Fréttablaðið - 01.12.2006, Side 80
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR40
timamot@frettabladid.is
merkisatburðir
1878 Reykjanesviti, fyrsti vitinn
hér á landi, er tekinn í
notkun.
1918 Ísland verður fullvalda ríki.
1955 Blökkukonan Rosa Parks
er handtekin þegar hún
neitar að standa upp fyrir
hvítum manni í almenn-
ingsvagni.
1976 Síðustu bresku togararnir
halda af Íslandsmiðum
samkvæmt samkomulagi
um viðurkenningu á 200
mílna fiskveiðilögsögunni.
1983 Rás 2 hefur útsendingar.
1986 Bylgjan hefur útsendingar
allan sólarhringinn.
1994 Þjóðarbókhlaðan er tekin
í notkun.
Sigurður g. tómaSSon útvarpS-
maður er 56 ára í dag
„Guði sé lof að við eigum svona
sannorða, óeigingjarna,
heiðarlega, sanngjarna og vitra
stjórnmálamenn. Hvernig færi
annars fyrir okkur?“
Á þessum degi árið 1934
var Sergei Kirov, leiðtogi
í rússnesku byltingunni
og háttsettur yfirmaður í
framkvæmdastjórn sovéska
kommúnistaflokksins,
skotinn til bana á skrifstofu
sinni í Leníngrad. Bana-
maður Kirovs var Leonid
Nikolaiev, félagi í Kommún-
istaflokknum. Talið er líklegt
að morðið hafi verið runnið
undan rifjum leiðtoga Sovét-
ríkjanna, Jósefs Stalín.
Hver svo sem þáttur Stalíns
var í morði Kirovs er ljóst að
hann notaði tækifærið til að
hreinsa ærlega til í Komm-
únistaflokknum, hernum og
leynilögreglunni.
Morðið á Kirov leiddi til sjö
mismunandi réttarhalda
auk handtöku og aftöku
mörg hundruð merkra
manna úr stjórnmálum,
hernum og menningarlíf-
inu. Hvert réttarhaldanna
var í mótsögn við hið
næsta og margir voru
fundnir sekir um að hafa
komið á ýmsan hátt að
skipulagningu á morðinu
á Kirov og af mismunandi
pólitískum ástæðum.
Morðið markaði upphaf
fjögurra ára hreinsunar
Stalíns í sovésku samfélagi
þar sem milljónir Sovét-
manna voru fangelsaðir,
sendir í útlegð eða drepnir.
þettta gerðiSt: 1. deSeMBeR 1934
Byltingarforingja ráðinn bani
Foldaborg, elsti leikskóli Grafar-
vogs, fagnar tuttugu ára afmæli sínu
í dag með veisluhöldum fyrir börn og
boðsgesti. Guðbjörg Guðjónsdóttir
leikskólastjóri og Hildur Sigurðar-
dóttir hafa starfað á leikskólanum
frá upphafi, en Guðbjörg segir starfs-
mannahópinn vera mjög traustan.
„Fólk hefur verið hér í tíu ár og leng-
ur. Það hefur ekki verið vandamál að
manna leikskólann í mörg ár, sem
maður þakkar nú bara fyrir,“ sagði
Guðbjörg. „Við höfum sem betur fer
ekki lent í því að þurfa að senda börn
heim,“ bætti hún við, en í fyrra skorti
marga leikskóla í Grafarvogi starfs-
fólk. Á árum áður var leikskólinn tví-
setinn, börnin voru annaðhvort fyrir
hádegi eða eftir hádegi. Nú er hann
hins vegar rekinn sem heilsdags-
leikskóli.
Foldaborg er einn af þremur leik-
skólum á landinu sem leggja áherslu
á barnaheimspeki. „Þetta var þróun-
arverkefni hjá okkur. Við höfum
samræðustundir með börnunum.
Börnin eiga að spyrja spurninga sem
við ræðum síðan. Þau læra að rök-
styðja álit sitt, bíða og að vera sam-
mála og ósammála,“ útskýrði Guð-
björg. „Þannig læra þau að vera
sjálfstæð og segja já og nei á eigin
forsendum,“ sagði Guðbjörg, sem
vonast til að börnin búi að þeim lær-
dómi á unglingsárunum líka. Hún
vonast nú til að fá styrk til að geta
þjálfað starfsfólkið enn frekar.
Grafarvogur hefur tekið stakka-
skiptum á þeim tuttugu árum sem
Foldaborg hefur verið starfrækt, og
segir Guðbjörg að leikskólinn hafi á
þeim árum verið úti í móa. „Leik-
svæðið hjá okkur er mjög náttúru-
legt og stendur eiginlega á álfaholti.
Enda nefndum við deildirnar okkar
Tröllheima, Álfheima og Huldu-
heima,“ sagði hún hlæjandi. „Þegar
við opnuðum var það bara moldar-
flag. Ég man eftir því að eitt barnið
festist í drullunni og ég stökk af stað
til að koma því til bjargar. Þegar
barnið var komið á þurrt land sátu
skórnir mínir eftir í moldinni og eru
þar enn,“ sagði Guðbjörg hlæjandi.
Hún segir starf leikskólakennara
hafa ýmis fríðindi í för með sér. „Það
vill svo oft gleymast. En þetta er
yndislegt starf,“ sagði hún.
sunna@frettabladid.is
eLSTi LeiKSKóLi gRafaRvogS: fagnar tuttugu ára afmæli í dag
Heimspeki á Foldaborg
guðbjörg guðjónSdóttir og hildur
Sigurðardóttir Hafa starfað á foldaborg,
elsta leikskóla grafarvogs, frá upphafi.
fRéTTaBLaðið/BRiNK
börn að leik foldaborg leggur áherslu á að kenna barnaheimspeki gegnum leik og störf. fRéTTaBLaðið/BRiNK
Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari
er nýsnúin heim úr tónleikaferðalagi
um Kína þar sem hún kom fram ásamt
írska strengjakvartettinum Vanbrugh.
Áshildur og Vanbrugh ferðuðust um í
rúmar tvær vikur og komu meðal ann-
ars fram í Shanghaí og Beijing. „Svo
kenndum við einn dag í tónlistarskóla í
Chongqin,“ sagði Áshildur, en íbúar í
borginni og á nálægum svæðum eru
um 35 milljónir. „Þetta var þrjú þús-
und manna skóli með sjö hundruð
æfingaherbergjum, ekki alveg sami
skali og hérna heima,“ sagði Áshildur.
Hún sagði stemninguna á tónleikunum
hafa verið öðruvísi en hún hafi átt að
venjast. „Fólk spjallaði saman og svar-
aði í gsm símana sína og svona. Svo
klöppuðu allir á milli kafla og þegar
við spiluðum kínverska tónlist klapp-
aði fólk bara með.”
Fyrir utan Kínaferðir hefur Áshild-
ur unnið að nýjum geisladiski. Á
honum leikur hún flaututónlist Atla
Heimis Sveinssonar við undirleik Atla
Heimis sjálfs og Önnu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur. - sun
Talað á tónleikum í Kína
kristján pálsson,
fyrrum alþingis-
maður, er 62 ára.
kristján þórður
hrafnsson rithöf-
undur er 38 ára.
við kínamúrinn Áshildur Haraldsdóttir ferðaðist um Kína ásamt írskum strengjakvartetti.
afmæli
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Kristinn Guðmundsson
bifreiðastjóri, Grenigrund 11, Akranesi,
andaðist á heimili sínu 27. nóvember 2006. Útförin
verður gerð frá Akraneskirkju 8. desember 2006 kl. 14.
Kirstín Benediktsdóttir
Rúnar Helgi Kristinsson
Petra Kristín Kristinsdóttir Einar Guðni Þorsteinsson
Guðmundur Kristinn Kristinsson Kristín Brynja
Gústafsdóttir
Guðlaugur Guðjón Kristinsson Sylvía Clothier Rúdolfsdóttir
og barnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur,
Elías Tryggvi Nordgulen
Laugarnesvegi 92, 105 Reykjavík
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í Reykjavík
föstudaginn 1. desember kl. 13.00.
Sigríður S. Einarsdóttir Lúðvík Sigurður Nordgulen
Einar Nordgulen Eva Samúelsson
Lúðvík Þ. Nordgulen Margrét H. Helgadóttir
Ólafur Nordgulen Íris Hall
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
Örn Steinar Ásbjarnarson
Þorgrímsstöðum,
verður jarðsunginn frá Tjarnarkirkju, Vatnsnesi
laugardaginn 2. desember kl. 14.00.
Kristín Guðjónsdóttir
Ásbjörn Guðmundsson
Þorbjörg Ásbjarnardóttir J. Óskar Sigurbjörnsson
Margrét Ásbjarnardóttir Þorvaldur Kristjánsson
Ásbjörn, Alexander og Þorvaldur Örn.
Vífilfell í Reykjavík
verður lokað í dag
frá kl. 12-15 vegna jarðarfarar
Gunnars M. Sigurðssonar.