Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 28

Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 28
Nú er ég búinn að halda mína fyrstu myndlistarsýningu. Sýningin hófst í dag í Galleríi Sæv- ars Karls. Það dreif að fólk úr öllum áttum og ég heilsaði á báða bóga. Sérstaklega þótti mér gaman að hitta konu sem kom og vildi eiga við mig orð. „Ég kom nú reyndar ekki fyrst og fremst til að skoða þessa sýn- ingu,“ sagði hún. „Mig langaði aðallega til að sjá konuna þína af því að þú skrifar svo fallega um hana.“ Ég benti henni á Sólveigu mína í mannþrönginni og gat ekki betur séð en konunni þætti sjón sögu rík- ari. Það finnst mér reyndar líka. Þetta gekk sem sagt allt saman vonum framar og ég þarf greini- lega ekki að hafa áhyggjur af því að sitja uppi með margar myndir þegar sýningunni lýkur. Um kvöldið hélt gleðin áfram. Fimmtugsafmæli hjá Ásu frænku í Hafnarfirði. Ég sem hélt hún væri nýorðin þrítug. Á þessu blóðuga prófkjörshausti vitja ég oft um Alnetið og sigli þá slóðina: http://ossur.hexia. net/. Þar skrifar Össur Skarphéð- insson einhverjar snjöllustu lýsingar á samtímapólitík sem sést hafa síðan höfundur Íslendingasögu, snillingurinn Sturla Þórðarson, lagði frá sér fjöðurstafinn. Sturla var bróðursonur Snorra og skrifaði líka skemmtisögur fyrir almenning, til dæmis frægasta róman mið- alda sem fjallar um ástir og örlög fólks á Bergþórs- hvoli og Hlíðar- enda og væri efni í stór- kostlega sápuóperu ef íslenska sjónvarpið hefði döngun til að þvo af sér slyðruorðið og slá út danska og enska framhaldsþætti. Össur er ekki af Sturlungaætt heldur af hinu friðsama Fremra- hálskyni og hefur sérhæft sig í eit- ursnjöllum greiningum á innvortis átökum íslenskra stjórnmála- flokka, einkum svíður sjálfstæðis- og framsóknar- menn undan penna hans. Í kröníku Össurar um íslenska sam- tímapólitík er þó ein eyða sem sagnfræðingar framtíðarinnar eiga eftir að harma mjög. En þannig er að þess- um snilldarpenna hefur alveg láðst að beina broddi sínum að ástum sinna samlyndu samherja í Sam- fylkingunni. Enda er það svo að mala domestica graviora sunt lachrimis eins og Brynj- ólfur heitinn biskup sagði þegar búið var að fífla heimasætuna og ku útleggjast þannig: Heimilisböl er þyngra en tárum taki. Ekki svo að skilja að ég hafi inn- sýn Össurar í vargöld íslenskra stjórnmála en þegar ég lít í átt til hans og Samfylkingarinnar kemur mér í hug prýðilegt kvæði eftir Grím Thomsen (fyrrum alþingis- mann) þar sem segir m.a. Horn skella á nösum og hnútur fljúga um borð, hógvær fylgja orð, en þegar brotna hausar og blóðið litar storð brosir þá Goðmundur kóngur. Ég lái ekki Össuri þótt hann brosi í kampinn eins og Goðmund- ur kóngur því að ekki er annað að sjá en þeim sem studdu hann í for- mannskjörinu, sællar minningar, gangi allt í haginn en andstæðing- arnir uppskeri eins og til var sáð. Í Suðurkjördæmi vann Björgvin G. glæsilegan sigur en hann var harð- asti stuðningsmað- ur Össurar og þótti mörgum það van- hugsað hjá svo ungum manni að binda trúss sitt við Össur þegar fúndamentalistar í pólitískum rétttrúnaði boðuðu komu Messíönu. Í Suðvesturkjördæmi fékk Katrín Júlíusdóttir rúss- neska kosningu í annað sætið en líkt og Björgvin fór hún ekki dult með stuðning sinn við Össur. Árni Páll Árnason sem Össur á heimasíðu sinni segist hafa vakað yfir í pólit- ískri bernsku náði líka ótrúlegum árangri og krækti sér í öruggt þing- sæti. Í Norð- vesturkjör- dæmi vann séra Karl Matthíasson frægan sigur og náði öðru sæti sem ætti að duga til þingfarar, en segja má að séra Kalli sé heimilisklerkur hjá Öss- uri. Kristján Möller og Einar Már unnu örugga prófkjörssigra. Auðvitað sam- gleðst allt sam- hent Samfylk- ingarfólk þessum ágætu sigurvegurum en það hlýtur þó að verða einhverjum umhugsunar- efni hvort það sé einskær tilviljun eða glettni örlaganna að Jón Gunn- arsson sem aðhylltist andstæð- inga Öss- urar beið pólitískan bana í Suðurkjördæmi og erfðaprinsinn Lúðvík Bergvins- son varð að lúta þar í lægra haldi fyrir Björgvini, pólitískum kjör- syni Össurar. Það virðist svo sannarlega ekki fylgja því gifta að hafa farið gegn sitjandi formanni Samfylkingar- innar því að auk þeirra manns- skaða sem hér hafa verið taldir féll Anna Kristín Gunnarsdóttir úr öruggu sæti í Norðvesturkjör- dæmi. Andstæðingar Samfylkingar- innar í öðrum flokkum sem hafa orðið fyrir beittum penna Össurar geta ornað sér við tilhugsunina um að ekki sér enn þá fyrir end- ann á þeirri miklu valdatilfærslu sem orðið hefur í flokknum með þessum prófkjörum. Reykjavík er eftir. Fari svo að sú valdatilfærsla í Samfylkingunni sem hófst með prófkjörum á landsbyggðinni haldi áfram í Reykjavík mun þess ef til vill ekki langt að bíða að ein- hver impri á þeirri nýmóðins hefð í Samfylkingunni sem gert hefur Hin týnda kröníka Össurar Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar Í Dagbók Þráins Bertelsso nar víkur höfund- ur frá viðburðasnauðu og b orgaralegu lífi sínu og svipast um á hinum póli tísku vígvöllum og skáldar í eyðurnar í kröníku Össurar Skarp- héðinssonar um samtímastj órnmál. Einnig er minnst á 36 metra göngufer ð, 5-tugsafmæli og löngu tímabær afskipti æðr i máttarvalda af stjórnmálum vestan hafs. PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS laugardaginn 11. nóvember. X Kjörstaðirnir eru opnir frá kl. 9 til 18 í dag. KOSIÐ ER Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM: Hafnarfjörður: Víðistaðaskóli, Hrauntungu 7 Álftanes: Skátaheimilið, Breiðumýri Garðabær: Sjálfstæðisheimilið á Garðatorgi Kópavogur: Sjálfstæðisheimilið, Hlíðasmára 19 Mosfellsbær og Kjósarhreppur: Lágafellsskóli Lækjarhlíð Seltjarnarnes: Sjálfstæðishúsið, Austurströnd 3 í Suðvesturkjördæmi fer fram í dag Sigurrós Þorgrímsdóttir alþingismaður Pétur Árni Jónsson skattaráðgjafi Ragnheiður Elín Árnadóttir aðstoðarmaður forsætisráðherra Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri Bjarni Benediktsson alþingismaður Árni Þór Helgason arkitekt Bryndís Haraldsdóttir varaþingmaður Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar Steinunn Guðnadóttir íþróttakennari og fyrrverandi bæjarfulltrúi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ráðherra Ármann Kristinn Ólafsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.