Fréttablaðið - 01.12.2006, Síða 98
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR58
Leikkonan Nicole Kidman er
tekjuhæsta leikkonan í Holly-
wood. Fær hún allt að 1,1 milljarð
króna fyrir hverja mynd sem hún
leikur í samkvæmt árlegum lista
yfir tekjuhæstu leikkonurnar.
Kidman, sem er 39 ára, varð í
öðru sæti á síðasta ári á eftir Juliu
Roberts sem hefur verið tekju-
hæst undanfarin fjögur ár.
Roberts komst ekki á listann í ár,
enda eignaðist hún tvíbura sem
hún hefur einbeitt sér alfarið að.
Í öðru sæti á listanum lenti
Reese Witherspoon með rúman
milljarð í laun. Hún vann óskars-
verðlaunin fyrr á árinu fyrir hlut-
verk sitt í Walk the Line.
Í næstu sætum á eftir komu
Renee Zellweger, Drew Barry-
more og Cameron Diaz sem fá
allar svipuð laun og Witherspoon.
Á eftir þeim komu Halle Berry,
Charlize Theron, Angelina Jolie,
Kirsten Dunst og Jennifer
Aniston.
Kidman tekjuhæst
nicole kidman Kidman er tekjuhæsta
leikkonan í Hollywood með 1,1 milljarð
í laun fyrir hverja mynd.
Nú er komin upp á yfirborðið
ástæðan fyrir skilnaði Britney
Spears og Kevin Federline. Parið
var búið að vera óhamingjusamt
lengi en nú á Federline að hafa
haldið framhjá Spears ítrekað með
klámmyndastjörnunni Kendru
Jade. Hún er fræg stjarna blárra
mynda í Hollywood og hefur meðal
annars gert garðinn frægan með
því að sofa hjá 350 karlmönnum í
einu.
Federline á að hafa átt í sam-
bandi við hana síðan í desember
síðastliðinn en kunningjar hans
segja við blaðið Star að „þau séu
bara vinir sem sofi saman, þau
verði aldrei kærustupar“.
Þessar fregnir af Federline
gerðu útslagið fyrir Spears enda
sótti hún um skilnað stuttu eftir að
hún frétti af þessu.
Klámmyndastjarna
kom upp á milli
úti er ævintýri Britney Spears sótti
um skilnað frá Kevin Federline vegna
framhjáhalds hans við klámmynda-
stjörnuna Kendru Jade.
Tónlistarkonan Lay Low, eða Lov-
ísa Elísabet Sigrúnardóttir, hélt
útgáfutónleika í Fríkirkjunni á
miðvikudagskvöld.
Lay Low gaf á dögunum út sína
fyrstu plötu, Please Don´t Hate
Me, sem hefur fengið mjög góðar
viðtökur. Þar spilar hún kántrí-
skotinn blús og hlýddu um 400
manns á hana spila nýju lögin í
Fríkirkjunni.
lay low Tónlistarkonan Lay Low spilaði lög af plötu sinni á útgáfutónleikunum í
Fríkirkjunni. FréTTaBLaðið/Heiða
Hjalti og Sara Þau Hjalti og Sara létu
sig ekki vanta á útgáfutónleikana.
edda og linda Vinkonurnar edda og
Linda hlýddu á Lay Low flytja lög af
sinni fyrstu plötu.
í fríkirkjunni elma Geirdal og
útgáfustjórinn Helgi Pjetur fylgdust með
tónleikunum.
HreSSir Loftur atli eríksson og Þorvald-
ur Óskar Guðlaugsson voru á meðal
áheyrenda í Fríkirkjunni.
reinald og Steinar Félagarnir reinald
og Steinar stilltu sér upp fyrir ljósmynd-
ara Fréttablaðsins.
Kántrískotinn
blús í Fríkirkjunni