Fréttablaðið - 05.12.2006, Síða 42
8
,,Hugmyndin kviknaði á ferðalög-
um þar sem ég hef séð að tískan
er að blanda saman bókaverslun
og kaffihúsarekstri. Við eigum
fyrirmynd reyndar á Íslandi sem
er Súfistinn. Hérna er þetta reynd-
ar meira sama einingin,“ útskýrir
Bjarni glaður í bragði. Hann segir
að þessa stundina sé meira lagt
áherslu á bókasöluhluta staðsins
enda sé jólavertíðin að hefjast.
,,En síðan þegar jólavertíðin endar
þá snýst þetta að einhverju leyti
við.“
Bjarni segir að Bókakaffið hafi
strax fengið góðar viðtökur og
meðal annars hafi hann feng-
ið margar heimsóknir frá ýmsum
bókagrúskurum. ,,Hér hafa verið
hreyfingar á hverjum degi, bæði
varðandi sölu á kaffi og bókum,
og í raun framar vonum. Ég finn
líka að kaffistofureksturinn er að
sækja í sig veðrið því fyrst var fólk
ekki alveg búið að átta sig.“ Bjarni
hreykir sig líka mikið af kaffi stað-
arins. ,,Allt kaffið sem við erum
með kemur úr kjördæminu, eins
og við segjum, eða frá Keflavík, þó
ég búist nú reyndar ekki við því
að kaffið sé ræktað þar.“ Bjarni er
nokkuð stoltur af fornbókadeild
staðarins og segir hann að það
sé vinsælasta hornið á Bókakaffi.
,,Þessar gömlu sunnlensku bækur,
sem við getum kallað sunnlensk
neftóbaksfræði, hafa verið að selj-
ast best. Ég finn líka að spennu-
sögukiljur hafa verið að rjúka út.“
Bjarni, sem flestir tengja við
blað hans, Sunnlenska fréttablað-
ið, segir gott að fá tilbreytingu frá
blaðamennskunni sem hann hefur
starfað við frá 1982. Bjarni segist
afar sáttur í sínu nýja hlutverki
sem kaffidama eins og hann kallar
sjálfan sig. ,,Ég komst að því að ef
konur eins og til dæmis Siv, vin-
kona mín, geta verið ráð,,herrar“
þá get ég alveg verið kaffi,,dama“,“
útskýrir Bjarni stoltur að lokum.
steinthor@frettabladid.is
Selur neftóbaksfræði
Bjarni Harðarson blaðamaður opnaði fyrir stuttu Bóka-
kaffi við Austurveg, aðalbraut Selfossbæjar. Þar er Bjarni
í hlutverki kaffidömu og líkar honum vel við nýja starfið.
Sunnlenska deildin hefur verið í
gangi sjö keppnistímabil en í henni
etja etja kappi knattspyrnulið af
Suðurlandi, allt frá Þorlákshöfn til
Víkur í Mýrdal. Spiluð var einföld
umferð í sumar en öllum liðum
voru tryggðir fjórir heimaleikir og
spilaðir eru alvöru 90 mínútna leik-
ir. Liðin voru níu í sumar en helstu
tíðindi sumarsins voru vafalaust
þau að liðið FC FLói vann alla sína
leiki og fór með sögulegan sigur af
hólmi enda hefur ekkert annað lið
farið taplaust í gegnum sunnlensku
deildina. ,,Við gerðum eingöngu
eitt jafntefli í sumar og það var í
bikarnum sem við unnum reyndar
líka,“ útskýrir Rúnar Hjálmarsson,
liðsmaður tvöfaldra meistara í FC
Flóa. Hann segir jafnframt að sam-
heldinn og sterkur hópur hafi skap-
að þennan sigur. ,,Við vorum alltaf
sami fimmtán til tuttugu manna
kjarninn og þetta var mjög gaman
enda ríkti góð stemning.“
FC Flói hefur verið í sunnlensku
deildinni í þrjú ár en liðið spil-
aði sína heimaleiki á Eyrarbakka í
sumar. Einhverjir hljóta hins vegar
að spyrja sig að því hvort nú sé ekki
öllum markmiðum náð og hægt sé
að leggja FC Flóa niður. ,,Já, það
mætti reyndar alveg segja það.
Gríðarleg stemning er hins vegar
í hópnum en okkur vantar samt
alvöru styrktaraðila,“ segir Rúnar
og lýsir þar með eftir fjársterkum
styrktaraðaila. Aðalmarkmið næsta
sumars er þó alveg ljóst. ,,Markmið-
ið er engin jafntefli og ekkert tap,“
svarar Rúnar með bjartsýnistón að
lokum. -sha
Flekklaust sumar FC Flóa
Sunnlenska utandeildin í knattspyrnu fór fram sjöunda skiptið í röð á nýliðnu sumri. Í ár fór
FC Flói þar með sögulegan sigur af hólmi og gekk taplaust af velli að loknu sumri.
{ suðurland }