Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 31
Sala á óhreinu kókaíni eykst í Bretlandi. Breskir eiturlyfjasalar er í síaukn- um mæli farnir að blanda kókaíni saman við önnur, ódýrari efni til að maka krókinn. Er efnið því orð- heldur útþynnt þegar það berst neytendum. Dæmi eru um að ódýrari efni eins og verkjalyfinu phenacetin sé blandað saman við kókaín, en lyfið var tímabundið bannað árið 1968 eftir að í ljós kom að það var krabbameinsvaldandi. Það er ekki óalgengt að hreint kókaín sé einungis 70 prósent af kókaíninu sem selt er á götunni. Í Bretlandi er talið að það fari allt niður í 30 prósent. Kókaínneysla er hvergi talin meiri í Evrópu en á Bretlandseyj- um. Fimm prósent ungmenna frá Wales og Englandi viðurkenndu að hafa neytt kókaíns samkvæmt nýlegri könnun. Hafði neyslan fjór- faldast hjá ungmennum á aldurs- bilinu 15 til 24 ára síðustu tólf ár. Þá hafði kókaínneysla fullorðinna þrefaldast á síðastliðnum áratug. Vegna sívaxandi eftirspurnar eykst kókaínsmygl til Bretlands með ári hverju og er ýmsum aðferðum beytt til að reyna að koma efninu fram hjá tollgæslunni. Dæmi eru um að menn hafi innbyrt eitt kíló af kókaíni í plastpökkum. Þá hafa latex-pakkar með tæpum fjórum kílóum af kókaíni fundist saumaðir við kviðvegg hunda. Krabbameinsvaldandi efni í kókaíni Bandaríkjamaðurinn David F. Savage gekkst nýverið undir handígræðslu eftir að hafa misst hönd í vinnuslysi fyrir meira en þrjátíu árum. Það er algjört einsdæmi að jafn langur tími líði frá því að sjúkling- ur missir hönd sína þar til ný er grædd á hann eins og í tilfelli Savage. Læknar voru því ekki á einu máli um hvort aðgerðin myndi heppnast eða ekki. Ekki síst í ljós þess hversu mikið æðarnar í hand- leggnum á Savage höfðu skroppið saman frá því að vinnuslysið átti sér stað. Þrátt fyrir að vitað væri að æðakerfi handleggsins yrði undir miklu álagi ákváðu læknar að láta slag standa. Alls tóku 32 læknar þátt í að græða nýja hönd á Savage í tveimur skurðaðgerðum sem tóku hvorki meira né minna en 16 klukkutíma. Savage, sem er nú undir lækna- eftirliti og neytir tilraunalyfsins Campath, sem á að koma í veg fyrir að líkaminn hafni ígræddu hendinni, sótti um ígræðslu fyrir sex árum og stóð í málaferlum við fyrrverandi atvinnurekanda sinn í þrjú ár. Savage hafði verið á biðlista í þrjú ár áður en hentugur líffæra- gjafi fannst. Er hann sá þriðji sem undirgengst handígræðslu með góðum árangri. Frá þessu er greint á fréttavef CNN, www.cnn.com. Ný hönd eftir 30 ár Dreifingaraðili , S.L.I ehf. , Sími: 866 9512 Omega 3-6-9 EPA-GLA fæst hjá: Aftur til náttúru Yggdrasil.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.