Fréttablaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 8
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Þúsundir manna
söfnuðust saman í Egyptalandi,
Sýrlandi, Jórdaníu, Líbanon og
Súdan í gær til þess að mótmæla
mannskæðum árásum ísraelska
hersins á borgara í bænum Beit
Hanoun á Gaza-svæðinu, sem urðu
nítján manns að bana á miðviku-
daginn. Mótmælin snerust víða upp
í almenn mótmæli gegn stefnu
Bandaríkjanna í málefnum Mið-
Austurlanda og stuðningi þeirra við
Ísraelsstjórn.
Á síðustu dögum hafa meira en
fimmtíu manns látist af völdum
árása ísraelska hersins á Gaza-
strönd, en ísraelski herinn segir til-
gang þeirra vera að koma í veg
fyrir að Palestínumenn geti skotið
flugskeytum yfir landamærin til
Ísraels.
Stór hluti hinna látnu var á
barnsaldri. Samkvæmt upplýsing-
um frá Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna hafa 19 palestínsk börn fallið í
þessum mánuði, þar af tvö á Vest-
urbakkanum og 17 á Gazaströnd.
Þar með er nóvembermánður
orðinn mannskæðasti mánuður árs-
ins meðal palestínskra barna. Ein-
ungis í júlí hafa fleiri palestínsk
börn látist af völdum átaka, en þá
týndu fjörutíu þeirra lífinu.
Leiðtogi Hamas-samtakanna
brást við árásinni á Beit Hanoun
með því að segja ekkert vopnahlé
lengur í gildi og hvatti alla sem
gætu til þess að ráðast á Ísrael.
Ehud Olmert forsætisráðherra
ætlar hins vegar að bregða sér í
heimsókn til Washington í næstu
viku, en málin standa þá töluvert
öðruvísi en þegar hann hélt þangað
síðast í vor. Þá talaði hann mikið
um að Ísraelsher myndi fljótlega
fara frá Vesturbakkanum að miklu
leyti í beinu framhaldi af einhliða
brotthvarfi hersins frá Gaza-strönd
á síðasta ári.
Ísraelsmenn hafa hins vegar lít-
inn áhuga lengur á því að herinn
fari frá Vesturbakkanum, í fram-
haldi af harðvítugu stríði í Líbanon
í sumar og áframhaldandi flug-
skeytaárásum Palestínumanna á
Ísrael.
Vinsældir Olmerts meðal landa
sinna höfðu minnkað um 20 pró-
sent, og ekki hefur staða hans skán-
að í kjölfar árásarinnar á Beit Han-
oun í vikunni, sem hann sagði hafa
stafað af „tæknilegum mistökum“.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti, sem Olmert ætlar að hitta í
Washington, hefur einnig beðið
verulegan hnekki nú í vikunni
þegar Repúblikanaflokkurinn missi
þingmeirihluta í báðum deildum
Bandaríkjaþings. Fáir búast því við
að viðræður þeirra Olmerts skili
neinum umtalsverðum árangri.
Árásum Ísra-
ela mótmælt
Þúsundir manna mættu í gær á mótmælafundi
gegn mannskæðum árásum ísraelska hersins á Beit
Hanoun. Nærri tuttugu börn hafa fallið í nóvember.
Útstreymi gróður-
húsalofttegunda er minna á
Íslandi en meðaltalsútstreymið í
ríkjum Evrópusambandsins og
hefur jafnframt dregist meira
saman hér á landi undanfarin
ár.
Þetta kemur fram í nýlegri
skýrslu Umhverfisstofnunar
ESB, en í skýrslunni kemur einn-
ig fram að Ísland standi vel að
vígi gagnvart Kyoto-bókuninni
og að útstreymið hér árið 2004
hafi verið tólf prósentum undir
því markmiði sem sett er að
meðaltali fyrir tímabilið 2008 til
2012. Mörg Evrópusambandsríki
eru hins vegar átta prósentum
yfir sambærilegu markmiði og
eiga því lengra í land til að ná
takmarkinu en Ísland.
Ísland stendur vel
Umhverfisstofnun
gerir athugasemdir við fyrirhug-
aða frístundabyggð í Borgarhól-
um við Skálholt. Stofnunin telur
að náttúrufari og fuglalífi
geti stafað hætta af
byggðinni og að borun
eftir heitu vatni gæti
haft áhrif á jarðhita-
svæði við Skálholt.
Einnig að hugsanleg
séu neikvæð áhrif á
ásýnd vegna staðsetn-
ingar mannvirkja við
svo sögufrægan stað
sem Skálholt sé.
Þetta kemur fram í fundargerð
sveitarstjórnar Bláskógabyggðar
sem ekki deilir áhyggjum
Umhverfisstofnunar:
„Sveitarstjórn Bláskóga-
byggðar telur réttan far-
veg að auglýsa
umrædda tillögu og fá
fram sjónarmið
umsagnaraðila á aug-
lýsingartíma.“
Lýsir áhyggjum af
ásýnd Skálholts