Fréttablaðið - 20.11.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.11.2006, Blaðsíða 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Lúxus að vera í Mosfellsbæ Í ár var jólaskrautið komið upp í Kriglunni 9. nóvember. „Það er nú seinna en í fyrra því þá var búið að skreyta 1. nóvember,“ segir Birta Flókadóttir markaðsstjóri. Jóla- skrautið í ár eru heljarmikil silfur- hreindýr sem hanga úr loftinu eða á veggjum. „Við höfum skipt um jólaskraut á nokkurra ára fresti og í byrjun árs tókum við þá ákvörð- un að fá nýtt skraut í ár. Okkur fannst kominn tími á eitthvað ferskt og á ævintýralegum nótum. Hreindýrin hafa vakið athygli, krakkarnir eru mikið að benda á þau og finnst þetta sniðugt. Hrein- dýrin koma frá Bretlandi og við keyptum inn átta hreindýr. Þau eru náttúrlega kirfilega fest og úr eldvörnum efnum. Þau bjóða upp á að það er hægt að leika sér með lýsinguna á þeim. Í ár verður rauð lýsing en það má gera ráð fyrir því að við breytum um lit á næsta ári.“ Birta segir að ákveðið hafi verið að hlaða Kringluna minna en vana- lega og vera með færri hluti en stærri. „Í suðurhúsinu eru jóla- ljósakrónur, eins konar kristals- ljósakrónur. Þær eru franskar.“ Átta eldvarin silfurhreindýr Jarðgöngin um Hvalfjörð voru opnuð árið 1998 og það verður rukkað fyrir ferðir í gegnum þau í að minnsta kosti tíu ár í viðbót. Kristj- án Kristjánsson og Þórunn Kjartansdóttir voru á vakt í gjaldskýlinu þegar Tilveran kíkti á staðinn. Skýlið er mun stærra séð innan frá en að utan og minnir helst á félags- heimilið í Með allt á hreinu. Kristj- án situr við myndarlegt stjórnborð þar sem meðal annars eru skjáir sem sýna frá eftirlitsmyndavélun- um í göngunum. Hann rukkar bíla á leið til Reykjavíkur, en Þórunn rukkar bíla úr hinni áttinni. Það er hlýtt og notalegt inni í skýlinu þótt það sé heimskautakuldi fyrir utan. Vissulega vill þó blása inn um lúg- una. „Blessaður vertu, það er öll kynding hér á fullu,“ segir Kristj- án og bendir á ofn við fæturna á sér. „Kuldinn er svo sem ekkert vandamál. Þetta starf er ekki lík- amlega þreytandi en það getur oft verið andlega þreytandi. Ég myndi segja að það versta við djobbið er að fólk á það til að hella sér yfir mann, skamma mann svoleiðis eins og hund. Verstir eru þeir á pallbíl- unum sem eru lengri en sex metrar því þeir þurfa að borga 3.000 kall í göngin. Fólk er oft með ótrúlegan kjaft og leiðinlegt. Maður tekur skammirnar inn á sig og fer oft dapur í bragði heim.“ Átta manns starfa í skýlinu, á tveggja manna 8 klukkutíma vökt- um. „Konurnar eru á tvískiptum vöktum, en karlarnir í þrískiptum því að beiðni lögreglunnar þótti ekki í lagi að skilja konurnar einar eftir hérna á nóttunni,“ segir Þór- unn. „Það kom nú lögreglukona hérna um daginn og henni fannst þessar reglur algjört rugl.“ Skýlið er vistlegt. Þarna er kaffi- vél, súpuvél og að sjálfsögðu sal- erni. „Það er ekkert einmanalegt á næturvöktunum því það er vel séð um okkur,“ segir Kristján. Hann bendir á tölvu og sjónvarp máli sínu til stuðnings. „Við erum með netið og allar sjónvarpsstöðvarnar. En starfið gengur svo sem út á meira en að rukka því við sjáum líka um öryggismál í göngunum. Það kemur oft fyrir að menn verða bensínlausir þarna niðri eða að bílar bili. Á sumrin erum við að draga þetta tvo, þrjá bíla upp á dag.“ „Sem betur fer hafa nú aldrei orðið slys á fólki og við höfum aldrei þurft að binda um sár,“ segir Þórunn. „Menn keyra stundum utan í, stundum kannski fullir undir stýri. Svo eru göngin þrifin daglega og um helgar sjáum við um það. Það er ótrúlegasta drasl sem við höfum lent í að þrífa upp: smokkar, nærbuxur, hægðir – nefndu það!“ „Þetta getur líka verið skraut- legt á sumrin þegar sveitaböllin eru hérna í sveitinni,“ segir Kristj- án. „Þá eru iðulega einhverjir stuð- boltar sem ætla að labba í gegn eftir böllin. Þá er ekkert að gera nema hringja á lögguna. Það er líka agalega mikið um að menn eru að brjóta bjórflöskur í göngunum. Það er mikil slysahætta af því og oft springa dekk vegna þessa. Og svo hefur slökkvitækjum í göng- unum verið stolið að minnsta kosti þrisv-ar. Það er svaka vesen því slökkvitækin eru tengd við kerfi og við erum skyldug til að kalla slökkvilið og sjúkrabíl á svæðið þegar hreyft er við þeim.“ Þrátt fyrir óþægindi af fullum stuðboltum og einstaka skammir finnst Kristjáni og Þórunni vinnan fín. „Það er auðvitað mismikið að gera í þessu, en að meðaltali eru um 5.000 bílar að fara í gegn á sól- arhring,“ segir Kristján. „Á sumr- in er auðvitað meira að gera og á sunnudögum á sumrin bíður maður kannski góðan daginn tvö þúsund sinnum á einni átta tíma vakt. Maður er náttúrlega eins kurteis og maður getur við alla. En alveg sérstaklega við þessa á pallbílunum!“ Heilsað tvö þúsund sinnum á dag Eggert Bjarnason sölumaður hjá RV R V 62 19 B Þegar gæðin skipta máli Lotus Professional borðpappírsvörur Á t ilbo ði í nó vem ber 20 06 Lot us L inSt yle serv íett ur, disk am ottu r, „ löb era r“ og dúk ar Til hátíðabrigða Í verslun RV að Réttarhálsi eru nú á tilboði Lotus LinStyle dúkar og servíettur í mörgum litum. Einnig eru á tilboði ýmsar gerðir af servíettum, diskamottum og „löberum“ með jólamynstri. Takmarkað magn er í boði af sumum jólavarningi. Fyrstur kemur fyrstur fær. Fagna fönn Tæknileg mistök Vandfyllt skarð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.