Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 22
fréttir og fróðleikur
Stjórnmálaflokkar eru nú
að stilla upp listum sínum
fyrir næstu þingkosningar.
Þeir sem veljast til starf-
ans munu standa vörð um
hagsmuni Íslendinga næstu
fjögur árin. Samsetning
þingmannahópsins sem
situr nú á Alþingi er tæpast
þverskurður af hópi ís-
lenskra kjósenda, sem þeir
eru fulltrúar fyrir. Meðal-
aldur þingmanna er rúm 50
ár og meirihluti þingmanna
er karlmenn.
Um þriðjungur kosningabærra
Íslendinga er á aldrinum 18 ára til
35 ára. Hlutfall þingmanna á þess-
um sama aldri er 9,5 prósent eða
sex þingmenn. Rúmur fimmtung-
ur þingmanna Alþingis er kominn
yfir sextugt eða þrettán þing-
menn. Er það í góðu samræmi við
hlutfall þess aldurshóp meðal
kjósenda og tæpu prósentustigi
minna en Íslendingar sextíu ára
og eldri.
Þingmannahópar hafa lengst af
einkennst af því að þeir hafa í
mjög miklum mæli verið karl-
menn á miðjum aldri með tiltölu-
lega mikla menntun og frekar úr
efri lögum samfélagsins að sögn
Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors í
stjórnmálafræði. „En það sem
hefur kannski helst breyst síðustu
ár og áratugi er að hlutur kvenna
hefur mjög víða farið vaxandi.
Gildi samfélagsins hafa breyst í
þá átt að mjög margir telja nú afar
mikilvægt að kynjaskiptingin sé
nokkurn vegnn jöfn í kjörþing-
um.“
Ólafur segir ekkert sambærilegt
hafa gerst varðandi aðrar breytur
og nefnir aldur sem dæmi. „Það
eru engar háværar kröfur um að
ungt fólk eða gamalt eigi sitt rétt
hlutfall inni á þingunum. Og það
hefur heldur ekki verið almenn
krafa um að þing endurspegli
menntun almennings eða greind-
arvísitölu.“
Ólafur segir hugsanlegt að sú
krafa sem sé um jafnt kynjahlut-
fall á þingi geti farið að eiga við
fleiri breytur en engin merki sjá-
ist um það enn sem komið er.
„Almenna reglan er sú að að þing
endurspegli skoðanir kjósenda í
gegnum stjórnmálaflokka sem
hafi fjölda þingmanna í samræmi
við fylgi flokkanna.“
Konur á Alþingi eru 23 eða 36,5
prósent þingmanna. Ísland er með
lægsta hlutfall kvenkyns þing-
manna miðað við hin Norðurlöndin
sem eru þó á frekar svipuðu róli að
Svíþjóð undanskildu þar sem
konur eru 47,3 prósent þing-
manna.
Norðurlöndin eru í fremstu röð
í veröldinni varðandi jafnt kynja-
hlutfall í þingum að sögn Ólafs.
„Meðaltal kvenkyns þingmanna á
Íslandi var rúm 30 prósent í síð-
ustu kosningum en er núna komið
í tæp 37 prósent þar sem konum
hefur fjölgað á kjörtímabilinu
með tilkomu varamanna, sem
sýnir náttúrulega að konur voru í
varamannasætum en höfðu ekki
komist í aðalsætin.“
Mikilvægt er að skoða að Ísland
skiptist í tvo gjörólíka hluta varð-
andi kynjaskiptinguna að sögn
Ólafs. „Í þeim þrem kjördæmum
sem eru á höfuðborgarsvæðinu
hafa síðustu ár milli 40 og 50 pró-
sent þingmanna yfirleitt verið
konur. En svo höfum við lands-
byggðarkjördæmin þrjú sem hafa
mjög lengi verið langt á eftir með
sárafáar konur á þingi. Í síðustu
kosningum voru um 20 prósent
þingmanna úr þessum þremur
kjördæmum konur. Þannig að
kynjamisréttið sem kemur fram í
meðaltalinu byggist á tveimur
mjög ólíkum hópum. Annars
vegar höfuðborgarkjördæmunum
þremur þar sem nánast jafnrétti
ríkir milli kynja og hins vegar
landsbyggðinni þar sem gríðar-
mikið misrétti milli kynja ríkir.
Og ef menn vilja breyta þessu þá
eru það fyrst og fremst lands-
byggðarkjördæmin sem eru við-
fangsefnið.“
Ólafur segir ýmsar skýringar
koma til greina á þessari stöðu en
sú langlíklegasta sé að þetta fylgi
þjóðfélagsþróuninni. „Lands-
byggðarkjördæmin eru meira
gamla Ísland með eldri atvinnu-
vegum og eldri menningu þar sem
minni áhersla var lögð á jafnrétti
kynjanna. Á meðan er höfuðborg-
arsvæðið nútímalegra með öðru-
vísi viðhorf og stéttasamsetningu.
Það eru meira einkenni nýja sam-
félagsins sem gerir harðari kröfur
um kynjajafnrétti.“
Þingmenn endurspegla ekki þjóðina
Valdaráni hótað eina ferðina enn
RV
62
20
Einstök hönnun
Mikið úrval
Frábær ending
Ný
sen
din
g!
Sko
ðið
úrv
alið
í ve
rslu
n
okk
ar a
ð R
étta
rhá
lsi 2
Postulín sem gleður – Pillivuyt
30 þúsund
gestir árlega