Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 34
[ ]
Gucci sá það ekki
fyrir sér að hægt
væri að komast í
gegnum haustið
2006 án þess að
klæðast pelsvesti.
Pelsar eru ekki bara fallegir heldur endast
þeir árum saman og eru einstaklega hlýir.
Í gömlum skrítlum sagði oft frá velmegandi
eiginmönnum sem gáfu konum sínum loðfeldi
þegar þeir höfðu gert eitthvað af sér. Fáar flík-
ur þóttu jafn eftirsóknarverðar og minkapelsar
og þær sem sáust spóka sig í slíkum yfirhöfn-
um voru oftar en ekki yfirstéttardömur, óperu-
söngkonur eða leikkonur. Í dag er staðan svo-
lítið breytt. Flestar konur hafa efni á að veita
sér þann munað að klæðast loðfeldi, hvort
sem hann er keyptur notaður eða nýr.
Hvenær mannskepnan byrjaði að nýta
dýrafeldi til að gera yfirhafnir getur enginn
sagt til um en telja má að þetta hafi tíðkast
frá því löngu fyrir steinöld. Refur, kanína,
selur, minkur, otur og úlfur eru meðal
þeirra dýrategunda sem fólk hefur gert sér
fatnað úr, allt eftir því hvaða dýr er að finna
í hverju landi. mhg@frettabladid.is
Blaðamaðurinn Edward R. Murrow kveikir hér í sígarettu fyrir kyntáknið knáa
Marilyn Monroe árið 1955. Í þá daga voru fáir sem mótmæltu reykingum og
enn færri höfðu neikvæðar skoðanir á því að dömur klæddust pelsum.
Fallegur svartur
loðfeldur í kósakkastíl
eftir Giorgio Armani.
Fyrirsætan Stella
Tennant sýnir loðfeld
frá Jean Paul Gaultier
í París síðasta sumar.
Flottur pels-
jakki frá Gucci.
Unaðslegir
loðfeldir
Leður og loðfeldir
fara vel saman. Kim
Hersov mætir hér í
partí til Ralphs Laur-
en íklædd gallabux-
um, leðurstígvélum,
litlum leðurjakka
og með loðfeld yfir
herðarnar.
Ástralski hönnuður-
inn Camilla Franks
í villtum og hráum
loðfeldi.
Tara Palmer-
Tomkinson
mætir hér með
hvítan loðfeld
á frumsýningu
myndarinnar
The Aryan
Couple í Lond-
on fyrr í þess-
um mánuði.
Sharon Stone
í fallegum
loðfeldi.
Hún er vígaleg
þessi fyrirsæta
sem í vor sýndi
nýjustu afurðir
rússneska hönn-
uðarins Denis
Simachev fyrir
haustið 2006.
Haustútsölur standa nú yfir í mörgum verslunum. Nú er
því hægt að gera góð kaup á ýmsum flíkum.
������������������������������������������������
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Þægilegur, saumlaus og fallegur fatnaður. S. Gunnbjörnsson ehf.
Nýtt á Íslandi! NO STRESS