Fréttablaðið - 01.12.2006, Page 96
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR56
Ég rakst á skemmtilega grein um daginn í erlendu
tímariti um það hverju karlmenn leiti að í konu.
Konur hafa oft á tilfinningunni að karlmenn leiti sér
að konu sem geri þeim lífið auðvelt, séu yfirleitt
auðveldar í umgengni og viðráðanlegar. Þetta mis-
skilja margar konur og haga sér í samræmi við það.
Þá er ég að tala um að klæða sig frekar druslulega,
vera einfaldar í fasi og hlæja að öllu sem þeir segja
og gera. Þessi grein, sem á að vera byggð á ítarleg-
um rannsóknum, sýnir margt annað.
Í fyrsta lagi segir í greininni að karlmenn leiti sér
að konum sem eigi sitt eigið líf og séu temmilega
uppteknar af því. Séu ekki hringjandi, sendandi
pósta og sms allan liðlangan daginn. Þeir leiti sér
að konum sem láti ganga á eftir sér og eigi ekki
alltaf frumkvæðið. Konum sem séu sexí án þess
að vera druslulegar. Þetta finnst mér segja sig sjálft
og að fleiri mættu átta sig á! Þá segir greinin líka
að karlmenn kunni betur að meta konur sem séu
ekki of auðveldar í bólið og láti hafa aðeins fyrir
því að koma þeim þangað. Það er víst ekkert sem
segir að karlmenn séu alltaf spenntari en konur
að komast á þann áfangastað! Konur eigi að
hugsa um mennina sína þannig að þær sýni
þeim mátulega að þeim sé ekki sama um þá
og vilji gera fyrir þá hluti eins og að elda og
þvo af þeim þvott án þess þó að breyt-
ast í mömmur þeirra. Ennfremur segir að
kona eigi að vera til halds og trausts fyrir
manninn sinn eins og með því að sjá til
þess að hann mæti ekki á fund með
yfirmanninum með blett í bindinu og
hlæja að bröndurunum hans þegar
það skiptir máli fyrir hann. Hér
kemur svo eitt sem er víst agalega
mikilvægt: karlmenn vilja ekki konur
sem beita þá þrýstingi! Þá er verið að
meina að það er hreinlega bannað
að minnast á G-orðið hræðilega … giftingu! Kona
má víst aldrei ýta á eftir manni sínum að giftast eða
skuldbinda sig. Vá, hvers lags endalaust tipl á
tám er þetta? Þetta á víst að vera besta leiðin
til að slaufa sambandinu, eins og það séu
bara konurnar sem vilji giftast! Konur megi
alls ekki fyrirgefa auðveldlega og kyngja
bulli frá neinum. Ef þær geri mönnum
sínum ekki grein fyrir því að svikum fylgi
refsing beri þeir minni virðingu fyrir þeim og
þeir komist upp á lagið með að henda í þær
skít. Það hefur allavega reynst vel í þjóðfélögum
að kenna fólki lexíur.
Greinin var fróðleg lesturs án þess þó að koma
mér mjög á óvart en það virðist þó vera að
allmargar konur séu haldnar ranghugmynd-
um um karlmenn. Það gefur auga leið
að allt sem er of auðvelt er leiðinlegt til
lengdar!
ReykjavíkuRnætuR HaRpa pétuRsdóttiR segiR að kaRlmenn vilji ekki eignast auðveldaR konuR
Karlmenn í konuleit
Félagarnir Stefán Hilmars-
son og Eyjólfur Kristjáns-
son héldu tvenna útgáfutón-
leika í Borgarleikhúsinu á
miðvikudagskvöld.
Þar kynntu þeir plötuna Nokkrar
notalegar ábreiður og spiluðu m.a.
lögin Góða ferð, Pínulítið lengur
og nýja útgáfu lagsins Draumur
um Nínu, sem markaði upphaf
samstarfs þeirra.
Þeim til fulltingis á tónleikun-
um var fullmönnuð hljómsveit auk
bakradda og sextán manna
strengjasveitar. Vel mátti merkja
á gestum að þeir nutu tónleikanna
til hins ýtrasta. Stebbi og Eyfi
voru enda í sínu allra besta formi,
nýbúnir að gefa út fyrstu plötu
sína eftir langt og farsælt sam-
starf.
Stebbi og Eyfi aldrei betri
stebbi og eyfi Þeir félagar Stebbi og Eyfi sungu lög af plötunni Nokkrar notalegar ábreiður sem þeir gáfu út á dögunum.
frÉttablaðið/atli Þór
kaRl og sólveig Þau Karl og Sólveig
hlýddu á tónleikana í borgarleikhúsinu.
með guðRúnu Stefán Hilmarsson stillti
sér upp með söngkonunni Guðrúnu
Gunnarsdóttur fyrir tónleikana.
stemning fullmönnuð hljómsveit auk
bakradda og sextán manna strengja-
sveitar myndaði góða stemningu ásamt
forsprökkunum Stebba og Eyfa.
Magna og förunautum hans úr
Rockstar-genginu var boðið til
dýrindis kvöldverðar á veitinga-
staðnum Við fjöruborðið á mið-
vikudagskvöld. „Mig langaði bara
að gera eitthvað fyrir strákinn,“
sagði Bjarni Ágúst Sveinsson,
frændi Magna, sem skipulagði
kvöldið. „Svo leitaði ég til nokk-
urra aðila sem vildu óðir og upp-
vægir leggja sitt af mörkum,“
sagði Bjarni. Hann sagði gestina
hafa verið hæstánægða með að
komast aðeins út á land og njóta
næðisins. „Þau voru búin að vera í
stífum æfingum og voru alveg í
skýjunum með þetta,“ sagði Bjarni
en að sögn hans vakti hangikjötið
frá Brekkubæ, uppeldisstað
Magna, sérstaka lukku. „Eftir
borðhaldið tóku þau svo nokkur
lög og skemmtu sér bara vel,“
bætti Bjarni við en þau Storm og
Toby voru þó fjarri góðu gamni.
„Þetta var bara afskaplega heimil-
islegt og notalegt,“ sagði Bjarni að
lokum.
Í sveitasælu á Stokkseyri
RokkstjöRnuRnaR matast Hangikjötið frá ættaróðali Magna vakti mikla lukkku hjá
gestunum. frÉttablaðið/SuNNlENSKa frÉttablaðið
Húsbandið úR RockstaR:supeRnova
Voru ánægðir með næðið á Stokkseyri.
leikarinn Mel Gibson finnur til
með Seinfeld-stjörnunni Michael
Richards, sem hafði uppi
kynþáttahatur gegn tveimur
þeldökkum náungum í
uppistandi sínu á dög-
unum.
Gibson þurfti fyrir
skömmu að biðjast
afsökunar á ummæl-
um sínum um gyðinga
sem hann hafði uppi
þegar hann var handtek-
inn fyrir ölvunarakstur.
Hann segir að richards hafi
greinilega verið undir
miklu álagi. „Þeir
pynta hann örugg-
lega í smá tíma
og sleppa honum
síðan. Mér líkar vel
við hann,“ sagði
Gibson.
fRéttiR af fólki
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Velkomin á DOMO
�
�
���
��� ����
Domo Restaurant er nýr veitingastaður sem
leggur áherslu á asíska/fusion rétti.
Yfirkokkur er Ragnar Ómarsson, sem m.a. hefur
verið valinn Matreiðslumaður ársins í tvígang,
Matreiðslumaður Norðurlanda og hefur leitt
kokkalandsliðið til glæstra sigra, nú síðast silfur-
og bronsverðlauna á heimsmeistaramótinu 2006
í Luxemborg.
Borðapantanir í síma 552 5588 og domo@domo.is
Domo Bar er á hæðinni fyrir neðan Domo
Restaurant. Þar er þægilegt andrúmsloft
og skemmtileg tónlist.
Föstudagur 1. des.: Húsið opnar kl. 24
Magga Stína leikur tónlist af plötum.
�
�
���
��� ����