Fréttablaðið - 20.11.2006, Blaðsíða 21
Afa-samtökin, félag aðstandenda
aldraðra, héldu blaðamannafund-
fyrir skömmu um ástandið í vist-
unarmálum
aldraðra. Gagn-
rýndu þau harð-
lega „útspil“
heilbrigðisráð-
herra en ráð-
herrann til-
kynnti með
miklum áróður-
brag fyrir
skömmu ,að
verja ætti 1,3
milljörðum í
byggingu hjúkr-
unarheimila næstu 4 árin. Bentu
samtökin á, að ríkið hefði tekið
nær 3 milljarða úr framkvæmda-
sjóði aldraðra og notað í rekstur.
Þessi fjárhæð, 1,3 milljarðar, er
því aðeins brot þeirrar fjárhæðar.
AFA-samtökin krefjast þess, að
3 milljörðunum verði skilað að
fullu.
Samtökin sögðu á blaðamanna-
fundinum, að algert ófremdar-
ástand ríkti í hjúkrunar- og vistun-
armálum aldraðra. Biðlistar væru
langir eftir rými og margir aldr-
aðir þyrftu að vera í hverju her-
bergi. Í Danmörku þekkist ekki,
að fleiri en einn sé í herbergi.
Ísland er mörgum áratugum á
eftir Danmörku í hjúkrunar- og
vistunarmálum aldraðra. Afa-
samtökin krefjast þess, að aðgerð-
ir til úrbóta verði gerðar strax en
ekki eftir mörg ár eins og stjórn-
völd boða.
Afa-samtökin hafa m.a. sagt, að
heilbrigðisráðherra hafi ekki
heimild til þess að ákveða þær
aðgerðir sem hún hafi boðað í
hjúkrunar- og vistunarmálum
aldraðra.
Heilbrigðisráðherra, Sif Frið-
leifsdóttir, segir, að um misskiln-
ing sé að ræða hjá Afa- samtökun-
um. Aðgerðir stjórnvalda séu í
samræmi við samkomulag ríkis-
ins og Landssambands eldri borg-
ara frá í sumar. Hér gæti verið
um misskilning að ræða hjá ráð-
herranum. Landssamband eldri
borgara hefur ekkert umboð til
þess að semja fyrir hönd allra
eldri borgara um málefni þeirra.
Samkomulagið eða yfirlýsingin
frá í sumar hefur lítið gildi. Full-
trúar Landssambandsins voru
þvingaðir með hótunum til þess að
skrifa undir það. Landssambandið
telur þar aðeins um fyrsta skref
að ræða á langri braut og hefur
þegar samþykkt nýjar kröfur á
hendur ríkinu.
Tekið skal undir kröfur Afa-
samtakanna. Það verður að gera
aðgerðir strax. Það dugar ekkert
margra ára „plan“.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Afa vill
aðgerðir
Hátíðargleði á Skrúði
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
6
0
7
2
6
Jólabrunch í hádeginu alla sunnudaga.Verð 2.200 kr.
Njóttu aðventunnar í notalegu umhverfi á Skrúði. Jól á
öllum borðum í hádeginu og á kvöldin.
Verð 5.200 kr. á kvöldin og
3.200 kr. í hádeginu.
Hefst 24. nóvember.
Borðapantanir í
síma 525 9970
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI