Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2006, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 05.12.2006, Qupperneq 30
Stuðningspúðar og hálskragar eru meðal þess sem fæst í bara list-iðju Bjargeyjar Ingólfsdótt- ur iðjuþjálfa sem opnuð verður í dag kl. 14 að Háhæð 10 í Garðabæ. Bjargey hefur hannað ýmsa stuðn- ingspúða og að hennar sögn er til- gangurinn sá að framleiða vöru sem getur átt þátt í að fjölga verkjalausum gæðastundum við ýmiskonar iðju eða í hvíld. Bara 6 kallar hún nýjustu afurðina. Sá púði er sérhannaður í samráði við sjúkraþjálfara á Reykjalundi og einkum ætlaður þeim sem eru slæmir í mjöðmum. Bjargey bendir réttilega á að margir þjáist af stoðkerfisvanda eins og þrálátum verkjum í öxlum en stuðningur undir framhand- leggina geri fólki kleift að slaka á í herðum og handleggjum. Því hefur hún einnig gert sérstakan púða sem minnkar vöðvaspennu þar og verki sem henni fylgja. „Púðinn er hentugur þegar setið er við handavinnu og mér er líka hugsað til þeirra sem vilja njóta þess að sitja og lesa góða bók um jólin,“ segir hún brosandi. Svo er það ormurinn langi sem þarfnast smá útskýringa. „Ormur- inn langi hjálpar þér að bera höf- uðið hátt,“ segir hún sposk og sýnir hvernig hann á að hringast um hálsinn og veita höfðinu stuðn- ing. Hún leitar gjarnan í fjársjóð bókmenntanna þegar hún finnur framleiðslu sinni nöfn og hér er það sjálf Heimskringla Snorra Sturlusonar. „Hálskraginn ber nafn hins vandaða skips Ólafs Tryggvasonar Noregskonungs og ég vona að nútíma víkingar vilji nota hann á sínum ferðalögum,“ segir hún. „Hann er ákjósanlegur ferðafélagi fyrir farþega sem vilja hvílast þegar þeir sitja í bíl eða flugvél. Einnig nýtist hann fólki sem vegna fötlunar eða slysa þarf stuðning til að geta látið sér líða betur,“ bendir hún á. Gengið er inn í bara list-iðju Bjargeyjar að norðanverðu að Háhæð 10 í Garðabæ. Þar hefur hún hreiðrað um sig með hönnun sína og hand- verk sem er af ýmsum gerðum og hægt er að prófa, skoða og kaupa. Þar opnar hún í dag, þann 5. desember, „á fullu tungli“ eins og hún tekur fram og opið er frá 14 til 20 alla daga fram til 23. desember. Ormurinn hjálpar fólki að bera höfuðið hátt Allt söfnuðust 88 milljónir á Degi rauða nefsins. Landsmenn tóku höndum saman og stóðu vel á bak við söfnunar- átakið Dagur rauða nefsins sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stóð fyrir 1. desember. Alls söfnuðust 88 milljónir króna og er þar með talinn ágóðinn af sölu rauðra trúðanefja, geisladiski Baggalúts „Brostu“, söfnunar- átaki Bylgjunnar og framlög þeirra heimsforeldra á ársgrund- velli sem skráðu sig meðan á átak- inu stóð, auk 30 milljóna króna framlags frá utanríkisráðuneyt- inu. 3.950 heimsforeldrar bættust í hóp þeirra sem fyrir voru meðan söfnunarátak UNICEF stóð yfir. Þar með eru íslenskir heimsfor- eldrar orðnir 11.600 og á ársgrund- velli styrkja þeir börn í sárri neyð um 139 milljónir króna. Árangur- inn fór fram úr björtustu vonum og söfnuðust tæpar 11 milljónir króna í gegnum sölu á rauðum trúðanefjum, geisladiski Bagga- lúts og með frjálsum framlögum. Utanríkisráðuneytið veitti 30 millj- ónir króna til landssöfnunarinnar og verður þeim varið til mennta- verkefna UNICEF í Síerra Leóne. Vel heppnuð söfnun Hreinsar loftið Eyðir lykt Drepur bakteríur ECC Bolholti 4 Sími 511 1001
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.