Fréttablaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 85
Bandarískum hægrimönnum finnst
hún allt of vinstrisinnuð og þá hefur
hreinlega óað við tilhugsuninni um
að hún tæki við forystunni í þing-
inu.
Hún hefur til að mynda alla tíð
stutt sjálfsákvörðunarrétt kvenna
um fóstureyðingar og hún vill strang-
ar hömlur á byssueign, en flestir
repúblikanar eru þarna á þveröfug-
um meiði. Hún styður einnig rann-
sóknir á stofnfrumum og hún er
fylgjandi því að læknum verði heim-
ilað að aðstoða dauðvona fólk við að
fremja sjálfsvíg. Hún hefur ekkert á
móti sköttum en hefur lagt mikla
áherslu á aðhald í ríkisfjármálum.
N
æstu tvö árin verð-
ur Nancy Pelosi
býsna áberandi í
bandarískum
stjórnmálum. Hún
verður leiðtogi
demókrataflokksins í neðri deild
þingsins í Washington og fær því
það hlutverk að semja við George W.
Bush forseta um flest þau mál sem
koma þarf í gegnum þingið.
Þau Bush og Pelosi hafa ekki
beinlínis talað fallega hvort um
annað undanfarin misseri. Bush
gerði óspart grín að henni í kosn-
ingabaráttunni, sagði hana til dæmis
„leynilegan aðdáanda“ skattahækk-
ana og fullyrti að „hryðjuverkamenn
sigri en Bandaríkin tapi“ ef Demó-
krataflokkurinn kæmist til valda á
þinginu undir hennar forystu.
Hún sparaði heldur ekki stóru
orðin þegar talið barst að Bush, sagði
hann beinlínis hættulegan, hann
væri í afneitun og hann væri „keis-
ari í engum fötum“. Hann hefði leitt
þjóðina í villu varðandi Írak og
stjórn hans á efnahagsmálum væri í
molum.
Bæði hafa þau þó skipt um gír
eftir þingkosningarnar á þriðjudag-
inn þar sem demókratar unnu vænan
meirihluta í fulltrúadeildinni en
harla nauman meirihluta í öldunga-
deildinni. Þau snæddu saman kvöld-
verð á fimmtudaginn og sögðust
ætla að sýna hvort öðru fulla virð-
ingu í samstarfinu næstu tvö árin.
Pelosi er 66 ára gömul og fimm
barna móðir, fædd í Maryland en
flutti til Kaliforníu þegar hún giftist
manni sínum, Paul Pelosi. Faðir
hennar, Thomas D´Alesandro, sat
einnig á þinginu í Washington og var
einnig um hríð borgarstjóri í Balti-
more. Sjálf sneri hún sér ung að
stjórnmálum, enda alin upp í þeim
heimi, en fór þó ekki í framboð fyrr
en hún var orðin 46 ára, en þá var
Alexandra, yngsta dóttir hennar,
komin í unglingaskóla.
Hún hefur verið þingmaður í full-
trúadeild frá árinu 1987 og hefur
verið leiðtogi minnihlutans í deild-
inni í fjögur ár. Sem slík hefur hún
reyndar ekki verið sérlega áberandi
síðustu misserin, en það er að breyt-
ast all snarlega.
Á flokksfundi demókrata 16. nóv-
ember næstkomandi, þar sem kosið
verður í helstu embætti flokksins,
þykir öruggt að hún verði fyrir val-
inu bæði sem leiðtogi flokksins og
forseti fulltrúadeildarinnar.
Fær að glíma við forsetann
Repúblikana í Bandaríkjunum hefur marga óað við tilhugsuninni um að Nancy Pelosi verði þingforseti, til þess þykir þeim hún
allt of vinstrisinnuð. Næstu tvö árin verður hún í forsvari fyrir demókrata í glímunni við Bush forseta. Guðsteinn Bjarnason
kynnti sér forsögu Pelosi, sem hefur ekki verið sérlega áberandi síðustu árin þrátt fyrir að hafa verið leiðtogi þingminnihlutans.
Kjördæmi hennar er San Franc-
isco í Kaliforníu þar sem frjáls-
lyndu blómabörnin frá hippatíman-
um þykja enn hafa mikil áhrif,
þrátt fyrir að repúblikaninn Arnold
Schwarzenegger hafi verið ríkis-
stjóri þar síðustu fjögur árin og
verið endurkosinn til næstu fjög-
urra ára nú á þriðjudaginn.
Kjósendur hennar heima fyrir
segja þó að jafnvel íhaldssömustu
repúblikanar þurfi ekki að óttast
demókrata sem sprottnir eru úr
þessum jarðvegi.
„Þeir halda að við gerum ekkert
annað en að faðma tré og borða
múslí,“ hefur AP-fréttastofan til
dæmis eftir Mary Graves, sem
sjálf segist vera hófsamur demó-
krati.
Sjálf er Pelosi vellauðug og þykir
standa nálægt miðju pólitísku litrófi
Demókrataflokksins. Hún hefur
stjórnað flokknum á þingi af mikl-
um aga, þykir harðfylgin, hefur
munninn fyrir neðan nefið og óttast
ekkert að takast á við andstæðinga
sína.
Hún hefur farið hörðum orðum
um stríðið í Írak, sagt það vera stór-
slys og mistök frá upphafi. Á hinn
bóginn studdi hún frá upphafi bar-
áttu Bandaríkjanna gegn hryðju-
verkamönnum og vill vafalaust
halda þeirri baráttu áfram í ein-
hverri mynd þótt hún leggi áherslu
á að finna leið út úr ógöngunum í
Írak.