Fréttablaðið - 05.12.2006, Page 18

Fréttablaðið - 05.12.2006, Page 18
 Langalgengustu brotin sem dæmt var fyrir í héraðsdóm- um landsins á árunum 1993-2003 eru umferðarlagabrot. Þeim fjölg- aði um 52 prósent þegar þau fóru úr 770 árið 1993 í 1.176 árið 2005. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar á sakfellingum í opinberum málum 1993-2005. Þróunin á eðli brotanna breyt- ist greinilega og áherslan færist yfir á fíkniefnin. Um og upp úr 1993 voru næstflestir dæmdir fyrir þjófnað og síðan skjalaföls- un en í byrjun tíunda áratugarins voru næstflestir dæmdir fyrir fíkniefnabrot. Sakfellingum fyrir slík brot hefur fjölgað mest á tímabilinu, þær rúmlega tífölduð- ust. Þegar tegundir brota eru skoð- aðar kemur í ljós að sakfellingum vegna þjófnaða hefur fjölgað um tæpan helming. Sakfellingum vegna minniháttar líkamsárása fjölgaði um tæplega sextíu pró- sent. Sakfellingum vegna eigna- spjalla fjölgaði um tæp tíu prósent en sakfellingum vegna nytjastulds fækkaði nokkuð. Konur eru sjaldnar dæmdar í opinberum málum en karlar. Konur ná þó að vera rúmlega tut- tugu af þeim sem dæmdir voru fyrir skjalafals 1993-2005, sex af þeim sem dæmdir voru fyrir fjár- drátt, fjórar fyrir líkamsmeiðing- ar af gáleysi og sjö konur voru dæmdar fyrir fjársvik. Í þessum fjórum brotaflokkum voru konur yfir tuttugu prósent dæmdra. Sakfellingum yfir konum vegna þjófnaðar hefur fjölgað mest 1993- 2005. Sakfellingum yfir konum vegna fíkniefnabrota hefur fjölg- að verulega, eða úr sjö í 53, og sak- fellingum vegna umferðarlaga- brota hefur líka fjölgað mikið. Allir dómstólarnir eiga það sameiginlegt að sakfellingar vegna umferðarlagabrota eru flestar. Í flestum dómstólum eru sakfellingar vegna fíkniefnabrota næstflestar og hefur þeim fjölgað hlutfallslega mest í öllum dóm- stólunum og sýnu mest á síðustu árum. Sakfellingum hefur fjölgað hlutfallslega mest í Héraðsdómi Reykjaness, þar hafa þær þrefald- ast frá árinu 2000, en fólksfjölgun hefur verið töluvert meiri þar en annars staðar á landinu. Í Héraðsdómi Reykjavíkur hafa sakfellingar vegna fíkniefna- brota meira en tvöfaldast og einn- ig í Héraðsdómi Suðurlands en stígandinn hefur verið jafnari í héraðsdómum Reykjavíkur og Reykjaness. Sakfellingum vegna fíkni- efna fjölgar Sakfellingum vegna fíkniefnabrota fjölgaði á tíma- bilinu 1993-2005. Sakfellingar vegna umferðarlaga- brota eru þó langflestar. Konur eru sjaldnar dæmd- ar í opinberum málum en karlar. Magnús Stefánsson félags- málaráðherra hefur undirritað nýjan samning sem gerir ráð fyrir áframhaldandi stuðningi ráðuneyt- isins við Sjónarhól, ráðgjafarstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir. Styrkurinn nemur fimmtán millj- ónum króna og gildir í þrjú ár. Samkomulagið felur í sér að á samningstímanum bjóði Sjónar- hóll þjónustu og styðji við foreldra og aðra aðstandendur barna með sérþarfir. Markmiðið með starfi Sjónar- hóls er að fjölskyldur barna með sérþarfir njóti jafnréttis og sam- bærilegra lífskjara á við aðrar fjölskyldur í landinu. F í t o n / S Í A Viðskiptavinir Sparisjóðsins þurfa ekki að greiða neitt, bara velja félag til að styrkja, og Sparisjóðurinn leggur þá fram 1.000 kr. til félagsins. Farðu inn á www.spar.is eða komdu við í næsta sparisjóði og veldu félagið sem fær þinn styrk. Saman getum við safnað geðveikt miklu Allir geta tekið þátt í söfnun til styrktar samtökum sem vinna að úrbótum í geðheilbrigðismálum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.