Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 91

Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 91
Fara saman á fjöll Einfalt ástarsamband Fjölmargir Íslendingar hafa einhvers konar gæludýr á heimilum sínum og eru þá hundar og kettir líklega einna vinsælustu gælu- dýrin. Fréttablaðið hafði upp á nokkrum þekktum einstaklingum sem eiga gæludýr. Upplýsingafulltrúi Impregilo og eiginkona hans, Margrét Ýr Ingimarsdóttir, eiga hund og tík af tegundinni ungversk vizsla. „Þetta er veiðihundakyn sem er að marka sín fyrstu spor á Íslandi en það eru til um tuttugu svona hund- ar á landinu í dag,“ segir Ómar, sem fékk sér hundinn Húgó þegar hann var í mastersnámi í Bret- landi. „Ég keypti hann eiginlega af tilviljun og var sagt að hann myndi henta mér mjög vel, sem hann hefur svo sannarlega gert.“ Ómar er nýbúinn að fá sér tík- ina Heru, sem er af sömu tegund til þess að tryggja að stofninn haldi sér almennilega. „Hún er náttúrulega óskyld þeim hundum sem eru hér fyrir og ég stefni að því að láta hana gjóta að minnsta kosti tvisvar,“ segir hann og bætir því við að þetta séu veiðihundar. „Ég er að berjast við að koma veiðidellu í hundana og fer með þá á fjöll alltaf þegar ég á lausar stundir að veiða rjúpu og gæs.“ Ómar segir hundana vera mikla félaga þrátt fyrir að tíkin hafi aðeins verið hjá honum í mánuð. „Þau sofa saman á púða og geta leikið sér saman alveg tímunum saman og slegist um leikföngin.“Með Grímu í stúdíói Heiða söngkona á loðinn chihu-ahua hund sem heitir Gríma. „Ég gaf mér hana í jólagjöf fyrir jólin í fyrra þannig að ég er búin að eiga hana í tæpt ár,“ segir Heiða um Grímu, sem er nýorðin eins árs og er hvers manns hug- ljúfi. „Það er voða þægilegt að hún er svona lítil því ég get tekið hana með mér hvert sem ég fer, enda fer hún með mér í stúdíó og allt.“ Heiða segir fólk ekkert hrætt við svona litla hunda þó að stóru hundarnir séu oftast ljúfari. „En hún er alveg rosalega góð og mannblendin. Við erum rosalega miklir félagar og það er ofsalega gott að eiga hana og kúra hjá henni. Henni finnst æðislega gaman ef einhver nennir að liggja uppi í sófa með henni,” segir Heiða. Á enga óvini Gæludýrið hans Grétars heitir Prins og verður sjö ára á næstu dögum. „Prins er beagle- hundur og er mjög vinsæll heimil- ishundur í Ameríku en teikni- myndapersónan Snoopy er einmitt af þessu kyni,“ segir Grétar og bætir því við að Prins sé mjög skapgóður og þægilegur heimilis- hundur. „Hann geltir nánast aldrei. Einu skiptin sem hann geltir er þegar hann sér bráð, til dæmis ef hann sér kanínu í Öskjuhlíðinni. Síðan geltir hann ef við segjum honum að hann eigi að fara í bað,“ segir Grétar kíminn. „Þá leggst hann á bakið á gólfið og við þurf- um nánast að draga hann í sturt- una. Annars er hann ofsalega ljúf- ur og á enga óvini. Það er alveg sama hverja hann hittir, hann dill- ir alltaf rófunni.“ Grétar segir beagle-hunda hins vegar vera þekkta fyrir strokueðli og þau hafi ekki farið varhluta af því þegar Prins var lítill. „Hann tók stundum á rás niður götuna og það er bara heppni að hann hefur ekki lent undir bíl. Svo kom hann til baka ofsalega ánægður með sig. Annars eru einu skiptin sem hann er laus þegar við erum í sumarbústaðnum. Þar hleypur hann um allt,“ segir Grétar um prinsinn sinn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.