm árum að við erum að hefja mikið góðæristímabil og að Dow muni rísa í 100 þúsund stig um miðj- an þriðja áratug þessarar aldar,“ segir hann í samtali við fréttaveit- una Bloomberg. Meginforsendur Kadlecs fyrir áframhaldandi hækkunum eru aukin framleiðni í bandaríska hag- kerfinu, fjárfestingar þeirra sem eru af „baby-boom“ kynslóðinni, lægri skattar, hófleg verðbólga og lítill stríðsrekstur. Kadlec bendir á að fyrir utan síðasttalda þáttinn hafi forsendur hans gengið eftir. Miðað við útreikninga Glass- mans þarf Dow Jones að hækka um 7,6 prósent að meðaltali á ári þannig að vísitalan verði orðin þrefalt hærri árið 2021. Árleg meðaltals- ávöxtun hennar hefur verið fimm prósent frá árinu 1928 en tólf pró- sent á ári undanfarna þrjá áratugi. Hækki vísitalan um tólf prósent á ári gengur spádómur Kadlecs eftir. En þeir sem hafa farið eftir ráðum þessara manna kunna þeim kannski litlar þakkir fyrir fyrri ráð. Þegar bækur þeirra komu út árið 1999 voru hlutabréfamarkaðir á mikilli uppleið. Aðeins ári síðar greip mikill skjálfti um sig meðal fjárfesta þegar netbólan sprakk og tveimur árum eftir útgáfu bókanna hafði Dow Jones-vísitalan hrunið um 29 prósent. Glassman bendir á að spádómur sinn hafi ekki verið rangur; hann hafi bara verið aðeins fljótur á sér, enda reiknað með að vísitalan myndi þrefaldast á tímabilinu frá 1999 til 2005. „Einn lærdómur sem draga má af 12 þúsund stiga takmarkinu er sá að til lengri tíma eru hlutabréf ótrúlega stöðug. En til skemmri tíma eru hlutabréf afar, afar hættu- leg,“ segir Glassman við Bloom- berg. eggert@frettabladid.is Sér Dow Jones í 36 þúsund stigum í síðasta lagi 2021 Til að Dow Jones nái 36.000 stigum þarf 7,6 prósenta ávöxtun á ári. Annar sér- fræðingur spáir hlutabréfavísitölunni í 100 þúsund stigum árið 2025. HVAÐ ER DOW JONES? Dow Jones-vísitalan er ein elsta hlutabréfavísitala heims en hún hefur verið reiknuð frá 1896. Samanstendur hún af 30 bandarískum fyrirtækjum sem eru rótgróin framleiðslu- og iðn- aðarfyrirtæki. Þau endurspegla ekki bandarískan hlutabréfamarkað og því má segja að vísitalan gefi ekki góða mynd almennt af hlutabréfaverði í Bandaríkjunum. Vægi fyrirtækjanna er ekki í samræmi við markaðsvirði þeirra þar sem vísitalan er reiknuð sem einfalt meðaltal af verði hluta- bréfa fyrirtækjanna en ekki verðmæti félaganna eins og oftast tíðkast. Heimild: Hálffimm fréttir Kaupþings 18.10.2006. Bandaríska fyrirtækið Barr Pharmaceuticals lauk í gær form- lega við kaupin á króatíska sam- heitalyfjafyrirtækinu PLIVA. Barr, sem keppti við íslenska samheitalyfjafyrirtækið Actavis um að eignast PLIVA, er þar með orðið þriðja stærsta samheita- lyfjafyrirtæki í heiminum með starfsemi í 30 löndum og um átta þúsund starfsmenn. Hefði Actavis haft betur í slagnum væri fyrir- tækið nú í sömu stöðu, þriðja stærst á sínu sviði í heiminum. Actavis reyndi svokallaða fjandsamlega yfirtöku á PLIVA, gegn vilja stjórnenda fyrirtækis- ins, en fyrirtækið var ekki tilbúið að greiða jafnhátt verð og Barr sem greiddi fyrir 2,5 milljarða bandaríkjadala, eða yfir 170 millj- arða íslenskra króna. Yfirtöku- ferlið sjálft kostaði hins vegar Actavis tæplega 2,3 milljarða króna þegar upp var staðið. Núna skoðar Actavis hins vegar aðra kosti og íhugar smærri yfir- tökur. Róbert Wessman, forstjóri fyrirtækisins, segir 10 til 20 fyrir- tæki í siktinu, aðallega í Evrópu, og boðar fréttir af kaupum fyrir áramót. Fyrirtækið telur kostnað- inn við slaginn um PLIVA ásætt- anlegan miðað við umfang verk- efnisins og burði félagsins. - óká HÖFUÐSTÖÐVAR PLIVA Í ZAGREB Króatíska samheitalyfjafyrirtækið PLIVA er nú form- lega hluti af Barr í Bandaríkjunum. Formlega lokið við kaupin á PLIVA Barr Pharmaceuticals er þriðja stærsta á sínu sviði. Actavis skoðar aðra kosti. FL Group hefur undirritað lána- samning að jafnvirði um 21,5 millj- arða króna til fjármögnunar á hluta af hlutafjáreign FL Group í Glitni. Lánið er til þriggja ára með endur- greiðslu höfuðstóls í lok lánstíma. Ítalska bankasamstæðan UniCred- it Group, með milligöngu þýska bankans Bayerische Hypo- und Vereinsbank AG, leiddi lántökuna sem var í formi sambankaláns. FL Group átti í upphafi árs rétt um 10 prósent hlutafjár í Glitni en jók hann í 27,6 prósent í vor og sumar. Haft er eftir Hannesi Smárasyni, forstjóra FL Group, í tilkynningu frá félaginu að lántak- an marki tímamót fyrir FL Group. Þátttaka erlendu bankanna sé viðu rkenning og sýni það traust sem FL Group hefur áunnið sér í alþjóð- legum fjármálaheimi. Þá segir enn fremur að sveigj- anleiki til fjárfestinga aukist til muna við lántökuna og geri sala FL Group á öllum hlut félagsins í Ice- landair Group það að verkum að félagið sé vel í stakk búið til að takast á við þau verkefni sem til skoðunar eru., en meðal þess eru fyrirtæki í breskum afþreyingar- iðnaði. - jab GLITNIR FL Group hefur undirritað 21,5 milljarða króna lán til fjármögnunar á hluta af 27,6 prósenta eignarhlut sínum í Glitni. Fjármagna kaup í Glitni Njósnað úr háloftunum Í Kaupmannahöfn hafa borgaryfirvöld tekið tæknina í sína notkun og samkeyra um þessar mundir loftmyndir af borginni og fasteignaskrá með það fyrir augum að finna viðbyggingar sem reistar hafa verið í óleyfi, eða án þess að tilkynnt væri um það. Af slíkum byggingum sem hvergi koma fram er nefnilega ekki greiddur eigna- skattur. Spurning er hvort Fasteignamatið hér heima fari svipaðar leiðir. Ekki vantar myndirnar af eignunum, bæði er á vefnum borgarvefsja. is að finna ítarlegar upplýsingar og svo er náttúrulega líka að finna á netinu gervihnattamyndir Google Earth sem ná yfir allt land. Myndirnar sem notast er við í Danmörku virðast þó heldur nákvæmari en þær sem allur almenningur hefur aðgang að á netinu því þar mun víst hægt að greina smáatriði allt niður í niðurföll við gangstéttarbrúnir. Ætli þyrfti ekki heimild persónuverndar til að skoða viðlíka myndir hér? Vogun vinnur Vogun, félag sem þeir Árni Vilhjálmsson og Kristján Loftsson fara fyrir, jók hlut sinn í HB Granda í gær upp í tæp 35 prósent. Félagið er eftir sem áður stærsti eigandinn í Granda. Seljandi var Landsbankinn sem geymdi bréfin fyrir viðskiptavin sinn. Kaupþing er annar stærsti eigandinn í Granda með fjórð- ungshlut og hefur komið sér upp óþægilegri stöðu fyrir ráðandi hluthafa. Hins vegar hefur bank- inn farið mjög leynt með áform sín. Kaupin gætu því styrkt stöðu Vogunar. Peningaskápurinn ... vaxtaauki! 10% A RG U S / 06 -0 47 2 Kynntu þér málið á spron.is MARKAÐSPUNKTAR Nordea Bank, stærsti banki Norður- landanna, skilaði jafnvirði 74,8 millj- arða króna hagnaði á þriðja ársfjórð- ungi. Greiningardeild Landsbankans segir uppgjörið gott og enda reyndist hagnaður fjórðungsins 55 prósentum hærri en á sama tíma í fyrra. Bandaríski bílaframleiðandinn Gen- eral Motors skilaði 115 milljóna dala taprekstri á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til taps upp á 7,8 milljarða íslenskra króna og talsvert meira en búist var við. Hollenska fyrirtækjasamtæðan Stork NV skilaði uppgjöri sínu fyrir þriðja ársfjórðung í gær. Þar kemur fram að hagnaður af matvælavélahluta fyrir- tækisins, sem Marel hefur augastað á, minnkaði um 1,2 milljónir evra eða 103 milljónir króna á milli ára. Straumur-Burðarás fjárfestingar- banki, Bakkavör og Landsbankinn skila í dag uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung og eru það fyrstu félögin í úrvalsvísitölunni til að birta níu mánaða uppgjör. Greiningardeildir bankanna spá Bakkavör góðu gengi á fjórðungn- um og gera ráð fyrir að tekjur félagsins aukist nokkuð milli árs- fjórðunga. Spá bankanna hljóðar upp á hagnað á bilinu 1.464 milljón- ir króna til 2.043 milljóna. Yrði það nokkur aukning frá þriðja ársfjórð- ungi í fyrra en þá skilaði félagið 1.166 milljóna króna hagnaði. Greiningardeildirnar gera ráð fyrir að hagnaður Straums-Burðar- áss fjárfestingarbanka verði á bil- inu 5 til 5,3 milljarðar á þriðja árs- fjórðungi. Útlánasafn bankans hefur vaxið mjög á árinu og er gert ráð fyrir áframhaldandi vexti og aukningu í hreinum vaxtatekjum. Nokkuð ber í milli spáa Glitnis og Kaupþings um hagnað Lands- bankans á þriðja ársfjórðungi. Gerir Glitnir ráð fyrir 6,17 millj- arða króna hagnaði á meðan Kaup- þing spáir 7,78 milljarða króna hagnaði, sem myndi nema 55,8 pró- senta aukningu hagnaðar milli þriðju ársfjórðunga 2005 og 2006. Á þriðja ársfjórðungi í fyrra nam hagnaður bankans tæpum fimm milljörðum króna. - hhs Góðs uppgjörs vænst 3. ÁRSFJÓRÐUNGUR – SAMANBURÐUR Á SPÁM* Glitnir Kaupþing Landsbankinn Bakkavör 2043,6 1641 1464 Landsbankinn 6174 7780 X Straumur-Burðarás 5347 5000 5073 * Í milljónum króna Össur hf. er óslípaður demantur, segir fjármálafyrirtækið ABG Sundal Collier í nýrri greiningu á fyrirtækinu sem út kom í gær. Fyr- irtækið mælir með því að fjárfestar haldi í bréf sín í Össuri og telur markaðsvirði þeirra sjö prósentum undir eigin verðmati. Í greiningunni er Össuri spáð 10 prósenta vexti á ári fram til ársins 2010 og að EBITDA fyrirtækisins (hagnaður fyrir afskriftir og skatta) aukist úr 16 prósentum í að minnsta kosti 23 prósent á sama tíma. Engu að síður er haft orð á því að fjárfest- ingu í félagi í jafnörum vexti og Össur er fylgi ávallt nokkur áhætta, en um leið bent á að fyrirtækinu hafi hingað til gengið vel að laga fyrirtækjakaup að rekstri sínum. Greiningin er sú fyrsta erlenda sem gefin hefur verið út um Össur, en ABG Sundal Collier er með skrif- stofur í Björgvin, Kaupmannahöfn, London, Ósló, Stokkhólmi og New York. - óká Óslípaður demantur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.