Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 32
Hugleikur gefur jólabónus.
Nú fer aðventan í hönd og þá er hefð
fyrir því að leikfélagið Hugleikur
bregði sér í jólafötin og skemmti sér
og öðrum sem aldrei fyrr. Jóladag-
skrá Hugleiks heitir að þessu sinni
Jólabónus og Sigurður H. Pálsson,
formaður félagsins, var inntur eftir
því hvað þar fer fram.
„Á dagskránni eru fjórir nýir
frumsamdir leikþættir, þar af er
einn örsöngleikur sem fjórir höf-
undar eru skrifaðir fyrir,“ segir
hann. „Svo verður alls konar tón-
list með ýmsum flytjendum, söng-
sveitin Hjárómur treður upp sem
og hin gamalkunna stórsveit Ljótu
hálfvitarnir. Svo er aldrei að vita
nema gripið verði í jólaföndur.“
Leikfélagið Hugleikur fékk á
dögunum viðurkenningu á degi
íslenskrar tungu fyrir nýsköpun í
leikritun, útúrsnúning ýmiskonar
á tungumálinu og alls kyns með-
ferð á menningararfinum. Í vetur
hefur félagið látið ljós sitt skína í
Þjóðleikhúskjallaranum einu sinni
í mánuði með dagskrá undir yfir-
skriftinni Þetta mánaðarlega þar
sem félagsmenn leika einþáttunga
eftir félagsmenn í leikstjórn
félagsmanna. Jólabónusinn er
hluti af þeirri dagskrá.
„Höfundarnir eru allir þekktir
hugleikshöfundar og allir þættirn-
ir hafa meiri eða minni tengingu
við jólin þó að sumt sé kannski
þess eðlis að maður myndi ekki
kalla það beinlínis jólalegt í hefð-
bundnum skilningi. En við reyn-
um okkar besta til að koma fólki í
jólaskap,“ segir Sigurður.
Jólalævintýri Hugleiks var
sýnt í fyrra við gríðarlega aðsókn
og var ein best sótta sýning félags-
ins frá upphafi. „Félagið setti
fyrst upp jóladagskrá árið 2000
þegar nokkur jólabörn innan
félagsins tóku sig til og settu
saman dagskrána Rauð jól, sem
sýnd var í Kaffileikhúsinu,“ segir
Sigurður. „Síðan hefur tíðkast að
Hugleikur jóli fyrir landsmenn á
aðventunni, þó ekki síðan 2003 svo
það er víst að margir hlakka til.“
Jólabónusinn verður framinn í
Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld og
á fimmtudaginn og hefst klukkan
níu.
Ákaflega gaman þá
Það er ekki hlaupið að því að
taka gæludýrin með sér þegar
maður bregður sér í frí. Sér-
staklega í kringum jólin.
Fæst dýr er hægt að taka með sér
í frí út á land eða erlendis svo þá
er oft gott að eiga vissan samastað
fyrir besta vininn eða litlar kisur.
Smádýr í búri og meira segja
fiska er auðveldlega hægt að taka
með sér í frí út á land, hvort sem
er í bíl eða flugi. Það borgar sig að
hringja í flugfélögin og athuga
með reglur um gæludýr á ferða-
lagi og undirbúa það ferðalag með
smá fyrirvara. Langflestir hunda-
eigendur taka með sér félagann í
frí ef því er viðkomið, en samt eru
margir sem fá að vera í góðu yfir-
læti á hóteli yfir hátíðarnar.
Kisurnar eru flestar heima,
enda þær margar hverjar sjálf-
stæðar en þurfa einhvern sem
kemur til að gefa þeim mat og
hleypir þeim út. Þó eru margir
sem vilja að kisa sé á hóteli í trygg-
um höndum yfir hátíðarnar ef eig-
endur þurfa að bregða sér af bæ.
Það tíðkast ekki að taka með sér
gæludýr í jólafrí til útlanda, enda
strangar reglur um sóttkví á
dýrum sem fara milli landa. Katt-
holt rekur kattahótel sem tekur
við kisum yfir hátíðarnar í lengri
eða skemmri tíma. Kattagæslan
fer þannig fram að eigandinn
pantar gæslu fyrir dýrið. Kisa
þarf að uppfylla skilyrði um bólu-
setningu við kattafári og orma-
hreinsun. Þar fær hún rúmgott
búr og hefur allt sem hún þarfn-
ast. Nauðsynlegt er að dýrunum
fylgi allar upplýsingar um matar-
æði.
Gæludýrin á hótel
um hátíðarnar
happdrætti }
Hátíðlegar og nýtilegar jólagjafir af öllum stærðum
Vertu í sambandi og settu saman
þína eigin sælkerakörfu
Osta- og Sælkeraborðinu Hagkaupum í Kringlunni og Smáralind
Hringdu og fáðu upplýsingar í síma 511-4466
eða sendu tölvupóst á kokkarnir@kokkarnir.iswww.kokkarnir.is
Karfa 1. Kr. 1.980.- Karfa 2. Kr. 2.690.- Karfa 3. Kr. 3.690.-
Karfa 5. Kr. 7.890.-
Karfa 7. Kr. 9.590.-
Karfa 6. Kr. 5.990.-Karfa 4. Kr. 4.990.-
H
ön
nu
n:
S
pö
r
-
Ra
gn
he
ið
ur
Á
gú
st
sd
ót
ti
r