Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 70
Erum langbesta botnlið á Íslandi í dag
Norska félagið Molde
féll úr norsku úrvalsdeildinni á
dögunum og var í kjölfarið búist
við því að félagið myndi missa
eitthvað af sínum bestu mönnum
enda einir sex landsliðsmenn á
samningi hjá félaginu og þar á
meðal Íslendingurinn Marel
Jóhann Baldvinsson.
Svo er nú aldeilis ekki því
síminn hjá Molde hefur ekki beint
verið rauðglóandi síðustu daga.
Ekki ein fyrirspurn hefur komið í
leikmenn félagsins frá því það
féll.
Enginn sýnir
þeim áhuga
Átta leikja sigurganga
Detroit Pistons í NBA-deildinni
var stöðvuð í Charlotte um
síðustu helgi er Bobcats gerði sér
lítið fyrir og landaði sigri gegn
hinu sjóðheita Pistons-liði, 97-89.
Það var fyrst og fremst frábær
frammistaða varamanna Bobcats
sem lagði grunninn að sigrinum
en varamenn heimamanna
skoruðu 46 stig gegn 14 hjá
varamönnum Pistons.
Þetta var aðeins fimmti sigur
Charlotte í vetur en flestir
sigranna hafa komið gegn betri
liðum deildarinnar á borð við San
Atnonio og Cleveland.
Stöðvaði
Detroit Pistons
Gunnar Sigurðsson,
knattspyrnufrömuður á Akranesi
og Viðar Halldórsson úr Hafnar-
firði sögðu við Fréttablaðið í gær
að þeir væru að íhuga alvarlega að
bjóða sig fram til formanns Knatt-
spyrnusambands Íslands á árs-
þingi sambandsins í febrúar næst-
komandi.
Nú þegar hefur Geir Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri KSÍ,
ákveðið að bjóða sig fram. Önnur
framboð hafa ekki verið tilkynnt
en Steinar Þór Guðgeirsson og
Halldór B. Jónsson, varaformaður
KSÍ, hafa útilokað framboð.
Meðal þeirra sem hafa verið
orðaðir þar að auki við formann-
sembættið má nefna Guðna Bergs-
son, fyrrverandi atvinnumann í
knattspyrnu, Jónas Kristinsson,
formann KR Sports, og Bjarna
Benediktsson alþingismann.
„Ég hef verið hvattur til að gefa
kost á mér,“ sagði Gunnar við
Fréttablaðið í gær en í síðasta
mánuði sagði hann vel getað hugs-
að sér að bjóða sig fram. Þá var
ekki orðið ljóst hvort Eggert
myndi hætta.
„Ég er þó ekki búinn að taka
endanlega ákvörðun en mun vænt-
anlega gera það fljótlega,“ sagði
Gunnar.
Hann hefur lengi starfað í
knattspyrnuhreyfingunni á Akra-
nesi og hefur verið orðaður sem
fulltrúi landsbyggðarinnar í kom-
andi formannskjöri.
Viðar Halldórsson er sömuleið-
is vel þekktur innan knattspyrnu-
hreyfingarinnar en hann er gall-
harður FH-ingur og faðir þeirra
Arnars Þórs, Davíðs Þórs og
Bjarna Þórs Viðarssona sem allir
eru þekktir knattspyrnumenn.
Arnar og Bjarni eru atvinnumenn
og Davíð spilar með FH. Jón
Rúnar, bróðir Viðars, er formaður
knattspyrnudeildar FH. Viðar
hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörf-
um fyrir KSÍ á undanförnum
árum.
„Ég er að íhuga alvarlega að
bjóða mig fram,“ sagði Viðar en
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
málið.
Sem fyrr segir er Geir Þor-
steinsson sá eini sem er búinn að
tilkynna sitt framboð og er hann
talinn hafa stuðning núverandi
knattspyrnuforystu. Halldór B.
Jónsson varaformaður segist
styðja Geir.
„Ég reikna fastlega með því að
ég muni styðja Geir ef eftir því
verður leitað,“ sagði Halldór við
Fréttablaðið í gær. Fráfarandi for-
maður, Eggert Magnússon, hefur
ekki lýst opinberum stuðningi en
víst má telja að hann styðji einnig
Geir í sínu framboði.
Geir hefur þegar sagt að hvern-
ig sem niðurstöður formanns-
kjörsins verði mun hann láta af
störfum sem framkvæmdastjóri
KSÍ. Það er því ljóst að tveir valda-
mestu menn íslenskrar knatt-
spyrnu undanfarin ár munu hverfa
úr sínum embættum á næstu mán-
uðum.
Eggert Magnússon hefur eins
og alkunna er fest kaup á enska
úrvalsdeildarfélaginu West Ham
United í félagi við Björgólf Guð-
mundsson bankastjóra. Mun Egg-
ert gerast stjórnarformaður West
Ham þegar kaupin eru formlega
gengin í gegn. Hann er þegar flutt-
ur búferlum til Englands.
Aðeins Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur tilkynnt framboð sitt
til formanns sambandsins. Tveir til viðbótar, Gunnar Sigurðsson og Viðar Hall-
dórsson, íhuga framboð. Halldór B. Jónsson varaformaður styður Geir.
Eggert Magnússon,
verðandi stjórnarformaður West
Ham, sagði í enskum fjölmiðlum í
gær að Argentínumennirnir
Carlos Tevez og Javier
Mascherano færu ekki frá
félaginu í janúar þegar félaga-
skiptaglugginn opnar á ný. Þeir
hafa átt erfitt með að aðlagast
enskri knattspyrnu síðan þeir
komu til West Ham í haust.
„Eftir að yfirtakan er gengin í
gegn vilja þeir örugglega sýna
okkur hvers kyns heimsklassa-
leikmenn þeir eru,“ sagði Eggert
og hældi Tevez fyrir frammistöðu
sína gegn Everton um helgina.
Mascherano og
Tevez fara ekki
Hvert ár stendur ítölsk
útvarpsstöð fyrir kosningu á
versta leikmanni ársins sem er að
líða og veitir sigurvegaranum
hina svokölluðu „gullnu rusla-
fötu“. Í ár var brasilíski fram-
herjinn hjá Inter, Adriano, þess
vafasama heiðurs aðnjótandi. Af
tíu þúsund atkvæðum fékk hann
32,5% „kosningu“. Hann hefur
þótt skelfilegur í haust og ekki
skorað síðan í mars síðastliðnum.
Í fyrra hlaut Christian Vieri
verðlaunin og hefur lítið spilað í
ár. Hinir sem voru nefndir til
sögunnar í ár eru Alberto
Gilardino, Ricardo Oliveira, Jean-
Alain Boumsong og Raul.
Fékk gullnu
ruslafötuna