Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 95

Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 95
! Hvað er þetta eiginlega? Sápa? Konur tala saman og ekki, tómar augngotur, pískur, hálfkveðnar vísur, ein að tala ofan í aðra. Les- andi veit ekki oft hver er að tala, hver er þessi „ég“? Aðkomustúlka sem flyst inn á miðaldra konu, Júlíu, hún sjálf eða systir hennar Lena sem kemur óvænt heim frá Ameríku og setur staðið samfélag í fjölskyldu þar sem allt er þaggað niður á hvolf? Ný skáldsaga Fríðu Á. Sigurð- ardóttur er alla vega vendilega fókuseruð á konur: mæður, systur, frænkur, ömmur og formæður. Karlmenn koma þar við sögu en eru einsleitar og oftast neikvæðar flatar myndir. Væri kyni snúið við í sögu sem þessari og karlar gerð- ir að meginviðfangsefni en konur stæðu fölar og fáskiptnar í bak- grunni heyrðist hljóð úr horni:hví- lík karlremba! Þessi einsleitni á sjónarhorni er galli á sögunni. Annar er gamla klisjan um konuna sem fór út, settist að og lagði sig eftir frægð og frama, kemur óvænt heim og spillir öllu en fær makleg málagjöld; undarlega nei- kvæð og tíðförul mynd í skáldsög- unni íslensku og leikritum raunar líka. Sögustíll Fríðu er skemmtilega unnin, brotakennd setningaskipan, athöfn falin í sagnorði, kubbóttur stíll en hraður og beinir lesenda á mörg mið í senn. Stíllinn skapar óreiðutilfinningu, í rýminu eru raddirnar bæði í heyranda hljóði og hugsanir. Vitund lesandans er þeytt til og frá: hver er að tala? Hver er að hugsa? Sagan er römmuð inn af aðkom- ustúlkunni sem segir frá komu sinni í hús Júlíu en innan þess ramma er frásögn af formóður systranna, smælingja í sveitasam- félagi nítjándu aldar. það er veik- asti hluti verksins, verður óþarf- lega melódramatískur og gamaldags í hugsun. Þá er ýmis- legt í hrapallegum örlögum fjöl- skyldunnar – á tímabili var ég að láta mér detta í hug að gera ættart- ré til að átta mig á öllu þessu fólki – æði ofsalegt, dauðdagar, slys, misnotkun á víni og lyfjum, með- virkni og kúgun. Allt þetta er þarna – í hálfkveðnum og óskýrum vísum. Þannig tekst módernískur frá- sagnarháttur og spennandi á við gamaldags og klisjukennd viðhorf höfundar sem stýrir söguefninu. Verkið heppnast vel að einu leyti en er að öðru leyti á brauðfótum. Þar sem það ætlar sér að skoða kvenna- megin, afl kvenna, samúð þeirra og umhyggju, ábyrgð má segja, verða mótsagnirnar hrópandi. Karlfyrir- litningin sem leynist í alvitrum sögumanni, óþol gagnvart konum sem brjótast út, rómanaklisjurnar sem byggðar eru inn í frásögnina, jafnvel síðbúið pólitískt sjónarhorn. Og að ekki sé talað um persónu Júlíu sem á að vera einhver kjarni í þessu öllu saman. Ný skáldsaga Fríðu veldur von- brigðum en ætti samt að vera nauð- synlegur hlekkur þeim sem hafa fylgst með og dáð framgang henn- ar síðustu áratugi. Yrsa fer á netið Á fæðingardegi þjóðskálds- ins Matthíasar Jochumsson- ar í dag verður þingað um ævi hans og störf í Þjóðar- bókhlöðunni en á morgun verður haldið annað mál- þing fyrir norðan og kvöld- vaka í Akureyrarkirkju. Úlfar Bragason kemur að skipu- lagningu málþingsins í dag fyrir hönd Stofnunar Árna Magnússon- ar í íslenskum fræðum sem stend- ur að henni ásamt Landsbókasafni Íslands og JPV útgáfu. Hann segir að í tilefni af útgáfu ævisögunnar sé vert að staldra aðeins við og skoða þennan merka mann og höf- undarferil hans í víðu samhengi. „Matthías var prestur og trú- maður mikill en hann var líka eitt afkastamesta sálmaskáld þjóðar- innar. Gunnlaugur A. Jónsson próf- essor mun fjalla um sálmakveðskap hans og séra Gunnar Kristjánsson um trúmanninn Matthías sem kirkj- unnar menn voru nú ekki alltaf ánægðir með.“ Auk þess mun Sveinn Yngvi Egilsson dósent fjalla um ljóðlist hans almennt. Úlfar bendir á að Matthías hafi verið ötull talsmaður frelsisins og þar með talið kvenfrelsis. „Helga kress mun fjalla um samband hans við skáldkonur og hvernig hann yrkir um konur. Matthías var líka okkar helsti þýðandi á 19. öld og þýddi skáldjöfra á borð við Ibsen og Shakespeare en Kristján Árna- son bókmenntafræðingur mun flytja erindi um þýðingar hans.“ Ævisagnaritarinn Þórunn Erla Valdimarsdóttir mun síðan greina frá glímu sinni við höfundinn og manneskjuna Matthías Jochums- son og leikkonurnar Guðrún Ásmundsdóttir og Halldóra Malin Pétursdóttir munu lífga við kapp- ana Skugga-Svein og Ketil skræk úr samnefndu leikriti Matthíasar. Dagskráin á Akureyri á morg- un ber yfirskriftina „Ó, faðir gjör mig ljúflingslag“ en þar flytja Helga og Þórunn erindi ásamt Jóni Hjaltasyni um blaðamanninn og útgefandann Matthías. Um kvöld- ið verður síðan fjölbreytt dagskrá í tali og tónum þar sem flutt verða lög og sálmar, lesnar sögur Matthí- asar og leikin brot úr leikverkum hans en meðal þátttakenda á kvöldvökunni eru Megas, Hilmar Örn Agnarsson, Guðrún Ásmunds- dóttir og Stúlknakór Akureyrar- kirkju. Málþingið hefst í Þjóðarbók- hlöðunni kl. 11 í dag og stendur til kl. 16. Nánari upplýsingar um dag- skrána á Akureyri má finna á heimasíðunni www.akureyri.is. Ný kvennasápa Fríðu Kl. 11.00 Opið hús hjá Listaháskóla Íslands. Nemendur og starfsfólk skólans kynna starfsemi í fjórum deildum og þremur húsum, á Sölvhólsgötu, Laugarnesvegi og í Skipholti. Allir áhugasamir eru hjartanlega vel- komnir en dagskráin stendur til kl. 16. Á morgun verða lokatónleikar á Tónlistardögum Dómkirkjukórs- ins. Þau bregða sér upp hæðina úr Kvosinni og halda síðustu tónleika hátíðarinnar sem nú er haldin í 25 sinn í næstu sókn. Hallgrímskirkja er enda betur fallin fyrir stórvið- burð sem þennana: Missa choral- is¿ eftir Franz Liszt. Til að takast á við þetta verk hefur kórinn bætt við sig söngfólki og eru í þetta skipti 80 söngvarar sem syngja tónverkið og þá þarf gott pláss, bæði fyrir flytjendur og gesti. Messan er eitt af síðustum tón- verkum tónskáldsins, samin í Vat- íkaninu í Róm í síðrómatískum stíl. Fimm einsöngvarar taka þátt í flutningnum, þau Marta Guðrún Halldórsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Gunnar Guðbjörns- son, Bergþór Pálsson og Davíð Ólfasson. Lenka Mátéová leikur orgel og stjórnandi er Marteinn H. Friksson. Á tónleikunum mun Dómkórinn einnig syngja mótett- ur eftir Palestrina og Bruckner. Tónleikarnir hefjast kl. 17 á sunnu- dag og er miðasala við inngang- inn. Kórmessa eftir Liszt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.