Fréttablaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 2
Atli, er jólaundirbúningurinn
að drepa sjálf jólin?
Þingfest hefur verið í
Héraðsdómi Reykjavíkur mál
fimm einstaklinga, þrigga karl-
manna og tveggja kvenna, vegna
tilraunar þeirra til stórfellds
smygls á kókaíni hingað til
lands.
Málið kom upp þegar átján ára
stúlka var tekin á Keflavíkur-
flugvelli 9. ágúst með tæp tvö
kíló af kókaíni. Með henni í för
var maður á þrítugsaldri og voru
þau að koma frá Spáni um Lond-
on. Hann var einnig handtekinn.
Við rannsókn vatt málið fljót-
lega upp á sig og var þrennt til
viðbótar, kona og tveir karlmenn,
handtekin. Í ljós kom að 18 ára
stúlka var burðardýr, en hin fjög-
ur komu að meira eða minna leyti
að skipulagningu smyglsins. Eitt
þeirra hafði farið út til Spánar í
lok júlí, að beiðni óþekkts vit-
orðsmanns og móttekið fíkniefn-
in. 5. ágúst afhenti hann svo burð-
ardýrinu og samfylgdarmanni
kókaínið á Benidorm, þaðan sem
því skyldi komið hingað til lands.
Efnið var falið í ferðatösku sem
unga stúlkan ætlaði að taka með
sér inn í landið.
Auk þessa er einn karlmann-
anna ákærður fyrir að hafa
geymt í íbúð sinni nokkuð af hassi
og tóbaksblönduðu kannabisefni.
Burðardýrið var aðeins 18 ára
„Það sjá allir hversu
fráleit staða það er að aðalstjórn
íþróttafélags bæjarins standi í
málaferlum við bæjaryfirvöld
sem í gegnum tíðina hafa gert sitt
til að styðja við bakið á félaginu,“
segir Jómundur Guðmarsson,
bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.
Íþróttafélagið Grótta hefur
kært Seltjarnarnesbæ til
úrskurðarnefndar um skipulags-
og byggingarmál og krafist þess
að nýtt deiliskipulag á Hrólfs-
skálamel verði fellt úr gildi. Í nýja
skipulaginu sé ekki gert ráð fyrir
eitt þúsund fermetra viðbyggingu
við íþróttamiðstöðina eins og sam-
þykkt hafi verið í bindandi íbúa-
kosningu á Seltjarnarnesi.
„Auðvitað eru menn hjá bænum
ekkert sáttir við það og við ekki
heldur að þetta þurfi að fara svona
langt,“ segir Bjarni Torfi Álfþórs-
son, formaður Gróttu. „En það
hefur mikið gerst á síðustu dögum
sem gefur okkur ástæðu til að
ætla að við náum saman og að það
finnist einhver málamiðlun svo
allir geti unað glaðir við sitt.“
Bæjarstjórinn segist vongóður
um að málið leysist í sátt:
„Málarekstur fyrir úrskurðar-
nefndinni tekur afar langan tíma
og það þýðir bara að niðurstaða
myndi dragast á langinn. Ég hef
fundið fyrir vaxandi skilningi á
því sjónarmiði meðal þeirra sem
starfa að málefnum Gróttu að það
yrði hvorki bænum né íþrótta-
félaginu til hagsbóta.“
Jónmundur segir kæruna á
misskilningi byggða og í raun and-
stæða hagsmunum Gróttu. Í fyrir-
huguðu deiliskipulagi fyrir
íþróttamiðstöðina sé gert ráð fyrir
nýjum íþróttamannvirkjum á
rúmlega tvö þúsund fermetrum.
Þetta rými sé þó eyrnamerkt
líkamsrækt, stúkubyggingu,
barnasundlaug og fleiru en ekki
fimleikum eins og Grótta vildi
með eitt þúsund fermetrana.
„Þessir þúsund fermetrar sem
talað er um að vanti eru því aug-
ljóslega til staðar í fyrirhuguðu
deiliskipulagi íþróttamiðstöðvar-
innar,“ segir bæjarstjórinn.
Að sögn Jónmundar á söluvirði
byggingarréttar á Hrólfsskálamel
að stórum hluta fjarmagna frekari
uppbyggingu á íþróttamannvirkj-
um bæjarins: „Því má segja að það
kæmi íþróttafélaginu mjög illa ef
þeim gengur vel með sína kæru
því þá er skipulagið í uppnámi og
þá verður erfitt fyrir okkur að
hafa peninga til þessara fram-
kvæmda.“
Bæjaryfirvöld kærð
fyrir að hunsa íbúa
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi segir kæru Gróttu á hendur bænum geta komið
íþróttafélaginu mjög illa. Grótta vill að nýsamþykkt deiliskipulag verði fellt úr
gildi því það sé ekki í samræmi við skilyrði bindandi íbúakosningar.
Heilbrigðisráðherra Íraks, Ali Al-Shamari,
heldur því fram að mannfall óbreyttra borgara í
stríðinu í Írak sé á bilinu 100.000 til 150.000 manns.
Breska sjónvarpsstöðin BBC hafði þetta eftir Al-
Shamari þar sem hann var á ferð í Vínarborg.
Hingað til hafa opinberar tölur bandarískra og
írakskra stjórnvalda verið mun lægri, yfirleitt hefur
verið talað um að eitthvað í kringum 50.000 borgarar
hafi látist. Þó var því haldið fram í breska lækna-
blaðinu Lancet fyrir fáeinum vikum að allt að 650
þúsund Írakar hefðu týnt lífi af völdum stríðs-
átakanna.
Talan sem íraski heilbrigðisráðherrann nefnir er
að sögn íraskra embættismanna byggð á áætlunum
um fjölda líka sem borist hafa í líkhús og sjúkrahús í
Írak. Samkvæmt upplýsingum frá stærsta líkhúsinu
í Bagdad er þar tekið á móti um það bil 60 líkum á
hverjum einasta degi að meðaltali. Eru þá aðeins
taldir þeir sem látist hafa af völdum ofbeldis. Þarna
eru ekki talin með lík sem berast til annarra líkhúsa í
Bagdad eða annars staðar í Írak.
Alls hafa nærri 2.900 bandarískir hermenn fallið í
Írak frá því innrásin hófst í mars árið 2003. Í þessum
mánuði hafa rúmlega fimmtíu bandarískir hermenn
fallið.
edda.is
SOKKABUXNAMÓDEL, VÍSKÍ
OG MURAKAMI
KOMIN Í
VERSLANIR
Kjörnefnd Sjálfstæðis-
flokksins í Norðvesturkjördæmi
kemur saman í dag til að ákveða
röð frambjóðenda fyrir alþingis-
kosningar næsta vor.
Sturla Böðvarsson, Einar K.
Guðfinnsson og Einar Oddur Kristj-
ánsson sækjast allir eftir endur-
kjöri. Sjálfstæðismenn á Akranesi
vilja fá sinn fulltrúa í fjórða sætið
og varð Bergþór Ólason hlutskarp-
astur í könnun meðal fulltrúaráð-
sliða. Herdís Þórðardóttir tilkynnti
laugardaginn 28. október að hún
gæfi kost á sér. Samkvæmt
auglýsingu kjörnefndar átti að
tilkynna framboð „fyrir laugardag-
inn 28. október“, eins og þar segir.
Ásbjörn Óttarsson, formaður
kjörnefndar, segist enn vera að fá
tilkynningar um framboð og engin
tímamörk hafi verið sett.
Raðað á lista
Samkynhneigðir
Ísraelar héldu sinn hinsegin dag í
Jerúsalem í gær þrátt fyrir harða
andstöðu frá strangtrúuðum
gyðingum. Nærri fjögur þúsund
manns komu á útifund á íþrótta-
velli í útjaðri borgarinnar en ekki
þótti óhætt að hafa færri en þrjú
þúsund lögregluþjóna til taks á
staðnum að auki.
Upphaflega var meiningin að
efna til gleðigöngu í miðborg
Jerúsalem, en frá því var fallið
vegna fjölda hótana sem borist
höfðu. Á síðasta ári tókst vopnuð-
um öfgamanni að særa þrjá
fundargesti með hníf.
Mættu harðri
andstöðu
Halldór Guðbjarna-
son hefur látið af störfum sem
framkvæmdastjóri Visa Íslands.
Að sögn Þórólfs Jónssonar,
stjórnarmanns í fyrirtækinu, var
gert samkomulag milli Halldórs
og félagsins um að hann léti af
störfum og að nýr maður tæki
við.
Þórólfur segir málið ekki hafa
átt sér langan aðdraganda en
margt væri framundan hjá
félaginu og hafi því verið ákveðið
að nýr maður fylgdi þeim
verkefnum úr hlaði.
Visa skiptir um
mann í brúnni
Ríkissjóður ætlar að
taka stærsta lán Íslandssögunnar
á næstu vikum til að tryggja
hagkerfi landsins gegn áföllum.
Þetta kom fram í fréttum
Ríkissjónvarpsins í gær.
Þar sagði einnig að erlendir
fjölmiðlar segðu lántökuna
tilkomna vegna þess að Seðla-
bankinn byggist við efnahags-
kreppu.
Hagfræðingar telja að mikil
stækkun fjármálageirans hér á
landi síðustu ár krefjist þess að
gjaldeyrisforði Íslendinga verði
aukinn. Þeir segja sterka gjald-
eyrisstöðu geta forðað hagkerfinu
frá miklum áföllum.
Stærsta lántaka
Íslandssögunnar
Konan sem var flutt mikið
slösuð á sjúkrahús eftir
eldsvoðann á
Ferjubakka
12 á þriðju-
dagskvöld er
látin. Hún hét
Anna Hauks-
dóttir og var
58 ára gömul.
Eiginmaður
Önnu, sem
brenndist illa
í eldsvoðan-
um, liggur
enn þungt haldinn á sjúkra-
húsi. Anna var sjúkraliði að
mennt.
Konan er látin