Fréttablaðið - 01.12.2006, Side 28
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR28
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
icex-15 6.177 +0,73% Fjöldi viðskipta: 493
Velta: 5.078 milljónir
HLUtAbréF Í úrVALSVÍSitÖLU:
... Actavis 66,70 +0,60% ... Alfesca 5,10 +0,39% ... Atlantic
Petroleum 565,00 +0,00% ... Atorka 6,30 +0,48% ... Bakkavör
60,30 -0,50% ... Eimskipafélagið 31,00 +0,00% ... FL Group 23,20
+2,20% ... Glitnir 22,40 +2,75% ... Kaupþing 787,00 +0,26% ...
Landsbankinn 26,50 +0,76% ... Marel 78,00 -0,64% ... Mosaic
Fashions 16,80 +0,00% ... Straumur-Burðarás 17,30 +0,58% ...
Össur 113,00 -0,44%
MEStA hæKKUn
Glitnir +2,75%
FL Group +2,20%
Landsbankinn +0,76%
MEStA LæKKUn
tryggingamiðst. -2,50%
365 -1,43%
teymi -1,40%
Föroya Sparikassi Group, sem
verður skráður í Kauphöll Íslands
á næsta ári, er fyrsta óskráða fyr-
irtækið sem fær aðild að sænsku
fjármálaveitunni Euroland.com.
Forvígismenn Sparikassans segja
að aðgerðin sé liður í skráningar-
ferli félagsins á markað. Finn
Danberg, forstöðumaður mark-
aðsviðskipta hjá Sparikassanum,
segir að það sé mikilvægt að fjár-
festar, lánveitendur og sérfræð-
ingar hafi aðgang að nýjustu upp-
lýsingum um bankans.
Þótt Sparikassinn, stærsti
stofnfjáreigandinn í SPRON, sé
óskráð félag þá ganga hlutabréf
sparisjóðsins kaupum og sölu.
Frá áramótum hefur gengi hluta-
bréfa Sparikassans hækkað um
149 prósent, en yfir níu þúsund
hluthafar eiga bréf í bankanum.
Í september seldi Sparikassa-
grunnurin, stærsti hluthafi bank-
ans, sautján prósent hlutafjár á
genginu 330. Síðan þá hefur geng-
ið hækkað allverulega og stendur
nú í 459 dönskum krónum á hlut.
Markaðsverðmæti Föroya
Sparikassi er 39 milljarðar króna.
Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins á fjöldi íslenskra
fjárfesta bréf í Sparikassanum,
þar á meðal SPRON og aðrir
sparisjóðir, Eyrir og fleiri fjár-
festar. - eþa
Föroya Sparikassi á Euroland
Skráning í Kauphöll í farvatninu. Bréf bankans hafa hækkað um 149% á árinu.
Fjölgar í Höllinni
Fjölgun fyrirtækja í Kauphöllinni verður
að teljast fagnaðarefni í ljósi þeirrar
þróunar sem orðið hefur á innlendum
hlutabréfamarkaði á liðnum árum.
Dagsbrún var skipt upp í tvö skráð
félög, 365 og teymi, og þá var Exista
skráð í haust. Í desember er von á
tveimur félögum; eignarhaldsfélagið
OMX, sem á og rekur Kauphöll Íslands
og kauphallir í Danmörku, Finnlandi
og Svíþjóð, verður skráð á aðallistann
í dag og Icelandair Group holding
verður svo skráð síðar í mánuðinum.
Fjármálafyrirtæki hafa boðað komu
sína á næstunni. Færeyska fjármálafyr-
irtækið, Föroya Sparikassi, verður skráð
að öllum líkindum á fyrri hluta næsta
árs og svo er von á Icebank, áður Spari-
sjóðabankanum, árið 2008.
Sláturvertíðin hafin
ætla mætti að sláturtíð væri hafin
í Kauphöll Íslands ef marka má
tilkynningar er bárust þangað í gær.
Actavis sendi inn gærur af kynning-
arfundi og Bakkavör tilkynnti um að
hlutafjár hefði verið aukið. Sennilegra
er þó að prentvillupúkinn illræmdi
hafi verið hér á ferðinni.
Peningaskápurinn ...
Farice, sem rekur ljósleiðara-
streng héðan til Skotlands með
viðkomu í Færeyjum, hefur opnað
nýjan vef á slóðinni www.farice.is.
Nýi vefurinn er sagður mun
aðgengilegri en sá fyrri og efnis-
framsetningin skýrari. Tæpt er á
þáttum í rekstri Farice á borð við
umhverfismál, fiskveiðar og
öryggismál.
Guðmundur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Farice, segir áhuga
útlendinga á landinu að aukast og
því hafi verið nauðsynlegt að
hressa upp á ímynd fyrirtækisins.
„Upplýsingatæknisamfélagið og
fjarskipti hafa verið að þróast
hratt og þar eru gríðarlega mörg
tækifæri sem geta haft jákvæð
áhrif á þróun efnahags- og atvinnu-
mála hér og í Færeyjum,“ segir
hann. - óká
Farice með nýjan vef
Matsfyrirtækið Fitch Ratings
hefur staðfest lánshæfiseinkunnir
Straums-Burðaráss Fjárfestinga-
banka. Bankinn er með langtíma-
einkunn BBB-, skammtímaein-
kunnina F3, óháða einkunn C/D, og
svokölluð stuðningseinkunn er 3.
Horfur í matinu eru sagðar
stöðugar. Um leið er því þó gefið
undir fótinn að frekari framfarir í
þá átt sem orðið hafi á þessu ári
gætu stutt jákvæða endurskoðun
matsins. Er þar sérstaklega vísað
til árangurs í áhættustýringu.
Matið segir Fitch Ratings að
endurspegli styrkan eiginfjár-
grunn, hraðan vöxt á sviðum þar
sem tekjustreymi sé stöðugra og
aukna landfræðilega dreifingu. - óká
Lánshæfi staðfest
mArKAðSPUNKtAr
Kaupþing tilkynnti í gær að umframsölu-
réttur, sem veittur var vegna útboðs til
erlendra fjárfesta, verði nýttur til fulls.
Umframeftirspurn var eftir hlutum
bankans, að sögn greiningardeildar
Landsbankans.
nettókaup innlendra aðila á erlendum
verðbréfum námu 16 milljörðum króna
í október samanborið við 1,5 milljarða
í september. Viðsnúningurinn skýrist
af kaupum í hlutabréfum erlendra
fyrirtækja upp á 14,5 milljarða króna, að
sögn greiningardeilda Kaupþings.
hlutafé Bakkavarar Group hefur verið
aukið um tæpa 24 milljón hluti til að
efna skuldbindingar samkvæmt breytan-
legum skuldabréfum í eigu Kaupþings
banka hf. hluthafar áttu ekki forgangs-
rétt til hlutafjárkaupa.
FUNDUr Hjá StrAUmi-bUrðAráSi
Björgólfur thor Björgólfsson stjórnarfor-
maður og Friðrik Jóhannsson, forstjóri
Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka.
Actavis tilkynnti í gær um kaup á
bandaríska lyfjafyrirtækinu
Abrika Pharmaceuticals Inc.
Nemur kaupverðið 181 milljón
evra sem samsvarar um 16,5 millj-
örðum íslenskra króna. Þar af
nema árangurstengdar greiðslur
96 milljónum evra, eða 8,7 millj-
örðum króna. Róbert Wessmann,
forstjóri Actavis, segir oft geta
verið áhugavert að gera samninga
sem þessa, sérstaklega í þeim til-
fellum þar sem tekjur félagsins
velta mikið á væntingum eigenda.
„Við erum tilbúin að borga 96
milljónir að því gefnu að félagið
nái að lágmarki fimmtán milljón-
um í framlegð á hverju ári. Ef
félagið nær 55 milljónum í fram-
legð yfir tveggja ára tímabil, 2007
og 2008, þá næst þessi greiðsla að
fullu. Ef þetta næst ekki minnkar
upphæðin í beinu hlutfalli við
það.“
Abrika, sem var stofnað í maí árið
2002, var að sögn Róberts eitt af
fyrstu félögunum sem Actavis
skoðaði þegar fyrirtækið var fyrst
að þreifa fyrir sér um yfirtökur
eða samvinnu í Bandaríkjunum.
„Það gekk ekki upp þá en við
höfum fylgst með þeim síðan þá og
þau með okkur,“ segir Róbert.
Með kaupunum er Actavis komið í
hóp leiðandi fyrirtækja í þróun
forðalyfja í Bandaríkjunum en
Abrika er sérstaklega sérhæft í
þróun og sölu þeirra auk samheita-
lyfja sem eru erfið í þróun. Sam-
keppnin í samheitalyfjageiranum
er mikil í dag, ekki síst í þeim lyfj-
um sem er auðvelt að þróa. Róbert
segir að þess vegna hafi Actavis
verið að auka við hlut framleiðslu
og þróunar forðalyfja í Ameríku.
Samkeppnin á þeim markaði sé oft
lítil sökum erfiðrar þróunar og
sérhæfingar í framleiðslu þeirra.
„Eftir kaupin erum við með um
hundrað starfsmenn í þróun á
forðalyfjum. Við ætlum að setja
fimmtíu milljónir evra árlega í
þróun á þessari tegund lyfja á
næstu árum. Við erum því orðin
leiðandi á þessum sviði og teljum
Actavis kaupir fyrirtæki
Actavis hefur keypt bandaríska lyfjafyrirtækið Abrika Pharmaceuticals Inc.
sem er sérhæft í þróun forðalyfja og samheitalyfja sem erfið eru í þróun. Kaup-
verð nemur 16,5 milljörðum króna en þar af er helmingur árangurstengdur.
ActAViS HeFUr KeyPt bANDArÍSKALyFjAFyrirtæKið AbriKA Sigurður Óli Ólason,
aðstoðarforstjóri Actavis, og Róbert Wessmann, forstjóri Actavis. FRéttABLAðIð/VALLI