Fréttablaðið - 01.12.2006, Page 40
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR4
Það getur verið gott að fá sér í tána á barnum fyrir eða eftir mat.
„Við bjóðum upp á sambland af
japanskri og evrópskri matar-
gerð,“ segir Ragnar Ómarsson,
annar yfirkokka á Domo. „Evr-
ópska rétti framreidda á japanska
vísu og öfugt.“
Að sögn Ragnars er áhersla
lögð á gott og ferskt hráefni og
hollan mat í léttari kantinum. „Við
notum lítið sem ekkert af smjöri
og rjóma við eldamennskuna,
nema ef til vill í eftirréttina,“
segir hann máli sínu til stuðnings.
„Við höfum aftur á móti töluvert
af kryddolíum, sósum og salatsós-
um.“
Ragnar segir að maturinn sem
fólk pantar sé settur á mitt borð
þannig að ef sessunautar eru tveir
eða fleiri gefst þeim kostur á að
smakka af réttum hver hjá
öðrum.
„Við leggjum líka töluvert upp
úr góðri þjónustu, þar sem fag-
lærðir þjónir beina,“ heldur Ragn-
ar áfram. „Um þessar mundir er
ekki auðvelt að ráða til sín lærða
þjóna og við höfum því verið mjög
heppin að fá til okkar sannkallað
atvinnufólk.“
Ragnar bætir við að eitt mark-
miðanna með Domo sé að skapa
létt og afslappað andrúmsloft, til
að sem best fari um gesti staðar-
ins. „Með það fyrir augum var
ákveðið að hafa innréttingarnar
frekar grófgerðar og allt í
nýtískulegum stíl,“ segir hann og
bætir við að með því eigi hann þó
alls ekki við að útlitið sé yfirdrif-
ið eða þvingandi.
Spurður að því hvaðan heitið
Domo sé fengið kveður Ragnar
Kormák hafa lagt það til og vísar
þar með til athafnamannsins Kor-
máks Geirharðssonar sem á stað-
inn ásamt Skildi Sigurjónssyni,
Rósant Birgissyni og bræðrunum
Arnari og Bjarka Gunnlaugssyni.
„Domo merkir víst takk á jap-
önsku og hús á esperanto, dregið
af latneska orðinu domus,“
útskýrir hann. „Okkur bar saman
um að það væri viðeigandi fyrir
veitingahús þar sem allt er reynt
til að láta gestum líða eins og
Réttunum er fyrirkomið á miðju borði, þannig að ef sessunautar eru tveir eða fleiri gefst þeim kostur á að smakka hver hjá öðrum.
Vestrið og austrið mætast í Þingholtsstræti 5 í Reykjavík
Engu hefur verið til sparað svo að gestum Domo líði sem best.
Domo hefur yfir sér flott og nýtískulegt yfirbragð, en töluverð hugmyndavinna liggur
að baki hönnuninni.
fR
ét
ta
b
la
ð
ið
/h
Ei
ð
a
Veitingastaðurinn
Domo var opnaður fyrir
skemmstu, en þar er
boðið upp á nýstárlega
matseld sem er vís
með að vekja lukku hjá
landsmönnum.
Hátíðarkaffi
stundin - bragðið - stemningin
VERSLANIR: Kringlunni · Smáralind · Laugavegi 27 · Suðurveri · Akureyri · Egilstöðum
R
O
YA
L