Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2006, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 05.12.2006, Qupperneq 36
2 Hannes Lárusson listamaður ólst upp á fyrri helmingi ævi sinnar að Austur-Meðalholti í Flóanum og þar vinnur hann nú hörðum hönd- um að því að reisa torfbæjarstofn- unina Íslenski bærinn. Torfbærinn að Meðalholti hefur lengi fylgt fjöl- skyldu Hannesar og hafa þau alltaf haldið bænum í góðu ásigkomulagi. „Hugmyndin að stofnuninni kom fyrir um sex árum og fyrir tveimur árum var lagt upp með markvisst plan sem verið er að fylgja eftir núna,“ útskýrir Hannes. Meðan á byggingu stofnuninnar stendur hefur og mun Hannes meira og minna búa í gamla torfbænum og er þá líklegast eini einstaklingur landsins sem heldur til í baðstofu. Hannesi líkar samt vistin afar vel, jafnvel þótt hitinn fari yfirleitt niður í fimmtán gráður á nóttinni. Hann hefur einmitt verið að Meðalholti undanfarið en hann segist ekkert hafa fundið fyrir vondu veðri eða kulda. „Þetta eru afar góð hús og ég tel að vel og rétt byggð baðstofa sé með allra bestu húsum á hvaða mælikvarða sem er. Fyrst og fremst eru þetta vel hugsuð og falleg húsa- kynni, þar sem er gætt er að hlut- föllum. Húsið heldur líka mjög vel um fólk og er mannvænt.“ En hver verður tilgangur stofn- unarinnar? „Fyrst og fremst að draga athygli að íslenskri bygging- ararfleifð og þá sérstaklega torf- bæjararfinum sem er einstaklega rík og fjölbreytt arfleifð. Hún hefur fylgt okkur nær óslitið frá upp- hafi byggðar í landinu og fram til nútímavæðingarinnar, sem verður að teljast nokkur langur tími,“ svar- ar Hannes. Annar megintilgangur stofnunarinnar, að sögn Hannesar, er að sýna fram á að einnig sé hægt að byggja atvinnustarfsemi í kring- um stofnun sem þessa. Stofnunin Íslenski bærinn mun sýna byggingararfleifðina í öllum sínum fjölbreytileika og segja sögu hans. „Jafnframt á að hlúa að því verklagi sem er stór hluti af þess- ari byggingarlist,“ segir Hannes en byggingin sem nú er verið að reisa verður rúmlega þrjú hund- ruð fermetrar. Samkvæmt Hannesi er áætlað að framkvæmdum ljúki í júní 2008. Frekari upplýsingar um stofnunina Íslenski bærinn má finna á heimasíðunni www.islensk- ibaerinn.com. -sha Íslenskri byggingararfleifð er gert hátt undir höfði Listamaðurinn Hannes Lárusson vinnur nú ötult að því að reisa sérstaka torfbæjar- stofnun. Hannes vill hlúa að þessari helstu byggingararfleifð Íslendinga enda hafa þessir mögnuðu mannabústaðir fylgt íslensku þjóðinni frá upphafi byggðar. { suðurland }
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.