Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 64
Á laugardag voru Evrópsku kvik-
myndaverðlaunin afhent við hátíð-
lega viðhöfn í Varsjá. Sýnt var frá
athöfninni víða í Evrópu, en hér
höfðu menn ekki áhuga á slíkri
útsendingu, enda enginn okkar
manna tilnefndur, hvað þá verð-
launaður. Það er Evrópska kvik-
myndaakademían, sem sam-
anstendur af 1.700 fagaðilum í
Evrópu, sem velur verðlaunaverk-
in. Heiðursverðlaunin féllu í hend-
ur Romans Polansky sem tók við
þeim af lítillæti hins veraldarvana
manns og þakkaði Varsjá fyrir allt
sem borgin hefði veitt sér. Kynnar
voru Sophie Marceau og Maciej
Stuhr. Þetta var í nítjánda sinn sem
akademían kom saman og í lok
hátíðarinnar var sýnd teiknimynd
þar sem Wim Wenders bauð til
Berlínar þar sem athöfnin verður
að ári í tuttugasta sinn en Wenders
er forseti Akademínunnar.
Þýska kvikmyndin Das Leben
der Anderen var kosin besta mynd-
in og taldi leikstjórinn, Florian
Henckel von Donnersmarck, upp
öll þau lönd álfunnar sem hann
hafði haft að heimkynnum. Keppi-
nautarnir voru erfiðir: Breakfast
on Pluto eftir Neil Jordan, Grbavi-
ca eftir Jasmila Zbanic, The Road
to Guantanamo eftir Michael
Winterbottom og Mat Whitecross,
Volver eftir Pedro Almodóvar, og
The Wind that Shakes the Barley
eftir Ken Loach.
Almodóvar var kosinn besti leik-
stjórinn fyrir Volver og bar sigur-
orð af Susanne Bier fyrir Eftir
brúðkaupið, Emanuele Crialese
fyrir Nuovomondo, von Donners-
marck, Ken Loach og þeim Winter-
bottom og Whitecross.
Besti karlleikarinn var kosinn
Ulrich Mühe sem leikur rannsókn-
arlögreglumanninn í verðlauna-
myndinni þýsku. Þar komu til álita
meðal annars Jesper Christensen í
Drápinu og Mads Mikkelsen fyrir
brúðkaupsdramað Bier.
Ekki var samkeppnin minni um
besta kvenleikarann: Penelope
Cruz hlaut þann heiður fyrir
frammistöðu sína í Volver. Hún
missti sig blessunin við afhending-
una, grét mikið og bar lof á vin sinn
og verndara Almódovar.
Jafnir og báðir tóku þeir verð-
laun fyrir kvikmyndatöku Barry
Ackroyd fyrir The Wind og José
Luis Alcaine fyrir Volver. Von
Donnersmarck vann handritaverð-
launin og Alberto Iglesias tónlistar-
verðlaunin fyrir Volver.
Uppgötvun ársins var franska/
georgíska myndin 13 Tzameti eftir
Gela Babluani, heimildamynd árs-
ins var Die Grosse Stille eftir Philip
Gröning. Stuttmynd var kjörin Bef-
ore Dawn eftir Bálint Kenyeres frá
Ungverjalandi. Verðlaunin eru
kennd við United International
Pictures og hefur samstæðan, sem
er risi í kvikmyndadreifingu í Evr-
ópu, stofnað til staðbundinna verð-
launa sem er svo safnað saman til
vals á einni mynd þetta kvöld.
Viðurkenningu fyrir listrænt
framlag hlutu þau Pierre Pell og
Stéphane Rozenbaum fyrir útlit á
The Science of Sleep eftir Michel
Gondry.
Fipresci-verðlaun gagnrýnenda
hlaut Philippe Garrel. Fyrir fram-
lag til heimskvikmynda var fram-
leiðandinn Jeremy Thomas heiðr-
aður. Áhorfendaverðlaunin fékk
Volver eftir Almodóvar.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
Látum ekki fylgifiska skammdegisins leggja okkur í
rúmið. Styrkjum mótstöðuaflið, höldum heilbrigði
og hreysti með varnarefnum náttúrunnar.
Láttu sérhæft starfsfólk
okkar aðstoða þig
við val á vítamínum.
ÓFAGRA VERÖLD
Fös 29/12 kl. 20 Frumsýning UPPS
Fim 4/1 kl. 20 2. sýning Gul kort
Fös 12/1 kl. 20 3. sýning Rauð kort
Fim 18/1 kl. 20 4.sýning Græn kort
Fös 8/12 kl. 20 Lau 30/12 kl. 20
Fös 5/1 kl. 20 Lau 13/1 kl. 20
Lau 9/12 kl. 20 Lau 6/1 kl. 20
Fim 11/1 kl. 20 Sun 21/1 kl. 20
Fös 8/12 kl. 20 Fös 29/12 kl. 20
Lau 30/12 kl. 20 Lau 6/1 kl. 20
BLÓÐBRÚÐKAUP
Nemendaleikhúsið sýnir Blóðbrúðkaup
Mið 6/12 kl. 20 Fim 7/12 kl. 20
Fös 8/12 kl. 20 Miðaverð 1.500
SÖNGLIST NEMENDASÝNINGAR
Í dag kl. 17 Í kvöld kl. 20:30
Mið 6/12 kl. 17 Mið 6/12 kl. 20
BROT AF ÞVÍ BESTA
Fim 7/12 kl. 20
Rithöfundar lesa úr nýjum bókum.
Jóladjass og upplestur í forsal Borgar-
leikhússins. Ókeypis aðgangur
Lau 9/12 kl. 20 Sun 7/1 kl. 20 AUKAS.
Síðustu sýningar
Sun 10/12 kl. 20 Sun 7/1 kl. 20
Síðustu sýningar
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sun 10/12 kl. 14 Lau 30/12 kl.14
Sun 7/1 kl. 14 Sun 14/1 kl. 20
JÓLALEIKRITIÐ RÉTTA LEIÐIN
Barna og unglingaleikhúsið Borgarbörn
Í dag kl. 9:30 UPPS Mið 6/12 kl. 9:30
Fim 7/12 kl. 9:30 Fös 8/12 kl. 9:30
Lau 9/12 kl.. 13:00 UPPS
Lau 9/12 9/12 kl. 15:00
Sun 10/12 kl. 13:00 Sun 10/12 kl. 15:00
Mán 11/12 kl. 9:30 Þri 12/12 kl. 9:30
Mið 13/12 kl. 9:30 Fim 14/12 kl. 9:30
Fös 15/12 kl. 9:30 Lau 16/12 kl. 13:0
Lau 16/12 kl. 15:00 Sun 17/12 kl. 13:00
Sun 17/12 kl. 15:00
Miðaverð 500 virka daga og 1400 um helgar
SAN FRANCISCO BALLETTINN
Samstarfsverkefni Listahátíðar Reykjavíkur
og Borgarleikhússins.
Mið 16/5 kl. 20 Fim 17/5 kl. 20
Fös 18/5 kl. 20 Lau 19/5 kl. 14
Lau 19/5 kl. 20 Sun 20/5 kl. 14
Sun 20/5 kl. 20 Miðaverð 4.800
Fim. örfá sæti 7. des.
Fös. örfá sæti 8. des.
Lau. örfá sæti 9. des.
Síðustu sýningar fyrir jól!
Lau. 13. jan.
Fös. 19. jan.
Lau. 20. jan.
Miðasala virka daga
frá kl. 11-16 og
2 tímum fyrir sýningar.
Sími 562 9700
idno.is og midi.is
Sýningar kl. 20
Sýnt í Iðnó
“Fólk ætlaði
hreint vitlaust að
verða úr hlátri.”
S.A. TMM