Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 28
Um tólf spora kerfið, uppruna
þess, tilgang og merkingu.
Flestir hafa heyrt talað um tólf
spora kerfið. Hvort sem er í
samhengi við sjálfshjálparhópa
óvirkra alkóhólista, spilafíkla,
ofæta eða annarra sem eru fastir
í viðjum vítahrings niðurbrjót-
andi hegðunarmynsturs. En hver
eru þessi „spor“ nákvæmlega og
út á hvað ganga þau?
Upprunalega var það leiðtogi
trúarlegrar hreyfingar í Banda-
ríkjunum sem lagði drögin að
sporunum tólf. Hreyfing þessi
var kennd við Oxford og for-
sprakki hennar var maður að
nafni Frank Buckman (f. 1878 -
d. 1961). Samkvæmt Buckman
var nauðsynlegt að ástunda heið-
arleika og hjálpsemi í lífinu og
leggja allt sitt traust á Guð og
handleiðslu hans. Og talandi um
Guð. Ef fólk átti í vandræðum
með að finna hann þá hafði
Oxford-hreyfingin sex skref á
takteinunum sem fólk gat fylgt
eftir og árangurinn varð betra
samband við almættið. Skrefin
voru eftirfarandi:
Bill Wilson var drykkjumaður,
verðbréfasali og athafnamaður
sem hafði háð langa baráttu við
að ýmist reyna að hætta áfengis-
neyslu sinni eða hafa hemil á
henni. Ásamt drykkjusjúkum
vini sínum fór hann á fund hjá
Oxford-hreyfingunni og þar gerð-
ist loksins eitthvað markvert í
máli Bills. Hann náði að hætta að
drekka með því að iðka þessi sex
atriði í lífi sínu og ásamt vininum
fór hann af stað til að upplýsa
aðra drykkjusjúklinga um aðferð-
ina. Skömmu síðar kynntist hann
lækni að nafni Bob Smith, sem
einnig var drykkjusjúkur, og
eftir að hafa upplýst hann um
þessa árangursríku aðferð drógu
þeir félagarnir sig frá Oxford-
hreyfingunni og stofnuðu sjálfs-
hjálparhóp sem seinna fékk
nafnið Alcoholics Anonymous.
Sjálfshjálparhópurinn starfaði
m.a. út frá kenningum ýmissa
sálkönnuða, t.d. Carls Gustavs
Jung sem hafði fundið það út að
eina leiðin fyrir fólk til að hætta
alveg að drekka væri að eignast
samband við almættið og Willam
James, frumkvöðuls á vegum sál-
arfræðinnar, sem í þá daga var
meðal þeirra fyrstu til að rann-
saka fíkn og fíknarhegðun.
Sem fulltrúi sjálfshjálpar-
hópsins skrifaði Bill Wilson bók
sem fékk nafnið Alcoholics Anon-
ymous og þar komu fram skrefin
sex í nýrri útgáfu. Hér voru þau
orðin tólf og sérsniðin að þörfum
þeirra sem vilja láta af áfengis-
neyslu sinni.
Að fylgja þessum aðferðum
reyndist góð leið fyrir fjölmarga
alkóhólista til að losna út úr víta-
hring niðurbrjótandi neyslu. AA-
samtökin voru stofuð árið 1935
en síðan þá telur fjöldi þeirra
sem þau hafa stundað margar
milljónir manna og kvenna af
öllum trúarbrögðum, stéttum og
stigum.
Þar sem þessi tólf spor virk-
uðu svo vel á áfengissjúka hafa
aðrir tekið þau upp í nánast
óbreyttri mynd og í dag eru til
hundruð samtaka sem enda á
„anonymous“. Innan þeirra
rammast fyrst og fremst öll
vímuefni, lögleg sem ólögleg, en
einnig margs konar hegðun á
borð við spilafíkn, ofát, ástar-
sambönd og kynlífsfíkn og margt
fleira. Í raun má segja að til séu
nafnlausir sjálfshjálparhópar
yfir flest það sem getur breyst
úr meinlausri ástríðu yfir í nið-
urbrjótandi og mannskemmandi
fíkn og þráhyggju.
Tólf mikilvæg spor
úr viðjum vítahringa
www.svefn.is