Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 90

Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 90
upp að mér. Í einhverju skelfingar- ástandi stökk ég ofan á bakið á krókódílnum og hélt honum niðri þannig.“ Huginn segir að þrátt fyrir að þessi krókódíll hafi ekki verið neitt risastór þá hafi það ekki verið freistandi að fá tennurnar í sig. „Um borð með okkur var einn snarbilaður heimamaður sem hló og hló að þessu. Hann stundaði það að stinga smáfugla á hol með spjóti og hlæja síðan eins og geðsjúkling- ur. Hann reddaði þessu síðan og tjóðraði niður krókódílinn, sem var svo drepinn og etinn.“ Auk þess að veiða krókódíla veiddi Huginn píranafiska í Amaz- on. „Mér fannst þeir nú bragðast eins og ýsa en það var alveg ótrú- legt að sjá þá koma um borð. Tenn- urnar í þeim eru alveg eins og rak- vélarblöð og skoltarnir skella saman á fullu eins og hakkavél þegar þeim er skutlað um borð. Á ákveðnum stöðum í Amazon eru menn ekkert að dýfa sér út í enda varð manni stundum hverft við þegar eitthvað straukst við mann í vatninu.“ Huginn segir ótrúlegan mun á fólkinu á öllum þeim stöðum hann hefur komið til; Aröbum, Evrópu- búum, Suður- og Norður-Ameríku- búum. „Maður hefur séð neikvæða fréttaumfjöllun um öll Arabalönd- in en þar voru allir boðnir og búnir að aðstoða. Ef maður var að húkka far þá stoppaði alltaf fyrsti bíll og fólk bauð manni jafnvel nestið sitt. Það var alveg rosaleg hjálp- semi þar,“ segir Huginn og bætir því við að einu sinni hafi maður reynt að angra hann úti á götu. „Þá kom annar maður aðvífandi, sparkaði til hans og sagði honum að fara. Það er einhver samfélags- leg ábyrgð í gangi þarna. Maður er eiginlega miklu óöruggari innan um alla dópistana og rónana á lest- arstöðvum í Evrópu. Í Suður- Ameríku er aftur á móti svo mikil fátækt að neyðin rekur fólk til að ræna en í Norður-Ameríku er síðan mest af furðufuglum,“ segir Huginn, sem ferðaðist á puttanum um alla Norður-Ameríku í nokkra mánuði. Spurður hvort þessi ferðalög hafi ekki verið kostnaðarsöm segir Huginn: „Þetta kostar voða lítið ef maður ferðast á þennan hátt. Þú getur til dæmis lifað á 200 krónum á dag í Bólivíu þar sem innifalin er gisting, matur og ferðalög. Ég var búinn að leggja heilmikið fyrir áður en ég fór af stað enda er þetta ekkert tekið á yfirdrætti.“ Huginn segir ferðalögin sem hann hafi farið í vera mjög erfið. „Þú ferð í túristaferð til að slappa af en þarna þarftu að vera á tánum allan tímann. Það var til dæmis fimm sinnum reynt að ræna mig í ferðinni um Suður-Ameríku,“ segir Huginn, en hann segist ekki hafa tölu á því hvað hann hafi farið til margra landa á undanförnum árum. „Asía og Ástralía eru einu heimsálfurnar sem ég á eftir og það er á teikniborðinu núna að fara í ársferð og taka þá alla Asíu í einni ferð,“ segir ævintýramað- urinn Huginn Þór Grétarsson. sófi: Chateau d’Ax Como 3ja sæta. 333.000 kr. Ef þér líkar Chateau d´Ax Como sófinn - skoðaðu þá: Höfum opnað stærri verslun með enn fjölbreyttara úrval af húsgögnum og smávöru fyrir heimilið að Síðumúla 30 Komdu við, úrvalið kemur á óvart. heima er best! “ Það var nú ekki svo erf i t t að setjast aftur á skólabekk eft i r öl l þessi ár. Þetta er bara alveg þrælgaman - svo er frábært að geta legið heima í sófanum með góða tónl ist í heyrnartólunum og lært! ” Ragnhildur Gísladóttir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.