Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 29
Isabelle Dinoire, sem fékk
manna fyrst nýtt andlit eftir
að hundur beit hana getur sýnt
svipbrigði á ný.
Heimurinn stóð á öndinni þegar
Dinoire, sem er frá bænum Ami-
ens í Frakklandi, kom fram á
blaðamannafundi í febrúarmán-
uði á þessu ári til að sýna nýtt
andlit sem læknum hafði tekist á
græða á hana.
Frá þeim tíma hefur Dinoire
náð góðum bata sem sýnir sig
meðal annars í því að hún hefur
nú endurheimt hreyfigetu í and-
liti, meðal annars hæfileikann til
að brosa.
Læknarnir sem framkvæmdu
aðgerðina á Dinoire fyrir tæpu ári
segja hana vel heppnaða en Din-
oire fékk nýtt nef, varir og höku
eftir að hennar eigin hundur réðst
á hana. Þeir segja að andlitið hafi
jafnað sig og líti eðlilega út þrátt
fyrir nokkur ör. Nú skeri hún sig
ekki lengur úr fjöldanum. Þessu
til staðfestingar segjast nánustu
vinir Dinoire og vandamenn bera
aftur kennsl á hana.
Síðan Dinoire gekkst undir
andlitsígræðsluna hefur Kínverj-
inn Li Guoxing farið í svipaða
aðgerð, fékk nýtt nef, efri vör og
kinn. Þá hafa læknar við Royal
Free Hospital í London fengið
leyfi til að framkvæma allsherjar
andlitsígræðslu. Er nú hentugra
umsækjenda leitað. Frá þessu er
greint á fréttavef BBC, www.bbc.
co.uk.
Getur brosað á ný
Reykingar eru algengastar hjá
fólki á þrítugsaldri.
Lýðheilsustöð fékk Capacent
Gallup til að kanna umfang reyk-
inga á Íslandi á árinu 2006. Voru
kannanirnar gerðar þrisvar,
snemma árs, um mitt árið og í lok
þess.
Þar kom í ljós að í dag reykja
um 18,8 prósent fólks á aldrinum
15 til 89 ára daglega en fyrir
fimmtán árum var þessi tala um 30
prósent. Umfang reykinga er því á
hægri en stöðugri niðurleið.
Ekki er verulegur kynjamunur
en þó eru karlar örlitlu fleiri því 21
prósent karla reykir daglega miðað
við 17 prósent kvenna.
Töluverður munur er á reyking-
um eftir aldri en þær eru algeng-
astar hjá fólki á þrítugsaldri. Þar á
eftir kemur aldurshópurinn 50-59
ára. Reykingar eru minnstar í elsta
aldurshópnum, 80 til 89 ára.
Athyglisvert er að tíðni reyk-
inga minnkar eftir því sem mennt-
un eykst. Háskólamenntað fólk
reykir minnst (8,3%) en þeir
reykja mest sem eru einungis með
grunnskólamenntun (tæp 30 pró-
sent).
Reykingar minnka nokkuð eftir
því sem fjölskyldutekjur hækka en
munurinn er ekki eins afgerandi
og þegar menntunin er skoðuð.
Reykingafólki
fækkar stöðugt
Alla þriðjudaga til laugardaga