Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 25
Ítilefni alþjóðlegs dags sjálf-boðaliðans 5. desember vill Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands nota tækifærið og þakka sjálfboðaliðum deildarinnar fyrir mikið og gott starf þeirra fyrr og nú. Eitt meginhlutverk Rauða krossins er málsvarastarf sem meðal annars hefur þann tilgang að rjúfa einangrun fólks og vinna gegn fordómum og mismunun í samfélaginu. Á því sviði er ærið verk að vinna en meðal okkar í þjóðfélaginu eru margir sem búa við einangrun og mismunun eins og niðurstöður könnunar Rauða kross Íslands, Hvar þrengir að, fyrr á þessu ári leiddi berlega í ljós. Margt hefur verið gert á þessu sviði í gegnum árin en betur má ef duga skal. Í tilefni dags sjálfboðaliðans er ekki úr vegi að líta yfir þá miklu flóru verkefna sem borin eru uppi af sjálfboðaliðum deild- arinnar sem eru fjölmargir og á öllum aldri. Með starfi sínu leggja þeir drjúgan skerf til margra þeirra málefna sem velferðar- kerfi okkar Íslendinga nær illa eða ekki til. Hjá Reykjavíkurdeild er með ýmsum hætti lögð áhersla á að létta undir með einstaklingum og fjölskyldum í vanda. Í lífinu skipt- ast á skin og skúrir og öll getum við lent í því að þurfa á einhverj- um að halda sem rétt getur hjálp- arhönd þegar erfiðleikar sækja að. Heimsóknarþjónusta sem sjálfboðaliðar hafa haft með höndum er með elstu verkefnum deildarinnar. Heimsóknarvinir Rauða krossins leitast við að stytta fólki sem býr við einsemd stundir með spjalli eða gönguferð og lesa fyrir hópa á nokkrum sjúkrastofnunum. Þá er föngum einnig boðið upp á heimsóknir sjálfboðaliða. Hópar sjálfboða- liða hafa til langs tíma haldið utan um sjúklingabókasöfn á sjúkra- húsunum ásamt hljóðbókaþjón- ustu. Sjálfboðaliðar starfa við hlið starfsfólks í Konukoti sem er athvarf ætlað konum sem eru heimilislausar og hafa ekki í nein hús að venda. Á sunnudögum standa sjálfboðaliðar fyrir sam- verustund í Vin sem er athvarf á vegum Rauða kross Íslands fyrir geðfatlaða. Hjálparsíminn 1717 er gjald- frjáls sími sem er opinn allan sól- arhringinn fyrir þá sem þurfa stuðning vegna sálrænna vanda- mála, einmanaleika eða sjálfs- vígshugsana, félagslegra vanda- mála eða neyslu. Hjálparsíminn er fyrir alla aldurshópa hvar sem er á landinu og svara bæði sjálf- boðaliðar og starfsfólk í hann. 1717 er einnig mikilvægur hlekk- ur sem upplýsinganúmer almenn- ings vegna neyðarástands innan- lands t.d. vegna náttúruhamfara. Áhersla er á starf með börnum og unglingum sem endurspeglast í nokkrum verkefnum sem borin eru uppi af sjálfboðaliðum. Helst þeirra eru: Málörvun og heima- námsaðstoð fyrir börn af erlend- um uppruna, starf með börnum í Kvennaathvarfinu, stuðningur við ofvirk börn og BUSL sem er starf með hreyfihömluðum unglingum í samstarfi við Sjálfsbjörg. Hlut- verkaleikurinn Á flótta hefur verið skipulagður fyrir nemendur grunnskóla víða um land á undan- förnum árum. Með honum er miðað að því að þátttakendur öðl- ist skilning á hlutskipti og aðstæðum flótta- fólks. Unglinga- starf, námskeið og fræðsla af ýmsum toga er einnig þáttur í starfi með ungu fólki. Veigamikill þáttur í móttöku flóttafólks er net stuðningsfjölskyldna sem sam- anstendur af sjálfboðaliðum og hefur þann tilgang að aðstoða það fólk við aðlögun í nýjum aðstæð- um. Tilgangur sölubúða sjúkrahús- anna og föndurhóps er fjáröflun í þágu góðra málefna og hafa þeir hópar stutt við starf sjúkrastofn- ana og fleiri aðila með góðum gjöfum og styrkjum í gegnum árin. Prjónahópur vinnur að verk- efninu Föt sem framlag og styrk- ir Hjálparsjóð Rauða krossins með sölu í L-12 Rauðakrossbúð- inni en þar eru sjálfboðaliðar við afgreiðslu. Reykjavíkurdeild tekur virkan þátt í alþjóðastarfi Rauða kross- ins með þátttöku í átaksverkefn- um sem oft eru fjáröflunarverk- efni að beiðni Alþjóða Rauða krossins. Slík verkefni krefjast samtakamáttar Rauða krossins og þátttöku almennings. Eins og sjá má af því sem hér hefur komið fram er starf sjálf- boðaliða kjarninn í starfsemi Reykjavíkurdeildar Rauða kross- ins eins og í starfi Rauða krossins um heim allan. Að vilja láta gott af sér leiða er algengasta ástæða þess að fólk kýs að starfa fyrir hreyfinguna enda gott og göfugt að gefa af tíma sínum til verkefna hennar sem í dag eru sameinuð í heitinu Byggjum betra samfélag. Með því gefst tækifæri til að bæta við reynslu sína og þekk- ingu hvort sem er á nýju sviði eða kunnugu og um leið að tilheyra öflugum félagsskap með mannúð- arhugsjón að leiðarljósi. Mörg og ólík verkefni kalla á mikinn mannskap en að öllu jöfnu starfa sjálfboðaliðar í langtíma- verkefnum 6-12 tíma á mánuði fyrir hreyfinguna. Öðru hverju er þörf fyrir sjálfboðaliða til skemmri átaksverkefna. Við viljum óska sjálfboðaliðum okkar til hamingju með daginn og um leið vekja athygli á að við erum aldrei of mörg. Við bjóðum ávallt nýtt fólk velkomið í okkar góða hóp. Nánari kynningu á starfi sjálfboðaliða fyrir Reykjavíkur- deild má nálgast á heimasíðu deildarinnar: www.redcross.is/ reykjavik og hjá Sjálfboðamiðlun R-RKÍ. Sími: 545 0408. Netfang: sjalfboðamidlun@redcross.is Fyrir hönd Reykjavíkurdeild- ar RKÍ. Höfundur er forstöðumaður Sjálfboðamiðlunar. Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliðans 5. desember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.