Fréttablaðið - 11.11.2006, Síða 99
Ég brá landi undir fót um helgina og fór til Noregs sem er eina landið
sem ég hafði ekki komið til í Skandinavíu. Nú var hins vegar komin
tími á að skoða þetta land af alvöru og eyddi ég flestum dögunum í
höfuðborginni skoðandi mannlífið og jú auðvitað tískuna. Það er
ekkert skemmtilegra en að vera í stórborg, sitja á kaffihúsi og virða
mannlífið fyrir sér út um gluggan.
Hver einasta borg er með sinn eigin fatastíl eða alla vega einhverja
eina tískubólu sem setur svip á kvenkyns íbúa borgarinnar. Til dæmis
í Kaupmannahöfn, fyrir ekki svo löngu síðan, voru allar dönsku
stúlkurnar með Louis Vuitton tösku, hvort sem þær væru ekta eða
ekki. Þegar ég bjó þar á bæ í nokkra mánuði stóð þessi tískubóla sem
hæst og ég var meira að segja farin að spá alvarlega í að fjárfesta í
einni slíkri, þó að mér finnist þessar töskur ekkert sérstaklega
fallegar. Svona hafa tískubólur mikið vald á okkur tískuspekúlöntum,
stundum verður maður bara að fylgja straumunum.
Í Osló var trendið hins vegar augljósara en á öðrum stöðum sem ég
hef komið. Þarna var eitt trend sem allar stúlkur voru búnar að
tileinka sér. Það var að vera með sokkana yfir buxurnar. Ekki skipti
miklu máli hvernig sokkarnir voru eða hvort þeir voru yfir höfuð nógu
fallegir til að flagga. Hver einasta stúlkukind var í stórum íþrótta-
skóm, gallabuxum og tróð skálmunum ofaní, eins og þær ættu lífið að
leysa.
Þetta fannst mér mjög merkilegt og er ég ekki að ýkja þegar ég
segi að önnur hver stúlka í Osló var með skálmar girtar ofan í
sokkana. Ég fór að reyna að muna hvort þetta hefði kannski verið í
einhverju tískuritinu eða hvort Kate Moss hefði kannski látið sjá sig
svona klædda einhvern tímann enda er það uppspretta tískubólanna.
En nei það er ekki svo gott, skálmar ofan í sokkum eru ekki á lista yfir
tískubólur vetrarins hjá mér.
Það væri gaman að finna uppsprettu þessara sérkennilega trends
sem tröllríður Noregi en það var ekki að heilla mig og mun ég ekki
sama hvað dynur á sjást arka um borgina með skálmarnar á buxunum
mínum. Því get ég lofað!
Sokkar í aðalhlutverki
Veikust fyrir kjólum og girnilegum hettupeysum
Nú er vetrarharkan farin að
segja til sín af alvöru og tími
til kominn að fara og fjárfesta
í góðri yfirhöfn. En sama
hversu mikið maður leitar
þá er ávallt erfitt að finna
hina fullkomnu yfirhöfn.
Þær verða að vera hlýjar,
þægilegar og auðvitað
samkvæmt vetrartísk-
unni. Kápur eru algjörlega í tísku
núna og búðirnar fullar af kápum í
hinum ýmsu stærðum og gerðum.
Þennan veturinn eru það tvær
gerðir sem eru í tísku, kvenlegar
kápur með belti í mittið eða hinar svo-
kölluðu blöðrukápur sem er hálfsnið-
lausar í laginu. Báðar þjóna sama til-
gangi en eru mjög ólíkar. Kvenlegu
kápurnar eru í fínni kantinum og
henta vel fyrir öll boðin sem eru í
uppsiglingu á meðan blöðrukápurnar,
eins og ég kýs að kalla þær, passa vel
við niðurmjóar gallabuxur og til
hversdagslegri afnota.
Það þurfa allar konur að eiga góða
kápu þannig að ekki er seinna vænna
en að tryggja sér eina góða áður en
jólin fara að setja sinn svip á versl-
anirnar.
Klæðilegar kápur
Halli
Palli*
Laddi
*fyrir okkur hin
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/N
A
T
3
36
39
1
1/
06