Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 4
4 26. október 2006 FIMMTUDAGUR
GENGIÐ 25.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,4238
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
67,94 68,26
127,6 128,22
85,48 85,96
11,463 11,531
10,238 10,298
9,277 9,331
0,5701 0,5735
99,96 100,56
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Hverfisráð miðborgar Reykjavíkur
íhugar að láta bera saman tölfræði
um ofbeldi í Reykjavík og í öðrum
borgum.
BORGARMÁL
Rannsaka ofbeldi
Ný sending af jólasettum
frá Panduro Hobby væntanleg eftir helgi
SKRIFSTOFUVÖRUR
Borgartúni 29 • Sími 515 5170 • Opið virka daga kl. 8-18 og laugardaga kl. 11-16
www.oddi.is
BANDARÍKIN, AP Talsmenn Banda-
ríkjastjórnar hafa undanfarið
reynt að sannfæra landsmenn um
réttmæti Íraksstríðsins og að sigur
þar sé í augsýn. Segja stjórnmála-
skýrendur eina helstu ástæðu
þessa vera þingkosningarnar sem
nú eru á næsta leiti í Bandaríkjun-
um.
Tony Snow, talsmaður Hvíta
hússins, hefur undanfarið reynt að
útskýra fyrir fréttamönnum
hvernig hægt sé að breyta her-
bragðinu án þess að hafa áhrif á
stefnu hersins í Írak og George W.
Bush forseti virðist vera farinn að
nota mildara orðalag þegar kemur
að áætlun hersins.
Þó gengur baráttan hægt og
ekki bætir úr skák að samkvæmt
tölum varnarmálaráðuneytisins
hafa 90 bandarískir hermenn far-
ist í Írak það sem af er október-
mánuði, en ekki hafa fleiri farist
þar á einum mánuði síðan árið
2004. Jafnframt hafa yfir 300
íraskir hermenn farist í október.
Bandaríski þjóðaröryggisráð-
gjafinn Stephen Hadley sagði
nýverið í samtali við fréttamenn
að ólíklegt væri að endir yrði bund-
inn á átökin í Írak fyrir lok setu
Bush í forsetastól, og samkvæmt
nýrri skoðanakönnun CNN sjón-
varpsstöðvarinnar telja eingöngu
20 prósent Bandaríkjamanna nú
að hægt sé að vinna stríðið. Fyrir
ári síðan var talan 40 prósent.
Þó reyna talsmenn stjórnarinn-
ar að sannfæra kjósendur um að
Bandaríkin hafi stjórn á atburðun-
um í Írak.
Á blaðamannafundi sem sjón-
varpað var frá Bagdad á þriðjudag
tilkynntu bandaríski sendiherrann
í Írak og æðsti maður hersins
bandarísku þjóðinni að búið væri
að ákveða tímasetningar fyrir
yfirtöku Íraksstjórnar á öryggis-
málum landsins, og yrði það á
næstu 12 til 18 mánuðum. Sagði
Zalmay Khalilzad sendiherra fasta
dagsetningu verða setta fyrir árs-
lok.
Talsmaður varnarmála Íraks,
Mowaffaq al-Rubaie, staðfesti
fregnirnar og sagði írösku stjórn-
ina hafa samþykkt áætlunina.
En í gær kom forsætisráðherra
Íraks opinberlega fram og sagði
það af og frá að stjórnin hefði sam-
þykkt að dagsetja brottför Banda-
ríkjahers frá stríðshrjáðu landinu.
„Þessi ríkisstjórn er fulltrúi
fyrir vilja fólksins og enginn hefur
rétt á að þröngva tímasetningum
upp á hana,“ sagði Nouri al-Maliki
á blaðamannafundi í gær.
„Ég er viss um að þetta er ekki
opinber stefna Bandaríkjastjórn-
ar, heldur afleiðing kosningaher-
ferðarinnar og við höfum ekki
miklar áhyggjur af henni.“
Um 147.000 bandarískir her-
menn eru nú í Írak, sem samsvar-
ar um helmingi íslensku þjóðar-
innar. smk@frettabladid.is
Bush boðar nýjar
áherslur í Íraksstríði
Stjórnmálaskýrendur segja nýjar áherslur Bush-stjórnarinnar í Írak vera kosn-
ingaáróður og að litlar líkur séu á því að bandaríski herinn geti dregið herlið
sitt til baka á næstunni, þrátt fyrir yfirlýsingar þar um.
Ég er viss um að [tíma-
setningin] er ekki opin-
ber stefna Bandaríkjastjórnar,
heldur afleiðing kosningaherferð-
arinnar og við höfum ekki miklar
áhyggjur af henni.
NOURI AL-MALIKI
FORSÆTISRÁÐHERRA ÍRAKS
HERMAÐUR KVADDUR Níutíu bandarískir hermenn hafa fallið í Írak það sem af er
októbermánuði og er myndin frá jarðarför eins þeirra sem féll 15. október. Fylgi
Bandaríkjamanna við stríðið fer ört minnkandi. Alls hefur 2.801 bandarískur hermað-
ur fallið í Írak síðan stríðið hófst fyrir 44 mánuðum.
BANASLYS Maðurinn sem fannst
látinn í ferjunni Norrænu í
síðustu viku hafði velt bíl sínum á
leið sinni til Seyðisfjarðar. Hann
hafði verið skoðaður af lækni á
sjúkrahúsinu á Egilsstöðum en
var ekki lagður inn. Tveimur
dögum síðar fannst hann látinn.
Talið er líklegt að banamein
mannsins hafi verið innvortis
blæðingar vegna áverka sem hann
hlaut í bílveltunni. Hún er nú
rannsökuð sem banaslys. Maður-
inn hét Þórður Einar Guðmunds-
son. Hann var 44 ára og búsettur í
Danmörku. Þórður Einar lætur
eftir sig þrjár dætur. - tsj, - þsj
Fannst látinn í Norrænu:
Lést vegna inn-
vortis blæðinga
ÞÝSKALAND, AP Þýska varnarmála-
ráðuneytið lætur nú rannsaka ljós-
myndir sem sýna einkennisklædda
þýska hermenn í Afganistan stilla
sér upp með hauskúpu, sem birtar
voru í þýska blaðinu Bild í gær. Á
einni þeirra heldur hermaður haus-
kúpunni við beruð kynfæri sín.
Samkvæmt frétt blaðsins voru
myndirnar teknar nærri Kabúl,
höfuðborg Afganistans, árið 2003.
Ekki kom fram hvernig blaðið
komst yfir myndirnar, en í frétt
blaðsins er tekið fram að líklegt sé
að hauskúpan komi úr „fjöldagröf“
sem mennirnir hefðu fundið
skammt frá Kabúl. Eins segir að
óvíst sé hvort höfuðkúpan hafi til-
heyrt Afgana eða sé frá tímum her-
náms Sovétríkjanna í Afganistan.
„Það er ljóst að slík hegðun
meðal þýskra hermanna er alls ekki
ásættanleg,“ hafði Bild eftir Franz
Josef Jung varnarmálaráðherra,
sem bætti því við að myndirnar
væru „andstyggilegar.“
Angela Merkel kanslari sór í
gær að þeir hermenn sem hefðu
tekið þátt í myndatökunni myndu
sæta alvarlegri hegningu.
Þýski herinn hefur fundið tvo
hermenn sem gætu tengst myndun-
um og er nú verið að yfirheyra þá.
Annar hefur ekki starfað í hernum
síðan árið 2003, en hinn er enn
starfandi hermaður.
Yfir 2.800 þýskir hermenn eru
nú á vegum NATO í Afganistan.
- smk
Bild birtir ljósmyndir af þýskum hermönnum í Afganistan:
Létu mynda sig með hauskúpu
HROTTALEGAR MYNDIR Þýska blaðið
Bild birti í gær ljósmyndir af þýskum
hermönnum með hauskúpu í Afganist-
an. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra segist telja að
aukin framlög til íslenskukennslu
fyrir innflytjendur á Íslandi feli í
sér minni fórnarkostnað heldur en
að þurfa að takast á við afleiðingar
þess að kenna þessum hópi ekki
íslensku. Þetta sagði dómsmálaráð-
herra í pallborðsumræðum á
málþingi hjá Útlendingastofnun í
gær.
Flestir fundarmanna tóku í
svipaðan streng. Töldu þeir
íslenskukunnáttu nauðsynlega
fyrir innflytjendur til að aðlagast
og eiga möguleika á bættum
kjörum. - gar
Björn Bjarnason á málþingi:
Borgar sig að
kenna nýbúum
meiri íslensku
STJÓRNMÁL Átta taka þátt í
prófkjöri Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi sem fram
fer með póstkosningu 3.-17.
nóvember. Alþingismennirnir
Kristinn H. Gunnarsson og
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra sækjast eftir fyrsta
sætinu og Herdís Á. Sæmundar-
dóttir, kennari og varaþingmaður,
sækist eftir öðru sæti.
Aðrir frambjóðendur eru
Albertína Eiríksdóttir umsjónar-
maður, G. Valdimar Valdemarsson
kerfisfræðingur, Heiðar Þór
Gunnarsson, Inga Ósk Jónsdóttir
viðskiptafræðingur og Valdimar
Sigurjónsson viðskiptalögfræð-
ingur. - bþs
Framsókn í Norðvestur:
Átta gefa kost á
sér í prófkjöri
LÖGREGLA Lögreglan á Húsavík
handtók í fyrrakvöld og fyrrinótt
sex menn sem höfðu í sínum
fórum 43 lítra af vodka og 14
þúsund sígarettupakka sem talið
er að hafi verið smyglað úr
rússnesku skipi sem kom með
fisk til Raufarhafnar í fyrradag.
Að sögn Sigurðar Brynjólfs-
sonar hjá lögreglunni á Húsavík
voru mennirnir teknir með
varninginn annars vegar á
Raufarhöfn og hins vegar á leið
þaðan vestur eftir þjóðveginum.
Málið er ekki að fullu upplýst og
voru þrír mannanna enn í haldi í
gærkvöld. Meðal hinna grunuðu
eru bæði Íslendingar og útlend-
ingar. - gar
Rússar heimsækja Raufarhöfn:
Smygluðu vodka
og sígarettum
TEHERAN, AP Mahmoud Ahmadin-
ejad, forseti Írans, bað þjóðþing
landsins um að
hafna frumvarpi
að lögum um að
taka þurfi
fingraför af
öllum Banda-
ríkjamönnum
sem ferðast til
Írans.
„Við eigum í
engum vandræð-
um með banda-
rísku þjóðina. Við
erum eingöngu á
móti yfirgangi og
hroka banda-
rískra stjórn-
valda,“ sagði Ahmadinejad.
„Þrátt fyrir ákvörðun Banda-
ríkjastjórnar um að láta taka
fingraför af írönskum ferða-
mönnum sem koma til Bandaríkj-
anna, þá höfum við beðið þing-
menn um að grípa ekki til
gagnráðstafana.“ - gb
Bandaríkjamenn í Íran:
Þurfa ekki að
sýna fingraför
MAHMOUD
AHMADINEJAD