Fréttablaðið - 20.11.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 20.11.2006, Blaðsíða 70
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Leit stendur yfir að leikkonum til að fara með hlutverk bandarísku söngkonunnar Janis Joplin í nýju leikriti sem verður frumsýnt á Nasa um áramótin. Leikritið nefnist 27 og fjallar um ævi Janis sem lést úr ofneyslu eiturlyfja árið 1970. Höfund- ur er Ólafur Haukur Sím- onarson og leikstjóri er Jóhann Sigurðarson. Til stendur að tvær til þrjár söngkonur muni fara með hlut- verk Janis og hefur Andrea Gylfadóttir verið nefnd sem ein af þeim. „Það eru nokkrar búnar að lesa handritið og hafa sýnt þessu gríðarlegan áhuga,“ segir Jóhann, sem tekur fram að enn eigi eftir að ráða í hlutverkin. „Við fengum yfirlestur hjá for- laginu Nordiska Theater Starck- forlaget og fengum svar um að þetta væri besta „mono- drama“ sem þeir hafa lesið í mörg ár,“ bætir hann við. „Leikritið heitir 27 og bygg- ir það á því að þau dóu öll 27 ára gömul; Janis, Morrison og Hendrix. Þetta er mikil örlagatala.“ Búast má við skemmtilegu leikriti á Nasa enda eru mörg laga Janis orðin sígild, þar á meðal Mercedes Benz, Me and Bobby McGee, Sum- mertime og Cry Baby. Leitað að íslenskri Janis Joplin Guðjón Vilhelm boxþjálfari var einn af þeim frumkvöðlum sem komu boxíþróttinni á kortið hér á landi fyrir nokkrum árum og vann mikið starf í Keflavík við uppgang íþróttarinnar þar. Hann tók sér frí frá þjálfun í tvö ár en er nú mætt- ur til starfa á ný hjá BAG í Kefla- vík. „Ég tók að mér barna- og ungl- ingastarfið núna í haust og það gengur alveg blússandi vel,“ segir Guðjón en yfir hundrað krakkar á grunnskólaaldri eru búnir að skrá sig í boxið fyrir veturinn. „Það var ráðinn erlendur þjálfari til að sjá um eldri boxarana og hann er bara að keyra það áfram,“ bætir hann við en BAG er með stór áform fyrir veturinn. „Við ætlum að halda mót hérna í Reykjanesbæ eftir áramótin og fá írskt hnefa- leikalið í heimsókn. Það verður þá keppt bæði í yngri og eldri flokk- um.“ Guðjón tók sér frí frá boxinu til þess að byggja upp fyrirtækið sitt, Humarsöluna, sem nú er komin á gott skrið. „Mig langaði til þess að fara aftur að þjálfa og vinna þá með krökkunum. Upphaflega var markmiðið að ná til þeirra krakka sem eru ekki þegar í einhverjum öðrum íþróttum enda sannfærðist ég enn frekar um það meðan ég var fyrir utan þetta hversu gríðarlegt forvarnargildi boxið hefur,“ segir Guðjón en hann segir það lykil- atriði að miðla réttum boðskap inn í klúbbana. „Ég á sjálfur fjögur börn og mér finnst alveg frábært að vera að þjálfa vini þeirra og kunningja því þannig tengist ég börnunum mínum enn frekar.“ Guðjón segir gríðarlega efni- lega krakka vera að æfa í BAG í vetur. „Það eru margir sem eru ekki með minni hæfileika en Skúli „Tyson“ á sínum tíma þannig að ég held að við eigum eftir að sjá marga góða stráka koma úr Keflavík á næstu árum,“ segir Guðjón Vilhelm stoltur. Boxæði í Keflavík Í verslun Gilberts Ó. Guðjónsson- ar úrsmiðs á Laugaveginum má fá íslensk gæðaúr, sem framleidd eru af syni Gilberts og tveimur samstarfsmönnum hans. Um er að ræða fyrstu íslensku úrin, en þau hafa ekki einungis notið vinsælda landsmanna, heldur vakið athygli Íslandsvinanna Eli Roth og Quent- in Tarantino. „Eli Roth var hjá okkur í síð- ustu viku og keypti tvö úr,“ sagði Gilbert í samtali við Fréttablaðið, en þetta er í annað skiptið sem leikstjórinn fjárfestir í úri hjá Gil- bert. „Um áramótin síðustu komu hann og Quentin Tarantino og keyptu hvor sitt úrið. Það var frumgerðin. Þeir fengu úr númer þrjátíu og fjögur og þrjátíu og fimm,“ sagði Gilbert. „Núna var þetta þannig að dóttir mín hitti Eli á balli. Hún kannaðist við hann síðan um áramótin og spurði af hverju hann væri ekki með úrið. Hann sagðist ekki hafa tímt að hafa úrið á sér í vinnunni, því hann var að taka upp í Bláa lóninu, en að það væri á dagskránni hjá honum að koma hingað aftur,“ sagði Gilbert, en svo fór að Eli mætti ásamt bróður sínum, Gabri- el Roth, og Eyþóri Guðjónssyni, sem lék í Hostel. „Eli keypti úr handa bróður sínum í afmælisgjöf og fékk sér annað. Hann sagði ein- mitt að nú myndi Tarantino verða öfundsjúkur,“ sagði Gilbert, en íslenska úrið hans Tarantino hefur til dæmis fylgt honum í viðtals- þátt Conan O’Brien, sem nýtur mikilla vinsælda vestan hafs. „Þeir eru svo miklir Íslandsvinir. Maður þarf að átta sig á því að þetta er náttúrlega allt annar heimur hérna. Þeir geta gengið um göturnar óáreittir og finnst það alveg æðislegt,“ sagði Gil- bert. Úrin, sem kosta um 100.000 krónur, hafa notið mikilla vin- sælda að sögn Gilberts. „Fólk er svo ánægt með þetta framtak og margir spyrja af hverju ég hafi ekki verið fyrir löngu búinn að gera þetta,“ segir Gilbert, sem hefur verið úrsmiður í fjörutíu ár og lofar því að úrin muni endast í að minnsta kosti 100 ár. Gangverk og aðrir hlutar úrsins eru fengnir að utan, en úrin eru svo sett saman á verkstæði Gilberts. „Ætli það sé ekki svona fjórir fermetrar, enda köllum við þetta minnsta úrafram- leiðslufyrirtæki í heimi,“ sagði Gilbert. … fær Gilbert úrsmiður og fylgisveinar hans, sem framleiða hágæða íslensk úr sem hafa slegið í gegn hjá ekki ómerkari mönnum en Eli Roth og Quentin Tarantino. 58.900 kr. Skelltu þér á leik Tottenham og Wigan á White Hart Lane, sunnudaginn 26. nóvember með Tottenham klúbbnum á Íslandi. Gist er á fjögurra stjörnu hóteli, miðsvæðis í London, í þrjár nætur. Innifalið: Fararstjórn, rúta, morgun- verður og auðvitað miði á leikinn. Þeir sem vilja koma með en eru ekki félagar í Tottenham klúbbnum geta skráð sig á www.spurs.is. TOTTENHAM– WIGAN Verð frá PAKKAFERÐIR VIÐ ALLRA HÆFI Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100 24.–27. nóv. 69.900 kr. George Michael mættur aftur til leiks og heldur tónleika í Earls Court í London þriðjudaginn 28. nóvember. Þar mun kappinn leika öll vinsælustu lög ferilsins – og af nógu er að taka. Gist verður á fjögurra stjörnu Holiday Inn hóteli í tvær nætur. Innifalið í verði er flug, gisting í tvær nætur, morgunverður og að sjálfsögðu miði á tónleikana. GEORGE MICHAEL Verð frá 27.–29. nóv. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.