Fréttablaðið - 01.12.2006, Side 77
FÖSTUDAGUR 1. desember 2006 37
af netinu
umræðan
Kynbundið ofbeldi
Nú stendur yfir 16 daga átak í 16. sinn undir yfirskriftinni:
Eflum mannréttindi – stöðvum
ofbeldi gegn konum. Af því tilefni
hafa Kvenfélagasamband Íslands,
Soroptimistasamband Íslands og
Zonta á Íslandi tekið höndum
saman um að opna augu almenn-
ings fyrir heimilisofbeldi. Klúbb-
ar og félög innan sambandanna
eru starfrækt um allt land og
munu þau sérstaklega hvetja sína
félagsmenn til að vera vakandi
gagnvart heimilisofbeldi og halda
umræðunni opinni á sínu svæði.
Það hefur sýnt sig að með opinni
umræðu nýta fleiri þá þjónustu
sem er í boði fyrir fórnarlömb
heimilisofbeldis. Við hvetjum því
konur og aðra sem búa við eða
þekkja til einhvers sem býr við
heimilisofbeldi að kynna sér þau
úrræði sem eru í boði. Listi yfir
helstu aðila sem geta veitt stuðn-
ing og aðstoð vegna heimilisof-
beldis má finna t.d. á vefsíðum
www.kvennaathvarf.is og www.
barn.is.
Hvað er heimilisofbeldi?
Samkvæmt skilgreiningu Sam-
taka um kvennaathvarf er um að
ræða heimilisofbeldi þegar einn
fjölskyldumeðlimur kúgar annan í
skjóli friðhelgi heimilisins til til-
finningalegrar-, félagslegrar- og
fjárhagslegrar bindingar. Fjöl-
skyldutengsl milli gerenda og þol-
enda ofbeldis geta verið með ýmsu
móti en í langflestum tilvikum er
um að ræða karlmann sem beitir
konu ofbeldi í skjóli líkamlegra
yfirburða. Heimilisofbeldi getur
birst í ýmsum myndum og getur
bæði verið andlegt og líkamlegt.
Andlegt ofbeldi þar sem fórnar-
lambið er markvisst brotið niður
með hótunum, kúgun og niðurlæg-
ingu, er oft undanfari líkamlegs
og/eða kynferðislegs ofbeldis. Það
er ekki síst hið andlega ofbeldi
sem erfitt er að greina og átta sig
á. Samkvæmt tölum frá Samtök-
um um Kvennaathvarf nefna um
90% þeirra kvenna sem leituðu til
athvarfsins 2005 andlegt ofbeldi
sem eina af ástæðum komu sinnar
þangað. Þessar tölur sýna að nauð-
synlegt er að opna umræðuna og
vekja athygli á því að skilgreining
á heimilisofbeldi á ekki einungis
við líkamlegt ofbeldi.
Hvað getur þú gert?
Yfirleitt bera konur ekki með sér
að þær búi við heimilisofbeldi og
halda því svo leyndu, jafnvel árum
saman, að nánir aðstandendur
hafa ekki hugmynd um ástand
mála. Jafnvel áttar þolandi sig
ekki á vandanum heldur tekur á
sig alla ábyrgð og reynir af van-
mætti að bæta ástandið með því að
„hegða sér betur“. Fyrir þann sem
stendur utan við er auðvelt að
segja „af hverju fer hún bara
ekki?” Það getur hins vegar verið
mjög erfitt að brjótast út úr ofbeld-
issambandi þar sem búið er að
brjóta niður sjálfsmynd viðkom-
andi. Fyrsta skrefið er að viður-
kenna fyrir sjálfum sér að maður
búi við ofbeldi og það næsta að
geta viðurkennt það fyrir öðrum.
Það er hins vegar einnig ábyrgð
samfélagsins að berjast gegn
heimilisofbeldi. Ef grunur vaknar
um ofbeldi á heimili skal sam-
kvæmt leiðbeiningum Samtaka um
kvennaathvarf fylgja þeirri reglu
að konan sjálf sé sérfræðingur í
sínum málum. Það er því nauðsyn-
legt að taka ekki fram fyrir hend-
urnar á þolendum heldur veita
stuðning og benda á úrræði. Besti
stuðningurinn felst oft í því að
hlusta án þess að dæma og reyna
að vekja þann skilning að ofbeldi
sé aldrei réttlætanlegt.
Höfundar eru Guðrún Hansdóttir,
formaður Zontasambands
Íslands, Rannveig Thoroddsen,
verkefnisstjóri mennta- og
menningarmála, Soroptimista-
sambandi Íslands og Sigurlaug
Viborg, forseti Kvenfélagasam-
bands Íslands.
Heimilisofbeldi – falið vandamál
fjármál flokkanna
Stjórn Heimdallar hefur ályktað um
frumvarp um fjármál stjórnmála-
flokka.
Stjórn Heimdallar telur að tillögur
varðandi fjármál stjórnmálaflokka og
prófkjöra gangi alltof langt og feli í
sér óréttmæta skerðingu á rétti hins
almenna borgara til að styðja við
stjórnmálastarfsemi. Þá fela reglur
um hámarkskostnað í prófkjörum í
sér beina takmörkun á möguleikum
frambjóðenda og þeirra sem vilja
kynna málefnaáherslur sínar og
baráttumál í tengslum við prófkjör.
Það er beinlínis hluti af lýðræðinu
að frambjóðendur hafi svigrúm til að
kynna sig og stefnumál sín og óskilj-
anlegt hvers vegna ríkisvaldið telji sig
þurfa að takmarka þennan rétt.
Tillögur nefndarinnar fela í sér að
staða núverandi stjórnmálamanna-
og flokka styrkist verulega á kostnað
þeirra sem síðar munu koma. Verð-
andi nýliðar í prófkjörum flokkanna
munu sæta takmörkunum á því hve
rækilega þeir geta kynnt sig á meðan
sitjandi stjórnmálamenn njóta góðs
af því að vera þekktir fyrir. Sama máli
gegnir um stjórnmálaflokka sem fyrir
eru en aukin ríkisframlög veita þeim
aukið forskot í samkeppni við nýja
flokka og framboð.
Þar að auki setur stjórn félagsins
spurningamerki við ástæðurnar fyrir
þessum reglum. Í skýrslu nefndarinn-
ar segir að sífellt fleiri einstaklingar
og fyrirtæki hafi fjárhagslega burði til
að kosta baráttu flokka eða stjórn-
málamanna. Á meðan ekki liggja fyrir
bein dæmi um óeðlilegar tilraunir til
að hafa áhrif á stjórnmálamenn og
nefndin virðist ekki hafa annað fyrir
sér en óljósa tilfinningu, er óréttlæt-
anlegt að ráðast út í svo viðamiklar
takmarkanir á lýðræðislegum rétti
borgaranna.
Stjórn Heimdallar telur hins vegar
réttlætanlegt að framlög til stjórn-
málaflokka séu upplýsingaskyld
upp að vissu marki, en telur hins
vegar mikilvægt að slíkar upplýsingar
séu þó ekki öllum aðgengilegar og
liggi ekki á glámbekk, líkt og t.d. er
raunin með upplýsingar um tekjur
Íslendinga. Eðlilegt væri að ákveðin
stofnun, t.d. Ríkisendurskoðun, hefði
slíkt eftirlitshlutverk með höndum og
færi með framlögin sem persónuupp-
lýsingar en gæti beitt sér ef grunur
leikur á um að verið sé að reyna að
hafa óeðlileg áhrif á stjórnmálaflokka
eða menn.
Félagið skorar á þingmenn að
skoða málið í rólegheitunum. Það
á ekki að vera kappsmál flokkanna
að keyra slíkt grundvallarmál í gegn
á sem skemmstum tíma eða til að
tryggja sér aukin fjárframlög fyrir
næstu kosningar.
Yfirleitt bera konur ekki með
sér að þær búi við heimilisof-
beldi og halda því svo leyndu,
jafnvel árum saman, að nánir
aðstandendur hafa ekki hug-
mynd um ástand mála.
HIÐ STÓRFENGLEGA
LEYNDARMÁL HEIMSINS
ÞAÐ ÆTTI AÐ SETJA ÞIG
Á HEIMSMINJASKRÁ
STEINAR BRAGI
HIN ÍSLENSKA
TRAINSPOTTING
ÞESSI BÓK ER EKKI UM BLEIKA FLAMINGÓFUGLA. ÞESSI BÓK ER UM ÚTVARPSMANNINN E SEM
LENDIR Í ÓVÆNTUM OG ALLSVAKALEGUM HREMMINGUM EFTIR AÐ HAFA GEFIÐ ÚT SÍNA FYRSTU BÓK.
EINKASPÆJARINN STEINN STEINARR OG AÐSTOÐAR-
MAÐUR HANS MUGGUR RANNSAKA ÆSILEGT MORÐMÁL
Á SKEMMTIFERÐASKIPI
50 GRÖMM AF ÓDRÝGÐU KÓKAÍNI HVERFA Í PARTÍI
Í REYKJAVÍK. ELTINGARLEIKUR UPP Á LÍF OG DAUÐA.
„Bráðskemmtileg bók sem heldur fínu jafnvægi milli tilgerðarleysis og húmors.“
- Björn Þór Vilhjálmsson, Morgunblaðið, 3. nóvember 2006
„... samtímasaga í húð og hár ... svínvirkar í núinu.“
- Fréttablaðið, 13. nóvember 2006
ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR
„Það er nautn að lesa textann og sagan er í senn fyndin,
írónísk, persónuleg, kátbrosleg, ljúfsár og melankólísk.“
Geir Svansson, Morgunblaðið 3. nóvember 2006
„Þetta er skemmtilegur texti og furðulegur.
Hann fengi í mínum kladda fimm stjörnur væru þær gefnar.“
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttablaðið 5. nóvember 2006
„... magnað hvernig honum tekst að gæla við margnotað glæpasagnaform,
en endurnýja það jafnframt gjörsamlega og með brakandi ferskum hætti.“
- Morgunblaðið, 25. nóvember 2006
„Skemmtilegur texti og furðulegur.“
Fréttablaðið, 4. nóvember 2006
„Rosalega vel skrifuð ...“
Kastljós, 20. nóvember 2006