Fréttablaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 105
Enn eiga margir knatt-
spyrnumenn eftir að ganga frá
sínum málum fyrir næsta keppnis-
tímabil en undirbúningstímabilið
er nú hafið hjá allflestum liðum.
Undanfarnar vikur og mánuði
hafa íslensku félögin slegist um
„stærstu bitana“ og flestir þeirra
gengið til liðs við KR, FH eða Val.
Það þýðir að fjöldamörg önnur lið
í úrvalsdeildinni hafa ekki náð að
styrkja hópinn sinn eins og þau
hefðu ef til vill kosið.
Samningar margra leikmanna
eru að renna út og eru viðbrögð
félaganna við að endurnýja þá
samninga mismunandi. Í sumum
tilfellum er ef til vill ekki áhugi á
að halda viðkomandi leikmanni en
það hefur einnig dregist á langinn
að semja við leikmenn þar sem
áhugi er fyrir hendi að halda leik-
manninum í félaginu.
Stefán Örn Arnarsson upplifir
nú mikla óvissu varðandi sína
stöðu hjá Keflavík. Samkvæmt
heimasíðu KSÍ er hann samnings-
laus en hann skrifaði undir þriggja
ára samning við Keflavík síðast-
liðinn vetur. Rúnar V. Arnarsson
segir að um mistök hafi verið að
ræða.
„Samningurinn við Stefán ligg-
ur ofan í skúffu hjá framkvæmda-
stjóranum og var aldrei skilað inn
til KSÍ. Um einföld mistök er að
ræða. Við viljum halda honum og
reiknum með því að hann verði
áfram í Keflavík,“ sagði Rúnar V.
Arnarsson, formaður knattspyrnu-
deildar Keflavíkur.
„Ég er ekki á þeim buxunum að
ég vilji fara,“ sagði Stefán við
Fréttablaðið. „Það þarf að ræða
ákveðna liði í samningum eins og
hann gerir ráð fyrir en það hefur
ekkert verið haft samband við
mig. Ég er í þeirri stöðu að ég veit
ekki hvað ég á að gera. Ég hef
mætt á eina æfingu en svo dregið
mig til hlés.“
Rúnar sagðist vonast til að
ganga frá þessu máli í næstu
viku.
Fimm leikmenn eiga enn eftir
að ganga frá sínum samningsmál-
um við Fylki. Þeir eru Sævar Þór
Gíslason, Arnar Þór Úlfarsson,
Jón Björgvin Hermannsson,
Jóhann Ólafur Sigurðsson og
Christian Christiansen. Sá síðast-
nefndi sagði reyndar í gær að við-
ræður væru nú í gangi við Fylki.
En einn þessara leikmanna sagði í
samtali við Fréttablaðið að þessi
vinnubrögð Fylkismanna kæmu
þeim mjög á óvart.
Ljóst er að Víðir Leifsson og
Chris Vorenkamp fara frá Fram.
Víði stóð til boða að ræða um nýjan
samning en hann hafnaði því og
ætlar að spila annars staðar á
næsta tímabili. Vorenkamp æfir
nú með HK og er að leita sér að
nýju félagi.
Þá stendur Bjarna Rúnari
Einarssyni til boða nýr samningur
hjá ÍBV en hann hefur ekki enn
gert upp við sig hvort hann muni
taka honum. Svipaða sögu er að
segja af Víkingnum Davíð Þór
Rúnarssyni en hann er í viðræðum
við Víkinga eins og er.
„Þær hafa gengið hægt, ein-
faldlega þar sem það hefur verið
mikið að gera hjá mér. Það er eitt
annað félag í myndinni hjá mér en
annars hef ég neitað öðrum félög-
um,“ sagði Davíð.
Þá er Atli Viðar Björnsson að
skoða samningstilboð frá FH en
hefur einnig rætt við önnur lið.
Óðinn Árnason mun svo fara frá
Grindavík og hefur átt í viðræðum
við Fram og Breiðablik. Heimildir
herma að hann sé nærri því að
ganga til liðs við Fram.
Þó að „stærstu bitarnir“ séu horfnir af leikmannamarkaðnum eru enn margir leikmenn annað hvort án
samnings eða að klára sína samninga. Viðbrögð félaganna hafa verið mismunandi en dæmi eru um að
félög hafi látið leikmenn sitja á hakanum svo vikum skiptir og skilið þá eftir í mikilli óvissu.
Ætla að reyna að heilla þá hjá Tottenham
Þróttarar hafa fengið
góðan liðsstyrk fyrir næsta
sumar í fótboltanum því Skaga-
maðurinn Hjörtur Hjartarson er
genginn í raðir liðsins frá ÍA.
Hjörtur er 32 ára gamall og gerði
þriggja ára samning við Þrótt en
ÍA hafði einnig boðið Hirti nýjan
tveggja ára samning.
Hjörtur lék alls sjö leiki með
ÍA í sumar og skoraði í þeim tvö
mörk. Hjörtur hefur lengstum
spilað með ÍA en auk þess hefur
hann spilað með Völsungi og
Skallagrími á sínum ferli. Hjörtur
hefur ávallt verið mikill marka-
skorari og varð m.a. markakóngur
efstu deildar árið 2001 þegar hann
skoraði 15 mörk fyrir ÍA.
Hjörtur er annar leikmaðurinn
sem Þróttur fær til sín eftir að
Gunnar Oddsson tók við þjálfun
liðsins en í síðasta mánuði
skrifaði sóknarmaðurinn Adolf
Sveinsson undir þriggja ára
samning við félagið.
Hjörtur Hjartar
til liðs við Þrótt
Birgir Leifur Hafþórsson fer
vel af stað á lokastigi úrtökumóts-
ins fyrir Evrópumótaröðina í
golfi. Birgir Leifur hóf keppni í
gær en mótið, sem fram fer á
Spáni, hefur riðlast eftir úrhellis
rigningu fyrr í vikunni.
Birgir Leifur lék hringinn í
gær á 69 höggum; þremur
höggum undir pari vallarins.
Birgir Leifur er í 5.-7. sæti af 156
keppendum. Þetta er í tíunda
skiptið sem Birgir Leifur reynir
að komast á Evrópumótaröðina en
hann hefur tvisvar verið einu
höggi frá því að ná markmiðinu.
Ragnheiður Sigurðardóttir átti
hins vegar slæman dag í gær
þegar hún lék þriðja hring sinn á
úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð
kvenna á 82 höggum; tíu höggum
yfir pari. Þetta þýðir að Ragn-
heiður er úr leik á mótinu en hún
fór ágætlega af stað og lék fyrsta
hringinn á 73 höggum; einu höggi
yfir pari. Annan hringinn lék hún
á 78 höggum, sex höggum yfir
pari, og lauk svo keppni með
fyrrgreindum árangri á þriðja
hring.
Birgir Leifur
fer vel af stað