Fréttablaðið - 01.12.2006, Page 48
[ ]
Guðný Guðjónsdóttir hefur rek-
ið kaffihúsið Mokka á Skóla-
vörðustíg 3a í tæp fimmtíu ár.
Guðný stofnaði Mokka ásamt eig-
inmanni sínum heitnum, Guðmundi
Baldvinssyni, fyrir fjörtíu og átta
árum, en kaffihús sem hefur verið
jafn lengi í eigu sömu aðila er sjálf-
sagt vandfundið hérlendis.
„Þegar Mokka var stofnað var
eingöngu boðið upp á uppáhellt
kaffi á reykvískum kaffihúsum,
það þekktist ekki að kaffið væri
afgreitt beint úr vélinni eins og
gert var á Mokka,“ segir Guðný.
„Þannig kynnti Guðmundur ítalska
kaffimenningu fyrir Íslendingum,
sem hann drakk sjálfur í sig á
meðan hann var í óperusöngnámi á
Ítalíu.“
Guðmundur ætlaði upphaflega
að leggja sönginn fyrir sig að sögn
Guðnýjar og reksturinn átti að
verða aukabúgrein. „Það var hins
vegar minna að gera í söngnum en
hann ráðgerði svo dæmið snerist
við,“ segir hún. „Þær frábæru við-
tökur sem Mokka hlaut gerði
útslagið og féll útlit staðarins sér-
lega vel í kramið hjá landsmönn-
um.“
Guðný segir að fyrir þær sakir
hafi þau hjónin reynt að breyta
sem minnst útlitinu frá opnun
Mokka. „Okkur þótti óþarfi að
breyta breytingana vegna. Enda
hefur hönnunin, sem byggist að
miklu leyti á hugmyndum sem
Guðmundur hafði fengið á Ítalíu og
dregur dám af þarlendum kaffi-
húsum, staðist ágætlega tímans
tönn.“
Vegna þess hversu lítið Mokka
hefur breyst í áranna rás þótti
mörgum það skjóta skökku við
þegar reykingabann var sett á
staðnum og það nokkrum mánuð-
um áður en lög um almennt bann
við reykingum á íslenskum veit-
ingastöðum tók gildi.
„Við ákváðum bara að flýta
fyrir banninu þegar skipt var um
teppi,“ útskýrir Guðný sposk og
bætir við að þau hjónin hafi reynd-
ar óttast að ákvörðunin yrði til þess
að fækkaði í kúnnahópnum, sér-
staklega fastakúnnunum sem hafa
sótt kaffihúsið frá opnun þess.
„Því miður sáum við á eftir
nokkrum viðskiptavinum í kjölfar
bannsins, en fæstir setja það þó
fyrir sig að bregða sér út til að fá
sér sígarettu eins og annars stað-
ar,“ segir Guðný. „Það hefði þá ekki
verið í fyrsta sinn sem við hefðum
séð fram á erfiða tíma, eins og með
tilkomu sjónvarpsins sem gerði út
af við mörg kaffihús á sínum tíma.
Vegna þeirrar vinnu sem við höfum
alltaf lagt á okkur hefðum við þó
líkast til siglt í gegnum þann ólgu-
sjó eins og annan án þess að bíða
skipbrot.“ roald@frettabladid.is
Brautryðjendur í sögu ís-
lenskrar kaffihúsamenningar
Mokka hefur verið rekið í sama húsnæði við Skólavörðustíg í 48 ár. fréttablaðið/gva
andrúmsloftið er alltaf hlýlegt á Mokka.
guðmundur og guðný voru þau fyrstu
hér á landi, sem buðu upp á kaffi beint
úr vélinni.
Útlit staðarins hefur haldist nánast
óbreytt frá upphafi, enda hönnunin
hugsuð niður í smáatriði. allt er valið
af einstakri kostgæfni, bollar, diskar og
hnífapör og fleira.
Mokka er þekkt fyrir ljúfengt kaffi, heitt
súkkulaði og vöfflur með rjóma.
guðný hefur rekið Mokka í 48 ár eða frá því að kaffihúsið var opnað.
Heitt kakó er alveg tilvalið eftir búðaráp á
laugaveginum. Á flestum kaffihúsum má fá
ljómandi gott kakó með rjóma.
Góðar gjafi r
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is
Úrval af
SagaMink pelsum
skinnúlpum og
mokkakápum