Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 72
Breskir fjölmiðlar hafa
mikið fjallað um meint ósætti á
milli Arsene Wenger, stjóra Ars-
enal, og fyrirliða liðsins, Thierry
Henry. Fyrirliðinn segist ekki hafa
rifist við Wenger sem hefur gefið
í skyn að ekki sé allt með felldu á
milli þeirra tveggja.
„Ég verð frá í mánuð, kannski
einn og hálfan,“ sagði Henry við
franska blaðið L´Equipe en hann á
að hafa rokið heim af æfingu síð-
asta föstudag þegar í ljós kom að
hann myndi ekki spila gegn
Tottenham.
„Ég varð reiður því þar með get
ég ekki hjálpað liðinu mínu á vell-
inum. Það fer í taugarnar á mér en
ég reifst ekki við Wenger.“
Henry missti líka af leiknum
gegn Bolton fyrir rúmri viku og
nú hefur komið í ljós að hann er
líka meiddur á læri. Tímabilið í
fyrra virðist hafa tekið sinn toll af
Henry en hann fór í úrslit meist-
aradeildarinnar með Arsenal og í
úrslit HM með Frakklandi.
„Eftir að hafa leikið 60 leiki
sama árið þá kemur að því að lík-
aminn segir stopp og þá verður
maður að hlusta,“ sagði Henry og
Wenger tekur undir að hann verði
að fá sína hvíld.
Sögusagnir um ósætti þeirra
fengu byr undir báða vængi þegar
Wenger sagðist ekki ætla að kaupa
leikmenn í janúar degi eftir að
Henry hafði sagt hið gagnstæða.
„Við erum ekki með sömu breidd
og hin liðin. Arsene mun reyna að
ná góðum samningum í janúar,“
sagði Henry og þegar Wenger var
spurður af hverju Henry hefði
sagt þetta svaraði Wenger: „Ég
veit það ekki. Þið verðið að spyrja
hann.“
Henry segist ekki hafa rifist við Wenger
Sjónvarpsstöðin Sýn hefur
tryggt sér sýningarrétt á beinum
útsendingum frá Evrópumótaröð
karla í golfi. Birgir Leifur Haf-
þórsson varð fyrsti íslenski kylf-
ingurinn í karlaflokki sem tryggði
sér þátttökurétt á mótaröðinni og
mun hann keppa á tveimur mótum
í Suður-Afríku nú síðar í mánuðin-
um.
Sýnt verður frá öllum keppnis-
dögum í báðum mótum en Sýn
mun svo vera með beinar útsend-
ingar frá fleiri mótum á næsta
ári.
Fyrra mótið sem Birgir Leifur
keppir í er Alfred Dunhill-mótið
sem hefst núna á fimmtudaginn.
Viku síðar hefst opna Airways-
mótið.
Eftir formannafund GSÍ í nóv-
ember var ákveðið að sambandið
myndi sækja um A-styrk til
Afreksmannasjóðs ÍSÍ fyrir Birgi
Leif en þátttöku hans á mótaröð-
inni fylgir mikill kostnaður.
Hann hefur í rúmt ár búið í
Lúxemborg þar sem hann á auð-
velt með að ferðast á milli móta.
Birgir Leifur tryggði sér þátt-
tökurétt á Evrópumótaröðinni
með því að vera meðal þrjátíu
efstu á lokaúrtökumótinu sem fór
fram á Spáni í síðasta mánuði. Var
það í tíunda skiptið sem hann
reyndi að ná í „kortið“ svokallaða
en tvívegis áður hefur hann verið
aðeins einu höggi frá því.
Birgir Leifur í beinni á Sýn
Ísland endaði í þriðja
sæti í sínum riðli í undankeppni
HM í handbolta kvenna en mótinu
lauk á sunnudaginn. Markmið liðs-
ins fyrir undankeppnina var að
vinna alla leikina og komast upp
úr riðlinum en Júlíus Jónasson
þjálfari íslenska liðsins viður-
kennir að það hafi verið háleitt
markmið.
„Við settum okkur markmið um
að fara áfram úr riðlinum. Við
vissum jafnframt að það væri
háleitt markmið og það þyrfti allt
að ganga upp. Leikurinn gegn
Portúgal situr svolítið í manni, við
spiluðum illa framan af í þeim leik
og lentum í vandræðum.
Við lékum svo nokkuð vel gegn
Rúmenum en töpuðum því á
nokkrum mínútum og á þeim mín-
útum sá maður ef til vill muninn á
styrk liðanna. Ég var samt mun
sáttari við spilamennskuna í þeim
leik en svo var ég ósáttur við fyrri
hálfleikinn gegn Ítölum. Þannig að
á heildina litið er ég ekkert alltof
sáttur. Í fyrsta lagi vegna þess að
við náðum ekki markmiðinu okkar,
ég veit að það var háleitt en við
náðum því ekki, og í öðru lagi þá
hefði ég viljað fá aðeins meira út
úr mótinu, ég hefði t.d. viljað sjá
Portúgalsleikinn enda öðruvísi,“
sagði Júlíus en hann sagði að liðið
væri komið lengra en í æfinga-
ferðinni í Hollandi í síðasta mán-
uði.
Júlíus sagði jafnframt að mark-
mið íslenska kvennalandsliðsins
væri að komast á stórmót á næstu
árum. „Það eru allir sammála um
það að næsta markmið kvenna-
landsliðsins sé að komast í stór-
keppni á næstu tveimur til þrem-
ur árum. Svo þarf líka að horfa á
hvað þarf til svo að það markmið
náist.
Við höfum verið að velta þessu
mikið fyrir okkur og ef við miðum
okkur við t.d. Rúmeníu sem er eitt
besta kvennalandsliðið í heimin-
um þá eru þar fleiri alhliða leik-
menn. Við Íslendingar erum svo-
lítið fastir í því að ef leikmaður er
t.d. vinstri skytta þá er leikmaður-
inn bara vinstri skytta og fer ekk-
ert mikið úr þeirri stöðu. Við
sjáum það bara þegar alþjóðlegur
bolti er skoðaður að leikmenn eru
mikið að spila fleiri en eina stöðu
og það er kannski of lítið um það
hjá okkur.“ En hver er ástæðan
fyrir þessari stöðu í íslenskum
handbolta?
„Ég held að hún liggi að hluta
til í því að það eru fjórtán leik-
menn í liði heima á Íslandi. Það má
alveg taka það til skoðunar hvort
það sé ekki of mikið og hvort ekki
sé betra að hafa bara tólf leik-
menn á skýrslu. Eins og staðan er
dag þá getur þjálfari félagsliðs
valið tvo leikmenn í hverja stöðu
en þarna þyrfti þjálfarinn að velja
t.d. leikmann sem getur leyst
tvær, þrjár eða jafnvel fleiri stöð-
ur. Þá þarf þjálfarinn að þjálfa
leikmenn í því að verða alhliða
leikmenn.
Það er líka annað í þessu sam-
bandi að á Íslandi eru að mínu
mati félög sem eru með of marga
góða leikmenn, bæði í kvenna- og
karlahandboltanum. Það er frá-
bært fyrir félagsþjálfara en það
er slæmt fyrir landsliðsþjálfara
og handboltann í heild sinni. Þarna
safnast saman margir góðir leik-
menn sem spila minna og vantar
leikform og það er erfiðara að
taka tvo leikmenn sem spila sömu
stöðu úr sama félagsliðinu,“ sagði
Júlíus og á hann þar við Stjörnuna
og Val í kvennaboltanum og Val í
karlaboltanum.
Júlíus bætti við að markvarða-
staðan í íslenskum kvennahand-
bolta væri ekki nógu góð. „Í
íslenskum kvennahandbolta eru
of margir erlendir markverðir að
spila í deildinni. Við erum með tvo
frábæra markverði, þær Írisi og
Berglindi, en ég fór að velta því
fyrir mér um daginn hvað gerist
ef önnur þeirra verður ófrísk. Þá
erum við komin í skrítna stöðu.
Það eru vissulega einhverjir mark-
menn til en það er mjög lítið af
þeim. Íslenskir markmenn fá of
lítið að spila,“ sagði Júlíus að
lokum.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta lauk keppni í undankeppni HM á sunnudaginn og Fréttablaðið sett-
ist niður með Júlíusi þjálfara liðsins og ræddi við hann um árangurinn og stöðu kvennahandboltans.
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Kristín Rós Hákonardóttir
vann í gær sín önnur bronsverð-
laun á heimsmeistaramóti
fatlaðra í sundi sem fer fram í
Suður-Afríku. Hún varð í gær
þriðja í 100 m bringusundi en
vann bronsverðlaun í 100 m
baksundi í fyrradag.
Annað brons
Iceland Express deild karla
Snæfell vann í gær
sigur á Grindvíkingum á útivelli,
75-68, og fóru þar með á topp
Iceland Express deildar karla.
Liðið hefur unnið átta leiki í röð
eftir að hafa tapað fyrir KR í
fyrstu umferðinni.
Hlynur Bæringsson skoraði
flest stig Snæfellinga, fimmtán,
tók tíu fráköst, gaf fimm stoð-
sendingar og stal fjórum boltum.
ÍR vann svo mikilvægan sigur
á Haukum, 103-90.
Snæfell eitt
í efsta sæti
Leikmenn Bengaltígranna frá
Cincinnati hafa verið duglegir að
komast í kast við lögin síðustu ár
og enn einn leikmaður félagsins
var handtekinn um helgina.
Sá heitir Reggie McNeal og er
nýliði hjá Bengals. Hann var
handtekinn í Houston fyrir utan
næturklúbb þar sem hann var
með dólgslæti. Hann er sjöundi
leikmaður félagsins sem er
handtekinn á einu ári.
Margir sitja
í steininum