Fréttablaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 111
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Já, já, við skylmingaþrælarnir
stöndum saman,“ segir Árni John-
sen frambjóðandi.
Prófkjörsbaráttan fer
heldur betur harðn-
andi en þannig má sjá
heilsíðuauglýsingu í
Mogganum í gær frá
Árna sem sækist
eftir einu af efstu sætum á lista
Sjálfstæðismanna í Suðurkjör-
dæmi. Margir ráku upp stór augu
þegar þeir börðu auglýsinguna
augum. Í kringum frambjóðand-
ann er raðað myndum af hinum og
þessum stuðningsmönnum og verð-
ur ekki betur séð en einn þeirra sé
kvikmyndaleikarinn Russell Crowe
í hlutverki Maximus í kvikmynd-
inni Gladiator.
„Ég hélt fyrst að þetta væri sjó-
maður úr Grindavík. En svo
sá ég að þetta er kollegi minn
Crowe,“ segir Árni.
Upp úr dúrnum kemur
að af einskærum stráks-
skap hafði Ríkharður
Ibsen, sem setti upp aug-
lýsinguna fyrir Árna,
laumað Crowe þar inn meðal
mynda af íslenskum stuðnings-
mönnum. Raunverulegum.
„Nei, nei, nei, nei, þetta er ekki
þannig að skortur sé á stuðnings-
mönnum. Öðru nær. Þetta er húmor
og menn skemmta sér konunglega
yfir þessu,“ segir Árni Johnsen.
„Við vildum slá skjaldborg um
kallinn með Maximus,“ segir Rík-
harður sem gerði þetta að Árna
forspurðum. „Við erum bara að slá
á létta strengi. Hafa
húmorinn með í för.“ Ríkharður
segir Árna hafa tekið þessu fram-
taki vel og Fréttablaðið getur stað-
fest það – frambjóðandinn hefur
gaman af: „Það vantar bara mynd
af þeim stelpum, Pamelu og Britt-
ney Spiers,“ segir Árni og hlær.
Russell Crowe styður Árna Johnsen
Uppselt er á Rock Star-tónleikana
sem haldnir verða í Laugardalshöll
30. nóvember en þetta staðfesti
Magni Ásgeirsson, söngvari Á móti
sól. Á tónleikunum mun hljóm-
sveitin spila ásamt þeim Dilönu,
Toby, Storm og hinni nafntoguðu
húshljómsveit. „Mér skilst að sjald-
an eða aldrei hafa ásóknin verið
jafn mikil á miði.is,“ sagði söngv-
arinn kampakátur enda standa þeir
félagar í hljómsveitinni fyrir her-
legheitunum sjálfir með dyggum
stuðningi stórfyrirtækja. „Ég anda
léttar því það hefði verið frekar
leiðinlegt ef ekki hefði verið seldur
einn miði og allt á mínu nafni,“
segir Magni og hlær.
Þrátt fyrir spár margra um að
Rock Star-æðið væri einhver bóla
sem myndi springa hefur annað
heldur betur komið á daginn. Dil-
ana og Magni héldu ferna tónleika
á Broadway og seldist upp á á þá
alla. Stemningin fyrir þessum tón-
leikum virðist því engu síðri. Tón-
leikarnir eru líka afmælisveisla
fyrir Magna og segist söngvarinn
fá að ráða ýmsu af þeim sökum.
„Ég ætla mér að spila eitt lag með
öllum sem koma fram og ræð í
hvaða röð atriðin eru,“ segir
Magni og hlær, augljóslega feginn
að fá loksins að koma með ein-
hverjar hugmyndir.
Uppselt á Magna og félaga
„Við skemmtum okkur alltaf vel
saman þannig að þetta var bara
nýtt umhverfi. Við erum að
minnsta kosti saman ennþá,“ segir
Lilja Björk Guðmundsdóttir, kær-
asta Auðuns Blöndal til fjögurra
ára en hún hefur séð um nokkra
hrekki fyrir hann í þáttunum Tek-
inn á Sirkus.
Þættirnir hafa notið mikilla
vinsælda undanfarnar vikur en
Auddi getur að sjálfsögðu ekki
hrekkt fólkið sjálfur þar sem hann
er of þekktur. Þess í stað fékk
hann fólkið í kringum sig til að sjá
um hrekkina en var sjálfur á bak-
við tjöldin og talaði í eyru hrekkja-
lómanna.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég
er í sjónvarpsþáttum en hef leikið
í einhverjum auglýsingum og svo-
leiðis,“ segir Lilja, sem er á þriðja
ári í lögfræði við Háskólann í
Reykjavík. „Ég ætlaði reyndar
alltaf í Leiklistarskólann og var
eiginlega komin með annan fótinn
þangað inn en endaði síðan í lög-
fræðinni í staðinn.“
Lilja segir það henta sér mjög
vel að vera ekki með handrit held-
ur fá að spinna á staðnum. „Hug-
myndaflugið fer bara að rúlla og
það kemur alltaf eitthvað upp úr
manni.“
Lilju fannst erfiðast að vera
svona rosalega vond og „nastí“ við
fólkið sem hún hrekkti. „Það var
til dæmis mjög erfitt að horfa í
augun á Höllu [Vilhjálmsdóttur],
þar sem hún stóð titrandi fyrir
framan mig. Mig langaði mest til
að knúsa hana í staðinn fyrir að
halda áfram að þjarma að henni,“
segir Lilja og hlær við. „Ég hugs-
aði þetta dálítið þannig að ég væri
bara einhver annar karakter því
ég myndi aldrei vera svona ógeðs-
leg. Ég varð bara að setja mig í
þannig stellingar að ég væri ein-
hver leiðindatrunta í búðinni,“
bætir hún við.
„Erfiðast fannst mér að hrekkja
Sigurð Kára af því hann hélt ró
sinni svo ótrúlega vel en sá þáttur
verður sýndur næstkomandi
mánudagskvöld. Viðbrögðin frá
þeim sem maður hrekkir hvetja
mig svo áfram og þess vegna var
miklu auðveldara að hrekkja
Höllu því viðbrögðin hennar voru
strax svo sterk,“ segir Lilja og
bætir því við að Sigurður Kári
hafi örugglega mesta jafnaðargeð
sem hún hafi nokkurn tíma kynnst.
„Auddi sagði mér alltaf að ganga
lengra og lengra og vera meira
nastí þannig að ég var algjör tík
við Sigurð,“ segir Lilja eldhress
og hlær.
...fær Íslenski dansflokkurinn
fyrir að kynna hina fögru list
dansins fyrir ungu kynslóð-
inni, en á fjölskyldusýningum
flokksins fá börn frítt inn.
HIÐ STÓRFENGLEGA
LEYNDARMÁL HEIMSINS
STEINAR BRAGI
EINKASPÆJARINN
STEINN STEINARR
OG AÐSTOÐARMAÐUR
HANS MUGGUR
RANNSAKA ÆSILEGT
MORÐMÁL Á
SKEMMTIFERÐASKIPI