Fréttablaðið - 11.11.2006, Side 34

Fréttablaðið - 11.11.2006, Side 34
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. „Ekki láta ykkur detta það í hug að ég sé líkur einhverjum þeim sem ég hef leikið. Ég er það alls ekki. Þess vegna kallast þetta að leika.“ Heimsmet í listaverkasölu Landakotsskóli fagnar afmæli sínu á veglegan hátt í dag, en nú eru liðin 110 ár frá því að danskar systur af sankti Jósefsreglu hófu kennslu í Landakoti og lögðu þar með grunninn að Landakots- skóla, sem er einn elsti skóli landsins og einn fárra einkaskóla. „Systurnar kenndu bæði frönsku og dönsku,“ segir Regína Höskuldsdóttir, skólastjóri. „Núna hefjum við frönskukennslu strax í fimm ára bekk,“ bætti hún við. Skólinn var rekinn af Kaþólsku kirkjunni þar til í fyrra, þegar honum var breytt í sjálfs- eignarstofnun með sjálfstæðri stjórn, en hann starfar þó áfram í húsnæði kirkjunnar við Túngötu. Regína segir tungumálakennsluna vera stolt skólans. „Já, tungumála- kennslan og fjölmenningin sem hér er. Hvert fjórða barn, ef ekki fleiri, er af erlendum uppruna, og svo er mikið um íslensk börn sem hafa búið erlendis,“ sagði Regína, en hún segir erlenda nem- endur spjara sig mjög vel í skólanum. „Ég hóf störf hér í fyrra, og þegar ég var rétt byrjuð kom hingað stúlka frá Úkraínu sem talaði ekki stakt orð í íslensku. Á vorprófinu í íslensku brill- eraði stelpan svo og var langt yfir með- allagi. Nú var að koma drengur frá Kína sem segir ekki orð, en ég hef engar áhyggjur af honum,“ sagði Regína, ánægð með frammistöðu nemenda sinna. Landakotsskóli hefur einnig verið mjög framarlega hvað varðar námsár- angur nemenda í stærðfræði og leggur jafnframt mikla rækt við listgreinar. „Hér starfar sérstakur tónlistarskóli, og við venjum fimm ára börnin á að syngja fyrir gesti og troða upp með eitt- hvað. Krakkarnir eru að gera mjög skemmtilega hluti í myndmennt, og sér- staklega í þemavikunni sem við héldum í tilefni af afmælinu. Þá unnu þau með heimsálfurnar. Unglingarnir okkar standa líka í miklum æfingum fyrir Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur, sem fer fram á þriðjudag. Við viljum sjá sjálfsöruggt ungt fólk, sem þorir að koma fram með sköpunar- verk sitt og vera stolt af því,“ sagði Regína. Nemendur í Landakotsskóla hafa að sögn Regínu vakið athygli vegna kurt- eisi sinnar og prúðmennsku. „Hér er bara einn bekkur í árgangi og bekkirnir fámennir. Allir þekkja alla með nafni og krakkarnir eru ófeimin við okkur. Hér ríkir líka mikið umburðarlyndi og það fá allir að vera þeir sjálfir, enda viljum við hafa hér systkinasamfélag. Við leggjum upp úr því að hafa jákvæðan aga, sem við viljum svo sjá þjálfast upp í sjálfsaga,“ sagði Regína, sem segir gesti í skólanum yfirleitt halda að nem- endur séu í prófum vegna kyrrðarinnar í húsnæðinu. Aðspurð hvort fjölmenningarsamfé- lagi skólans hljóti ekki að fylgja að börnin komi úr mismunandi trúarheim- um, segir Regína það mjög líklegt. „Ég held samt að það sé aðallega kristið fólk sem vill senda börnin sín hingað, en hér hafa ekki orðið neinir árekstrar. Við byrjum á því að fara með morgunbæn, sem mér finnst skapa góðan hópanda. Þó að skólinn sé ekki lengur rekinn af Kaþólsku kirkjunni viljum við halda í þessi fallegu, kristilegu gildi. Hér eru umburðarlyndi og mannkærleikur í hávegum höfð,“ sagði Regína. Sérstök hátíðarstund vegna afmæl- isins verður haldin í Kristskirkju klukk- an þrjú, en Landakotsskóli verður opinn á milli tvö og fimm. Nýstofnaður kór skólans mun koma fram, boðið verður upp á veitingar og gefst gestum tæki- færi til að skoða skólann og afrakstur þemavikunnar í skólanum. AFMÆLI Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðrúnar Pálsdóttur Lækjasmára 6, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á deild 14G á Landspítalanum og Rósu Kristjánsdóttur djákna fyrir ómetanlegan stuðning og hlýju. Sigurður Pálsson Þórunn Sigurðardóttir Sigurður Knútsson Páll Sigurðsson Aldís Aðalbjarnardóttir Sigrún Sigurðardóttir Tómas Erling Lindberg Ásgeir Sigurðsson Jóhanna G. Guðjónsdóttir Guðný Sigurðardóttir Halldór Ág. Morthens Hildur Sigurðardóttir Barnabörn og barnabarnabörn Legsteinar Kynningarafsláttur af völdum tegundum Fjölbreytt úrval Hagstæð verð Stuttur afgreiðslufrestur Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Sigurðar Snæbjörnssonar Höskuldsstöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar FSA. Rósa Árnadóttir og fjölskylda. Okkar elskulegi og ástkæri, Guðmundur Ingi Ólafsson Hólabraut 14, Skagaströnd, lést á gjörgæsludeild Landspítalans 8. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ólafur R. Ingibjörnsson Hrönn Árnadóttir Árný Guðrún Ólafsdóttir Haraldur Friðriksson Rebekka Laufey Ólafsdóttir Ari Þór Guðmannsson Brynjar Max Ólafsson Ingibjörn Hallbertsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.