Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 8
Framtí›arbók
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
4
8
0
7
Gjöf til framtí›ar
Fátt er meira rætt um
á Íslandi dag en hleranir
íslenskra stjórnvalda á tímum
kalda stríðsins. Spurningin er
hvort fólkið sem
var hlerað hafi
ógnað öryggi
ríkisins.
Guðni Th. Jóhann-
esson sagnfræð-
ingur, Einar Kr.
Guðfinnsson,
alþingismaður og
ráðherra, og Jón
Baldvin Hanni-
balsson, fyrrver-
andi ráðherra og gestakennari við
stjórnmálafræðiskor H.Í., munu
ræða þessa spurningu á opnum
hádegisfundi stjórnmálafræði-
skorar og Stofnunar stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála á miðviku-
daginn. Fundurinn fer fram í
Öskju, náttúrufræðahúsi háskól-
ans, klukkan 12 til 13.15.
Umræða um
óvini ríksins
Sigurður Kári Kristjánsson,
formaður menntamálanefndar Alþingis,
óttast ekki að frumvarp um Ríkisútvarpið
ohf. brjóti gegn samkeppnislögum.
Samkeppniseftirlitið telur frumvarpið
fela í sér samkeppnislega mismunun og í
áliti til menntamálanefndar eru lagðir til
tveir kostir til að sneiða hjá henni. Annars
vegar að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði
og hins vegar að fyrirtækið haldi úti
sérstakri rás eða rásum er aðeins njóti
auglýsingatekna en ekki skatttekna.
Sigurður Kári segir að nefndin hafi farið
yfir álitið. „Samkeppniseftirlitið leggur til
tvær leiðir. Önnur er að RÚV hverfi af auglýsinga-
markaði en það var ekki tekið tillit til þess þar sem
það stendur ekki vilji til þess á Alþingi. Hin mælir
fyrir um að í raun verði reknar tvær stöðvar. Það er
ekki markmiðið að rásum RÚV fjölgi.“
Sigurður Kári segir að auk Samkeppnis-
eftirlitsins hafi einkamiðlarnir, Viðskipta-
ráð, Blaðamannafélagið og fleiri krafist þess
að ríkið hverfi af auglýsingamarkaði eða að
auglýsingatekjurnar verði takmarkaðar.
Komið sé til móts við þau sjónarmið með
takmörkunum. „Svo má alltaf deila um hvort
ganga hefði átt lengra. Ég hef viðurkennt að
ég hefði viljað ganga lengra en þetta var það
samkomulag sem náðist og þar við situr.“
Og Sigurður hefur ekki áhyggjur af því
að RÚV-lögin brjóti gegn samkeppnislögum.
„Nei. Ég tel að við séum á þurru landi hvað
það varðar. Ef ég hefði haft slíkar áhyggjur hefði ég
ekki skrifað undir þessar tillögur. Þar fyrir utan eru
þetta sérlög sem ganga framar almennum lögum,“
segir Sigurður Kári Kristjánsson.
Niðurstöður úr
nýjum rannsóknum á þyngd
barna á höfuðborgarsvæðinu á
aldrinum 6 til 14 ára benda til
þess að tengsl séu á milli offitu
barna og félagslegrar stöðu for-
eldra þeirra.
Tíðni offitu er hærri í hverf-
um þar sem menntunarstig for-
eldra barna er lágt en í hverfum
þar sem menntunarstig er
hærra.
Skólar í Breiðholtinu, Kópa-
voginum og Árbænum koma
verst út, með tíðni offitu um og
yfir 30 prósent, en skólar í Hlíða-
hverfi, Fossvogi, Seltjarnarnesi
og Grafarvogi koma best út, með
tíðni offitu á milli 13 og 14 pró-
sent.
Hægt er að skoða niðurstöð-
urnar á vefsíðu Heilsugæslunnar
í Reykjavík, www.heilsugaeslan.
is.
Breiðholtið kemur
verst út í könnun
Hvaða rithöfundur er
tilnefndur til ítalskra verðlauna
fyrir skáldsöguna Svaninn?
Í leiðara hvaða dagblaðs voru
Íslendinga harðlega gagnrýndir?
Hver varð efstur í forvali VG
á höfuðborgarsvæðinu?
Illviðri voru óvenju tíð í
nóvembermánuði og í kuldakast-
inu sem kom um miðjan mánuð-
inn fór frostið niður í -13,6°C í
Reykjavík og -15,2°C á Akureyri.
Þrátt fyrir það mældist meðalhit-
inn í Reykjavík 0,1°C yfir
meðaltali en á Akureyri fór
meðalhitinn 0,7°C undir.
„Nóvembermánuður hefur
verið einkar óhagstæður í
veðurfarslegu tilliti ef á heildina
er litið,“ segir Sigurður Þ.
Ragnarsson, veðurfræðingur á
veðurstofu Stöðvar 2.
Hvassast var á landinu hinn 5.
nóvember en þá mældist tíu
mínútna meðalvindhraði 44,9 m/s
á Gagnheiðarhnúki og vindhviður
sem mældust 56,8 m/s.
Illviðri tíð
Páll Gunnar Pálsson,
forstjóri Samkeppniseftirlitsins,
segir frumvarpið um hlutafélaga-
væðingu Ríkisútvarpsins, sem
afgreitt hefur verið út úr mennta-
málanefnd og bíður efnismeðferð-
ar á Alþingi, stangast á við sam-
keppnislög.
„Löggjafinn getur ákveðið að
RÚV skuli vera þátttakandi á aug-
lýsingamarkaði og tekur þá ákvörð-
un, vitandi það, að RÚV geti búið
til eftirsóknarvert efni á grund-
velli ríkistekna sem síðan eykur
áhorf eða hlustun og þar með styrk-
ir stöðu Ríkisútvarpsins sem aug-
lýsanda.“
Páll Gunnar segir þessa stöðu
stríða gegna meginstoð samkeppn-
islaganna. „Þessi staða skekkir
samkeppnisstöðuna gagnvart
keppinautunum sem ekki hafa rík-
istekjurnar. Samkeppniseftirlitið
verður að taka tillit til þess að lög-
gjafinn hefur ákveðið að fara þessa
tilteknu leið sem hann velur en
okkur ber skylda til þess að vekja
athygli á því ef lögin eru ekki í takt
við markmið samkeppnislaganna,
eins og í þessu tiltekna tilfelli. En
ákvörðun um takmörkun á auglýs-
ingum, eins og frumvarpið gerir
ráð fyrir, er til bóta þó hún gangi
ekki eins og langt og við leggjum
til.“
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu í gær skilaði Páll Gunnar
inn áliti til menntamálanefndar þar
sem hann sagði frumvarp um hluta-
félagavæðingu RÚV fela í sér
„samkeppnislega mismunun“.
Hann sagði tvo kosti koma til
greina ef koma ætti í veg fyrir mis-
mununina, að RÚV hverfi alfarið
af auglýsingamarkaði og hins
vegar að starfi RÚV á auglýsinga-
markaði þá „fari sú starfsemi fram
á vegum sérstakra hljóð- og sjón-
varpsstöðva eða -rása sem alfarið
verði fjármagnaðar með auglýs-
ingatekjum,“ til að tryggja að sam-
keppnisstarfsemi RÚV sé ekki nið-
urgreidd með skattfé.
Páll Gunnar segir sérlög, eins
og þau sem lögð eru til með frum-
varpi um hlutafélagavæðingu RÚV,
ganga framar samkeppnislögum
en tekur fram að félög á markaði
séu stöðugt að láta reyna á tengsl
sérlaga og almennra laga. „Það er
stöðugt verið að láta reyna á tengsl
sérlaga og almennra laga í okkar
starfi, meðal annars fyrir áfrýjun-
arnefndum og dómstólum, ef svo
ber undir.“
Samkvæmt frumvarpinu, sem
bíður meðferðar á Alþingi, verður
áfram bannað að selja auglýsingar
á ruv.is auk þess sem lagt er til að
kostunarþáttur auglýsingatekna
verði sá sami og hann er nú, um tíu
prósent.
RÚV-frumvarpið stangast
á við samkeppnislög
Páll Gunnar Pálsson segir frumvarp um RÚV ohf. ganga gegn samkeppnislögum. Sérlög, sem lögð eru til
með frumvarpi um RÚV ohf., ganga framar samkeppnislögum. Stöðugt verið að láta reyna á tengsl sérlaga
og almennra laga.