Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 107
66 1. desember 2006 FÖSTUDAGUR
HAnDbolTi Harpa Melsted er ein
leikjahæsta landsliðskonan í hópn-
um sem nú er í keppnisferðalagi í
Rúmeníu og ein leikreyndasta
landsliðskona íslensks handbolta.
Það virðist þó vera þrautin þyngri
að komast yfir hversu marga leiki
Harpa hefur spilað fyrir Íslands
hönd. Harpa hefur leikið allan
sinn feril með Haukum í Hafnar-
firði og hóf að leika handbolta átta
ára gömul.
Harpa er 31 árs gömul og við-
urkennir að hún sé farin að huga
að leikslokum á handboltaferlin-
um. „Ég verð nú að viðurkenna
það. En eins og ég hef sagt við
mína þjálfara þá tekur maður bara
eitt ári í einu þegur maður er orð-
inn þetta gamall og ég kem til með
að gera það. Ég mun skoða líkam-
legt ástand og einnig hvort maður
hefur tíma fyrir þetta,“ sagði
Harpa sem eignaðist stelpu fyrir
tveimur og hálfu ári.
„Þegar maður hefur eignast
barn þá er ýmislegt annað sem
skiptir meira máli en handbolti en
á meðan maður er líkamlega í lagi
og hefur gaman af þessu og getur
látið þetta ganga upp hvað varðar
fjölskyldu og annað, þá er svo sem
ekkert því til fyrirstöðu að halda
áfram á meðan maður getur eitt-
hvað,“ sagði Harpa sem starfar
sem sjúkraþjálfari.
Mamman í hópnum
Harpa vikurkenndi einnig að hún
upplifi sig stundum sem mömm-
una í hópnum. „Að sumu leyti geri
ég það. Maður hefur auðvitað
ákveðna reynslu af öllum þessum
ferðalögum. Hildigunnur er yngst
núna, hún er átján ára. Þannig að
það eru þrettán ár á milli okkar og
ég gæti nánast verið mamma
hennar.“
Það eru þó nokkur ár frá því að
Harpa var fyrst valin í landsliðið
en hún segist ekki hafa tölu á því
hvað hún sé búin að spila marga
landsleiki.
„Ég hef bara ekki verið nógu
dugleg við að halda utan um þetta
og ekki HSÍ heldur. En ég var fyrst
í landsliðshópnum þegar Erla
Rafnsdóttir var að þjálfa og það er
nú svolítið langt síðan. Ég hef
síðan fengið tækifæri hjá öllum
landsliðsþjálfurum eftir það,“
sagði Harpa en hverjar voru fyrir-
myndirnar þegar hún var yngri?
„Ég átti mér fyrirmyndir úr
karlaboltanum á þeim tíma. Alfreð
Gíslason og Kristján Arason voru
í miklu uppáhaldi hjá mér og ég
spila líka í treyju númer 10 eins og
Kristján gerði. Verður maður svo
ekki að nefna Júlla líka?“ sagði
Harpa og hló dátt en þarna átti
hún við Júlíus Jónasson, þjálfara
íslenska kvennaliðsins í dag. „Júlli
var frábær varnarmaður og ég er
nú kannski í svolítið svipuðu hlut-
verki og hann var í. Hann var lengi
í þessu og var kannski meiri varn-
armaður en sóknarmaður.“
Harpa sagði að sér litist vel á
stöðu íslenska kvennahandboltans
í dag.
„Eins og hópurinn er núna þá
eru flestar þessar ungu stelpur
efnilegar og mjög frambærilegar
og einnig eru margar farnar að
banka á dyrnar. Við höfum líka
verið að sjá framfarir á alþjóðleg-
um mælikvarða.
Auðvitað er maður ekki sam-
mála öllu í vali þjálfarans og sumt
hefði maður kannski gert öðruvísi
en ég held að hann sé bara að gera
góða hluti. Það er líka alltaf þannig
þegar nýr þjálfari kemur að þá
þarf hann auðvitað að prófa sig
svolítið áfram,“ sagði Harpa Mel-
sted að lokum.
Styttist í endalok ferilsins
Hin leikreynda handboltakona Harpa Melsted hefur lengi verið í eldlínunni og
hún er með íslenska landsliðinu í Rúmeníu þessa dagana. Harpa segist taka eitt
ár í einu í handboltanum en endalokin nálgist.
horft uM öxl Keppnismanneskjan Harpa Melsted tekur þessa dagana hugsanlega
þátt í sínu síðasta landsliðsverkefni. Hún sést hér á æfingu á dögunum.
fréttablaðið/anton
forKeppni HM
dagur Sveinn dagbjartSSon
skrifar frá Rúmeníu
dagur@frettabladid.is
FóTbolTi Búist er við að Alan
Pardew, stjóri West Ham, fundi
um helgina með Kia Joorabchian
sem „á og stjórnar“ ferli þeirra
Carlos Tevez og Javiers Mas-
cherano. Framtíð þeirra hjá WEst
Ham er í mikilli óvissu eftir að
Íslendingar keyptu félagið.
En Tevez segist vera staðráð-
inn í að halda áfram að berjast
fyrir sínu sæti hjá West Ham.
„Það væri frábært að fara
aftur til Boca Juniors en ekki
núna. Ég hef aðeins verið í
Evrópu í fjóra mánuði og ætla að
halda áfram að berjast fyrir
mínum hlut.“ - esá
Carlos Tevez:
Fer ekki aftur
til Boca í janúar
HAnDbolTi Íslenska kvennalands-
liðið í handknattleik leikur annan
leik sinn í undankeppni HM í dag
en þá verður leikið gegn liði
Portúgal. Portúgal vann fyrsta
leik sinn í undankeppninni gegn
Ítalíu, 33-12, og er því með tvö
stig eins og Ísland.
Íþróttahúsið sem leikið er í er
eins og best verður á kosið. Húsið
tekur um þrjú þúsund áhorfendur
í sæti með stúkum við hliðarlín-
urnar og með parkett á gólfinu.
Greinilegt var á leik Rúmena og
Ítala á þriðjudaginn að þetta
getur verið mikil ljónagryfja
enda var rúmenska liðið dyggi-
lega stutt af heimamönnum.
Babb kom þó í bátinn á æfingu í
gær þegar slökkt var á ljósunum í
húsinu vegna misskilnings þegar
um hálftími var eftir af æfing-
unni. Þannig er mál með vexti að
upphaflega átti æfingin eingöngu
að vera í þrjú korter en Júlíus
þjálfari fékk því breytt í eins og
hálfs tíma æfingu.
Líklega gleymdist að segja
starfsfólki íþróttahússins frá því,
sem brá á það ráð að slökkva
ljósin til að fá Íslendingana til að
yfirgefa salinn. Æfingin hélt þó
áfram í myrkrinu en það tók
dágóða stund að kveikja ljósin á
nýjan leik. - dsd
Stelpurnar okkar:
Mæta Portúgal
í dag
setið að snæðingi Stelpurnar sjást hér
í mat í gær. fréttablaðið/dagur
FóTbolTi Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri KSÍ, sendi frá
sér yfirlýsingu í gærkvöldi þar
sem fram kemur að hann bjóði
sig fram í formannskjöri KSÍ en
sem kunnugt er mun Eggert Árni
Magnússon hætta sem formaður
sambandsins þar sem hans bíða
verkefni hjá West Ham.
Geir segist vera reiðubúinn til
þess að leiða KSÍ og að metnaður
hans fyrir hönd íslenskrar
knattspyrnu sé mikill.
Geir Þorsteinsson:
Vill taka við af
Eggerti hjá KSÍ
geir Þorsteinsson er hann arftaki
eggerts Árna?
HAnDbolTi HSÍ og Höttur sendu í
gærkvöldi frá sér sameiginlega
yfirlýsingu þar sem fram kemur
að 250 þúsund króna sekt Hattar
verði felld niður en úrslit í leik
ÍBV og Hattar standi.
Stjórn Hattar ákveður að sama
skapi að falla frá kæru sem lögð
hefur verið fram. - hbg
HSÍ og Höttur:
Náðu sáttum
KÖRFUbolTi Keflavík sótti ekki gull
í greipar tékkneska liðsins Mlek-
arna Kunin í gær en heimamenn
sáu aldrei til sólar eftir slaka byrj-
un og töpuðu stórt, 78-107. Tékk-
arnir leiddu með 19 stigum í hálf-
leik, 46-27. Keflavík er þar með
búið að vinna einn leik í sínum
riðli en tapa þremur sem þýðir að
liðið er úr leik í Evrópukeppninni í
ár.
Stórskyttan Magnús Gunnars-
son var atkvæðamestur Keflvík-
inga með 26 stig og komu öll stigin
í síðari hálfleik.
Spurning hvað hefði gerst ef
Magnús hefði fundið fjölina sína
einnig í fyrri hálfleik. Bandaríkja-
maðurinn Tim Ellis átti einnig
ágætan leik en hann skoraði 24
stig að þessu sinni en fátt var um
fína drætti hjá heimamönnum.
Keflavík tapaði fyrir Mlekarna á heimavelli:
Slæm byrjun varð
Keflavík að falli
barátta Keflvíkingar voru í miklum vandræðum með að koma sér að körfunni í gær.
fréttablaðið/víKurfréttir
KÖRFUbolTi Kvennalið Hauka var í
eldlínunni á Kanaríeyjum í gær
þar sem það mætti Caja Canarias.
Spænska liðið vann frekar
auðveldan sigur í fyrri leik
liðanna á heimavelli og endurtók
leikinn í gær.
Haukar byrjuðu leikinn
ágætlega og leiddu lengi vel í
fyrsta leikhluta. Heimamenn tóku
síðan völdin og leiddu með sex
stigum eftir fyrsta leikhluta, 30-
24.
Annar leikhluti var eign
heimamanna sem gengu algjör-
lega frá leiknum og munaði 20
stigum á liðunum í leikhlé, 55-35.
Síðari hálfleikur var því algjört
formsatriði fyrir Canarias sem
vann örugglega.
Evrópukeppni kvenna:
Haukar töpuðu
á Spáni
erfitt Haukar áttu lítið í Canarias í gær.
Knattspyrnudeild breiðabliks
óskar eftir að ráða þjálfara
fyrir 2. fl okk kvenna.
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes
Sveinbjörnsson, form. meistarafl okksráðs
kvenna, í síma 824-7619 eða í gegnum
tölvupóst, johannes@saa.is.
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð
.
Sendu SMS skeytið BTC OHF
á 1900 og þú gætir unnið eintak!
Aðalvinningur er DVD spilari og Over the Hedge á DVD
Aukavinningar eru Over the Hedge á DVD, tölvuleikir, fleiri DVD myndir og margt fleira!