Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 111

Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 111
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Já, já, við skylmingaþrælarnir stöndum saman,“ segir Árni John- sen frambjóðandi. Prófkjörsbaráttan fer heldur betur harðn- andi en þannig má sjá heilsíðuauglýsingu í Mogganum í gær frá Árna sem sækist eftir einu af efstu sætum á lista Sjálfstæðismanna í Suðurkjör- dæmi. Margir ráku upp stór augu þegar þeir börðu auglýsinguna augum. Í kringum frambjóðand- ann er raðað myndum af hinum og þessum stuðningsmönnum og verð- ur ekki betur séð en einn þeirra sé kvikmyndaleikarinn Russell Crowe í hlutverki Maximus í kvikmynd- inni Gladiator. „Ég hélt fyrst að þetta væri sjó- maður úr Grindavík. En svo sá ég að þetta er kollegi minn Crowe,“ segir Árni. Upp úr dúrnum kemur að af einskærum stráks- skap hafði Ríkharður Ibsen, sem setti upp aug- lýsinguna fyrir Árna, laumað Crowe þar inn meðal mynda af íslenskum stuðnings- mönnum. Raunverulegum. „Nei, nei, nei, nei, þetta er ekki þannig að skortur sé á stuðnings- mönnum. Öðru nær. Þetta er húmor og menn skemmta sér konunglega yfir þessu,“ segir Árni Johnsen. „Við vildum slá skjaldborg um kallinn með Maximus,“ segir Rík- harður sem gerði þetta að Árna forspurðum. „Við erum bara að slá á létta strengi. Hafa húmorinn með í för.“ Ríkharður segir Árna hafa tekið þessu fram- taki vel og Fréttablaðið getur stað- fest það – frambjóðandinn hefur gaman af: „Það vantar bara mynd af þeim stelpum, Pamelu og Britt- ney Spiers,“ segir Árni og hlær. Russell Crowe styður Árna Johnsen Uppselt er á Rock Star-tónleikana sem haldnir verða í Laugardalshöll 30. nóvember en þetta staðfesti Magni Ásgeirsson, söngvari Á móti sól. Á tónleikunum mun hljóm- sveitin spila ásamt þeim Dilönu, Toby, Storm og hinni nafntoguðu húshljómsveit. „Mér skilst að sjald- an eða aldrei hafa ásóknin verið jafn mikil á miði.is,“ sagði söngv- arinn kampakátur enda standa þeir félagar í hljómsveitinni fyrir her- legheitunum sjálfir með dyggum stuðningi stórfyrirtækja. „Ég anda léttar því það hefði verið frekar leiðinlegt ef ekki hefði verið seldur einn miði og allt á mínu nafni,“ segir Magni og hlær. Þrátt fyrir spár margra um að Rock Star-æðið væri einhver bóla sem myndi springa hefur annað heldur betur komið á daginn. Dil- ana og Magni héldu ferna tónleika á Broadway og seldist upp á á þá alla. Stemningin fyrir þessum tón- leikum virðist því engu síðri. Tón- leikarnir eru líka afmælisveisla fyrir Magna og segist söngvarinn fá að ráða ýmsu af þeim sökum. „Ég ætla mér að spila eitt lag með öllum sem koma fram og ræð í hvaða röð atriðin eru,“ segir Magni og hlær, augljóslega feginn að fá loksins að koma með ein- hverjar hugmyndir. Uppselt á Magna og félaga „Við skemmtum okkur alltaf vel saman þannig að þetta var bara nýtt umhverfi. Við erum að minnsta kosti saman ennþá,“ segir Lilja Björk Guðmundsdóttir, kær- asta Auðuns Blöndal til fjögurra ára en hún hefur séð um nokkra hrekki fyrir hann í þáttunum Tek- inn á Sirkus. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda undanfarnar vikur en Auddi getur að sjálfsögðu ekki hrekkt fólkið sjálfur þar sem hann er of þekktur. Þess í stað fékk hann fólkið í kringum sig til að sjá um hrekkina en var sjálfur á bak- við tjöldin og talaði í eyru hrekkja- lómanna. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er í sjónvarpsþáttum en hef leikið í einhverjum auglýsingum og svo- leiðis,“ segir Lilja, sem er á þriðja ári í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. „Ég ætlaði reyndar alltaf í Leiklistarskólann og var eiginlega komin með annan fótinn þangað inn en endaði síðan í lög- fræðinni í staðinn.“ Lilja segir það henta sér mjög vel að vera ekki með handrit held- ur fá að spinna á staðnum. „Hug- myndaflugið fer bara að rúlla og það kemur alltaf eitthvað upp úr manni.“ Lilju fannst erfiðast að vera svona rosalega vond og „nastí“ við fólkið sem hún hrekkti. „Það var til dæmis mjög erfitt að horfa í augun á Höllu [Vilhjálmsdóttur], þar sem hún stóð titrandi fyrir framan mig. Mig langaði mest til að knúsa hana í staðinn fyrir að halda áfram að þjarma að henni,“ segir Lilja og hlær við. „Ég hugs- aði þetta dálítið þannig að ég væri bara einhver annar karakter því ég myndi aldrei vera svona ógeðs- leg. Ég varð bara að setja mig í þannig stellingar að ég væri ein- hver leiðindatrunta í búðinni,“ bætir hún við. „Erfiðast fannst mér að hrekkja Sigurð Kára af því hann hélt ró sinni svo ótrúlega vel en sá þáttur verður sýndur næstkomandi mánudagskvöld. Viðbrögðin frá þeim sem maður hrekkir hvetja mig svo áfram og þess vegna var miklu auðveldara að hrekkja Höllu því viðbrögðin hennar voru strax svo sterk,“ segir Lilja og bætir því við að Sigurður Kári hafi örugglega mesta jafnaðargeð sem hún hafi nokkurn tíma kynnst. „Auddi sagði mér alltaf að ganga lengra og lengra og vera meira nastí þannig að ég var algjör tík við Sigurð,“ segir Lilja eldhress og hlær. ...fær Íslenski dansflokkurinn fyrir að kynna hina fögru list dansins fyrir ungu kynslóð- inni, en á fjölskyldusýningum flokksins fá börn frítt inn. HIÐ STÓRFENGLEGA LEYNDARMÁL HEIMSINS STEINAR BRAGI EINKASPÆJARINN STEINN STEINARR OG AÐSTOÐARMAÐUR HANS MUGGUR RANNSAKA ÆSILEGT MORÐMÁL Á SKEMMTIFERÐASKIPI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.