Fréttablaðið - 20.11.2006, Side 4
Lögreglan rannsakar
nú ör sem virðist hafa verið
skotið úr lásboga á knattspyrnu-
leik í Stockport.
Um
utandeildar-
leik var að
ræða en eftir
að dómarinn
fann 60 cm lás-
bogaörina á
kafi í vellinum
flautaði hann
leikinn af.
„Við héldum að þetta væri
flugeldur eða eitthvað slíkt sem
enginn hefði séð,“ sagði formaður
annars liðsins en hann sat í
stúkunni og horfði á er leikmenn
gengu af velli.
Ekki er vitað hver skaut örinni
eða hvað bogamanninum gekk til.
Lásbogi á knatt-
spyrnuvelli
Sáttmáli um
sameiginlega baráttu gegn offitu
hefur verið undirritaður af fulltrú-
um Evrópulanda Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar. Í sáttmálan-
um er kallað eftir aukinni
samstöðu á milli opinberra aðila,
frjálsra félagasamtaka, einstakl-
inga og fjölskyldna.
Offita er vaxandi vandamál í
Evrópu og hefur tíðni hennar
þrefaldast síðustu tvo áratugi.
Þróunin þykir uggvænleg, ekki
síst í ljósi þeirra heilbrigðisvanda-
mála sem offita hefur í för með
sér. Talið er að allt að sex prósent
af útgjöldum til heilbrigðismála í
Evrópu megi rekja til offitu.
Berjast saman
gegn offitu
„Við töldum og teljum enn að
þessi leki sé vegna framkvæmda
við snjóflóðavarnargarðinn,“
segir Þorsteinn B. Bjarnason, íbúi
á Siglufirði, sem berst við endur-
tekinn vatnsleka í húsi sínu sem
stendur aðeins fáeina metra frá
fæti nýbyggðs varnargarðs í hlíð-
inni fyrir ofan.
Þorsteinn, kona hans og tvö
börn, fjögurra og sjö ára, hafa nú
í tvö ár öll sofið í einu herbergi á
efri hæð húss síns á Hólavegi þar
ekki er hægt að dvelja í svefnher-
bergjum í kjallara vegna vatns-
leka hófst í september 2004. Þor-
steinn segir fjölskylduna þess
utan hafa verið í stórhættu á tíma-
bili vegna grjótflugs úr garðin-
um.
Bæjarsjóður samþykkti að
kosta drenskurð við hús Þorsteins
sem var grafinn í sumarlok í
fyrra. Þorsteinn segir að þá hafi
tekið fyrir lekann. Í maí á þessu
ári fékk fjölskyldan 272 þúsund
króna bætur vegna skemmda á
gólfefnum og skápum. Nú í ágúst
var lokið við að leggja nýtt park-
ett í kjallaranum og stefndi í að
fjölskyldan gæti hafið eðlilegt líf.
„Við vorum reiðubúin að flytja
niður aftur úr þessu eina herbergi
sem við höfum sofið í öll fjögur
en tókum þá eftir því að í einu
horninu var rakabóla og mygla.
Ég reif upp hluta af parkettinu og
þá kom í ljós að það er byrjað að
seytla inn aftur í einu horninu,“
lýsir Þorsteinn.
Fjölskyldan á Hólavegi hefur
nú óskað eftir því við bæjaryfir-
völd og Ofanflóðasjóð að málið
verði leyst í eitt skipti fyrir öll.
Bæjarstjórnin hefur ákveðið að
kalla til hlutlausan aðila til að
meta hvort ábyrgðin á tjóninu
hvíli í raun á yfirvöldum.
Í huga Þorsteins er hins vegar
enginn vafi. „Þetta er ættaróðalið.
Ég er fæddur hér. Það hefur aldrei
verið leki í þessu húsi fyrr,“ segir
hann.
Þorsteinn segir kröfu sína ein-
faldlega þá að málið verði klárað.
„Sé ekki hægt að gera við þetta
þá förum við fram á að okkur verði
hjálpað, eða útvegað jafnvel nýtt
húsnæði. Við erum bara orðin mjög
þreytt á þessu,“ segir Þorsteinn
sem tekur þó fram að í raun sé
snjóflóðavarnargarðurinn ágætur
– fyrir utan staðsetninguna:
„Garðurinn er góð vörn svo
fremi sem hann skapar okkur ekki
meiri hættu og framkvæmdirnar
sjálfar flæmi okkur ekki úr hús-
inu. Það er svolítið kaldhæðnis-
legt að það er búið að verja okkur
frá fjallinu en ekki frá sjálfu sköp-
unarverkinu.“
Varnargarður angrar
siglfirska fjölskyldu
Fjögurra manna fjölskylda á Siglufirði hefur öll sofið í sama herberginu í rúm
tvö ár vegna vatnsleka frá snjóflóðavarnargarði. Bæjarfélagið og Ofanflóðasjóð-
ur íhuga nú ábyrgð sína. Hjónin eru þreytt á ástandinu og vilja varanlega lausn.
Ríkisstjórn bandalags
hægri- og miðflokkanna í Svíþjóð
er nú orðin óvinsælli en bandalag
stjórnarandstöðuflokkanna. Þetta
kemur fram í niðurstöðum
skoðanakönnunar
sem birtar voru í
gær.
Núverandi
ríkisstjórn komst
til valda eftir
kosningarnar í
september
síðastliðnum en
röð hneykslismála
hefur dregið úr
vinsældum
stjórnarinnar. Stjórnarflokkarnir
njóta nú 43,8 prósenta fylgis, sem
er 4 prósentum minna en í
kosningunum. Á meðan nýtur
stjórnarandstaðan stuðnings 51,2
prósenta kjósenda.
Sænska stjórn-
in óvinsæl
Nokkur hundruð
manns komu saman í Madríd í
gær til að minnast dauða einræð-
isherrans Francos.
Fólkið kom saman á Plaza de
Oriente, en í valdatíð Francos var
torgið vettvangur stórra útifunda.
Haldnar voru ræður þar sem
stefnu stjórnvalda í innflytjenda-
málum var mótmælt og aukin
réttindi samkynhneigðra voru
fordæmd.
Franco lést fyrir 31 ári, þá 82
ára að aldri, eftir nærri 40 ára
valdasetu. Dauða hans er minnst
hvert ár en stöðugt fækkar þeim
er kjósa að heiðra minningu hans.
Minntust
dauða Francos
Hjörtur Magni Jóhanns-
son, safnaðarprestur Fríkirkj-
unnar í Reykjavík, segir mikla
mismunun eiga sér stað á milli
trúfélaga á Íslandi. Hann segir
að í raun ríki ekki trúfélagafrelsi
hérlendis því á hverja ári fái þjóð-
kirkjan vel á fjórða milljarð króna
í framlög frá ríkinu á þeim for-
sendum að ríkið sé að greiða út
kirkjusögulegan arf allra lands-
manna. Hann minnir á að 50 þús-
und Íslendingar standi fyrir utan
þjóðkirkjuna og því felist í þessu
mikið óréttlæti.
„Ég hef sett fram þessa gagn-
rýni áður og bent á að þetta stang-
ast á við jafnréttisákvæði stjórn-
arskrárinnar. Forsendur jafnréttis
og trúfrelsis byggjast á að opinber-
um gjöldum einstaklinga sé ekki
með beinum eða óbeinum hætti
ráðstafað til eflingar trúfélags sem
viðkomandi á ekki aðild að. Einnig
að trúfélögum sé ekki mismunað
með fjárveitingum. Hvort tveggja
er brotið með þessu,“ segir Hjört-
ur Magni. Hann segir að bæði
dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
ráðherra málaflokksins og þjóð-
kirkjustofnunin réttlæti fjárveit-
ingarnar með fjarstæðukenndum
rökum. „Á sama tíma segir biskup
að engin ríkiskirkja sé til en þigg-
ur þó laun sín frá ríkinu í hverjum
mánuði. Ég vil meina að þetta sé
siðlaust þótt það sé löglegt.“
Karl Sigurbjörnsson, biskup
Íslands, vildi ekki tjá sig um gagn-
rýni Hjartar í gær.
Mikið óréttlæti viðgengst