Fréttablaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 102
Tímaritið heimsþekkta, Vogue,
fagnar 90 ára afmæli sínu á þessu
ári. Tímaritið er eitt best þekkta
tískurit heimsins og hefur mikil
áhrif á tískuheiminn.
Vogue var stofnað í Bandaríkjunum og eru
höfuðstöðvar ritsins þar. Það er þó gefið út
í mun fleiri löndum í dálítið öðru vísu
útgáfum. Það var ekki fyrr en fyrir tíu
árum sem fleiri blöð fóru að bætast í hóp-
inn og veita Vogue einhverja samkeppni.
Þótt að bandaríska og breska Vogue séu
líklega mest seldu útgáfurnar í heiminum,
þá eru franska og ítalska útgáfan af Vogue
þau blöð sem hafa mestu áhrifin á tísku-
heiminn og eru ávallt einu skrefi á undan.
Vogue getur státað sig af því að konur
hafa ritstýrt tímaritinu frá upphafi og allar
þessar konur hafa unnið við góðan orðstír.
Anna Wintour er ritstjóri bandaríska Vogue
í dag og hefur gegnt því starfi frá árinu
1988. Carine Roitfeild er ritsjóri franska
Vogue og eru þær báðar mjög áhrifamiklar
konur í tískuheiminum.
Það er mikil
tenging á milli
tímaritsins og
fyrirsætna. Það
að komast á for-
síðuna á Vogue er
einn stærsti heið-
urinn fyrir fyrir-
sætur og svoleiðis
hefur það verið
síðan blaðið
hófst.
Við Íslendingar
eigum einn mesta
aðdáanda Vogue en
það er hinn þekkti
snyrtir Heiðar Jóns-
son. Heiðar segist
aðeins hafa verið lít-
ill polli í sveit þegar
hann fékk sitt fyrsta
eintak af bandaríska
Vogue frá frænku
sinni, Ragnheiði Þor-
grímsdóttur flug-
freyju. „Ég man að
allir hinir strákanir
voru mest hrifnir af
bílum og tækjum frá
Ameríku en ég vildi
bara fá Vogue,“
segir Heiðar og
hlær. Hann hefur
alltaf getað státað
sig af því að eiga
stærsta Vogue-safn
landsins en Heiðar byrjaði að safna blað-
inu árið 1969. „Þetta var náttúrlega rosa-
lega starfstengt enda þurfti ég að fylgjast
vel með nýjustu straumum og stefnum í
tískunni og snyrtivörum. Vogue er besta
blaðið fyrir það.“ Heiðar þurfti að gefa
safnið frá sér þegar hann flutti til útlanda
en þá voru blöðin orðin 320 talsins. „Það
var erfitt að þurfa að gefa þetta allt frá sér
og ég leitaði lengi að einhverjum sem
mundi hafa einhver not fyrir það en áhug-
inn var ekki mikill þá.“
Heiðar segist muna eftir nokkrum
íslenskum konum sem hafa birst í Vogue,
meðal annars fyrirsæturnar og fegurðar-
drottningarnar Maríu Guðmundsdóttur,
Guðrúnu Björnsdóttur og Telmu Ingvars-
dóttur. „Þetta voru allt mjög frægar fyrir-
sætur og svo er ég ekki frá því að frú Vig-
dís Finnbogadóttir hafi einhvern tíma birst
í Vogue. Hún vakti svo mikla athygli fyrir
fágun og glæsileika.“
Í tilefni af afmælinu gefur Vogue út sér-
staka afmælisútgáfu í desembertölublaði
blaðsins, þar sem allar forsíðurnar eru á
forsíðunni. Þetta er blað sem enginn aðdá-
andi tískuritsins getur látið framhjá sér
fara og ætti vera fáanlegt hér á landi innan
skamms.
Biblía tískunnar 90 ára